Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Qupperneq 28
Helgarblað 11.–14. desember 20156 Reykjavíkurnætur - Kynningarblað Spennandi tímar framundan hjá Snóker- og poolstofunni S nóker- og poolstofan er rót- gróið fyrirtæki og hefur verið í Lágmúla 5 í Reykjavík síðan 1998. Miklar endurbætur og útlitsbreytingar hafa átt sér stað undanfarið og er Brynjar Valdi- marsson eigandi staðarins að leggja lokahönd á þær: „Upphaflega langaði mig að breyta staðnum og gera hann meira fyrir konur, fannst hann aðeins of mikill karlastaður en eftir að við mál- uðum veggina appelsínugula hefur andrúmsloft staðarins breyst og fólk skemmtir sér betur. Mjög mikið hef- ur verið að gera síðan við kláruðum breytingarnar og vorum við til dæm- is með methelgi um mánaðamótin frá opnun staðarins.“ Hópaviðburðir vinsælir Á staðnum eru átján poolborð og fjögur snókerborð og er mikið um að bæði einstaklingar og hópar sæki staðinn. „Starfsfólk mitt og ég reynum að hafa staðinn þannig að fólk geti komið og slappað af eftir erfiða daga eða bara til að skemmta sér og öðr- um. Við fáum mikið af fyrirtækja- hópum og margir af þeim koma ár- lega til okkar enda bjóðum við upp á mjög góða en ódýra skemmtun fyrir hópa,“ segir Brynjar. Þeir sem hafa áhuga á slíkri skemmtun geta sent e-mail á pool@ pool.is og fengið tilboð fyrir hópinn. Jafnframt eru námskeið í boði bæði í pool og snóker þar sem Brynjar kennir undirstöðuatriði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir. Hægt er að panta kennslu í síma 822-1471 hjá Brynjari eða senda tölvupóst á fyrrnefnt tölvupóstfang. Allir í hópnum eru síðan leystir út með klúbbkorti að gjöf. Hagstætt verð og klúbbakort „Við erum með klúbbakort þar sem félagsgjaldið er 500 krónur fyrir árið. Kortið veitir bæði afslátt af leikjum og veitingum,” segir Brynjar. Jafn- framt er hægt að kaupa mánaðar- kort. „Við reynum að vera eins ódýr og hægt er og því er verðið hjá okkur mjög hagstætt, á bæði drykkjum og mat,“ segir Brynjar. Eins og áður segir er hægt að kaupa veitingar á staðnum; drykki, smárétti, hamborgara og pítsur. „Við erum með hamborgara og seljum mikið af þeim enda eru þeir ansi góðir, einnig pítsur frá Italiano sem er í Kópavogi. Þegar við erum með hópa þá getum við pantað frá þeim fyrir hópinn.“ Aðstaðan mjög góð „Búið er að koma upp mjög góðri að- stöðu til að horfa á boltann og aðra viðburði. Uppi eru fjórtán flatskjá- ir og tveir skjávarpar sem sjá um að allir gestir geti fylgst með. Öll sjón- vörpin eru í HD og hægt er að horfa á í 3D,“ segir Brynjar, og nefnir mótin sem hafa verið haldin á staðnum fyrir Billiardsamband Íslands, bæði í pool og snóker. Það er því alltaf eitt- hvað að gerast á Snóker- og poolstof- unni. Hægt er að nálgast frekar upplýs- ingar um Snóker- og poolstofuna á heimasíðu fyrirtækisins www.pool. is eða með því að senda tölvupóst á pool@pool.is. Opið er mánudaga til fimmtu- daga frá kl. 11.00–01.00, föstudaga og laugardaga frá kl. 11.00–03.00 og sunnudaga frá kl. 15.00–01.00. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.