Morgunblaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016
tækja með því að bjóða til sölu í
sjálfsafgreiðslu ferskt brauðmeti án
eðlilegs umbúnaðar.
„Hér með leggur heilbrigðisnefnd
fyrir stjórnendur fyrirtækisins að
bæta nú þegar úr annmörkum á
meðhöndlun og sölu á fersku brauð-
meti í verslunum og að tryggja
neytendum þannig öfluga vernd til
öryggis matvæla,“ segir m.a. í sam-
þykkt nefndarinnar.
Evrópu og Krónan væri nákvæm-
lega að fylgja sænsku aðferðafræð-
inni.
Í fundargerð heilbrigðisnefnd-
arinnar frá því sl. mánudag segir að
athugasemdir nefndarinnar snúist
ekki eingöngu um hvort lok sé sett
fyrir hverja brauðkörfu eða ekki.
Heilbrigðisnefnd telji að stjórn-
endur fyrirtækisins fullnægi ekki
skyldum stjórnenda matvælafyrir-
Fimm löggiltir fasteignasalar hafa
verið sviptir tímabundið löggildingu
til þess að vera fasteigna- og skipa-
salar á grundvelli 2. mgr. 21. gr.
laga um sölu fasteigna og skipa nr.
70/2015. Þar segir m.a. að fast-
eignasali þurfi að skila til eftirlits-
nefndar fasteignasala fyrir 15. októ-
ber ár hvert yfirlýsingu löggilts
endurskoðanda um að meðferð hans
á fjármunum viðskiptamanna hans
undangengið reikningsár sé í sam-
ræmi við lög og reglur um vörslu-
fjárreikninga.
Sé yfirlýsingu af þessu tagi ekki
skilað á réttum tíma eða ekki gert
með fullnægjandi hætti getur það
leitt til þess að fasteignasali verði
sviptur löggildingu tímabundið.
Kjartan Hallgeirsson, formaður
Félags fasteignasala, segir lang-
flesta fasteignasala uppfylla skilyrði
laganna.
„Nú get ég ekki fullyrt hvort þetta
er meira eða minna en gengur og
gerist almennt en vert er að benda á
að fasteignasalar vinna í umhverfi
þar sem ríkar kröfur eru gerðar til
þeirra, m.a. um eftirlit með fjár-
vörslureikningum og í nærri því öll-
um tilvikum uppfylla félagsmenn
þær kröfur sem gerðar eru til
þeirra.“
Fimm sviptir
tímabundið lög-
giltu fasteignaleyfi
Skila þarf yfirlýsingu löggilts endur-
skoðanda um vörslufjárreikninga
Morgunblaðið/Ómar
Íbúðir Mikill uppgangur hefur verið
á fasteignamarkaðnum.
Fulltrúar ís-
lenskra stjórn-
valda, Samtaka
atvinnulífsins og
Íslandsstofu
hittu í gær full-
trúa bresku
verslanakeðj-
unnar Iceland
Foods til að ræða
skráningu á orðmerkinu „Iceland“
hjá Hugverkaréttarstofnun Evr-
ópusambandsins (EUIPO).
Á fundinum kom fram að Iceland
Foods hafnaði því að afskrá orð-
merkið „Iceland“ og kynnti tillögur
sem stóðust ekki væntingar Íslands.
Lagalegum aðgerðum til að ógilda
skráningu orðmerkisins „Iceland“
hjá EUIPO verður því fram haldið,
að því er kemur fram í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu.
„Íslensk stjórnvöld líta svo á að
notkun á orðinu „Ísland“ snúist um
grundvallaratriði. Það sé ólíðandi
að einkafyrirtæki eigi einkarétt á
orðmerkinu „Iceland“ í öllum lönd-
um Evrópusambandsins, enda komi
það í veg fyrir að íslensk fyrirtæki
og stofnanir geti skráð vöru sína
með tilvísun í upprunalandið Ís-
land,“ segir einnig í áðurnefndri til-
kynningu frá ráðuneytinu.
Einkaréttur Breta
á orðinu „Iceland“
er sagður ólíðandi
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íslenskir ökumenn voru einungis um
35% þeirra sem voru teknir fyrir of
hraðan akstur hjá lögregluembætt-
inu á Suðurlandi á fyrstu tíu mán-
uðum ársins. Alls var 1.901 ökumað-
ur sektaður hjá embættinu fyrir of
hraðan akstur á tímabilinu og þar af
voru 1.239 erlendir en 659 íslenskir.
Ólíkt því sem gerist þegar menn
eru myndaðir af stafrænni hraða-
myndavél fyrir of hraðan akstur
greiða erlendir ferðamenn sektirnar
í yfirgnæfandi meirihluta tilfella,
samkvæmt því sem fram kemur hjá
lögreglunni á Vesturlandi sem sér
um innheimtu sekta. Til samanburð-
ar greiða erlendir ferðamenn ein-
ungis sektir í 45% tilfella eftir að þeir
eru myndaðir með hraðamyndavél.
Alls fengu ökumenn af 67 þjóðern-
um sekt fyrir of hraðan akstur hjá
lögreglunni á Suðurlandi. Hátt hlut-
fall hraðasekta til erlendra öku-
manna í umdæminu vekur athygli í
ljósi þess að samkvæmt tölum frá
lögreglunni á Vesturlandi voru öku-
menn bílaleigubíleigubíla teknir fyr-
ir of hraðan akstur í 23% tilvika á
fyrstu ellefu mánuðum ársins á land-
inu í heild. Í þessu samhengi má ætla
að stórt hlutfall erlendra ferða-
manna aki um Suðurland, þar sem
margar af fjölsóttustu ferðamanna-
stöðum landsins eru.
Flestir erlendra sektarþola eru frá
Bandaríkjunum, eða 302 ökumenn,
og eru það rúmlega 24% þeirra
ferðamanna sem fengu sekt frá 1.
janúar til 1. október. Næstflestir eru
frá Bretlandi, eða 99, og eru það um
8% sekta sem ferðamenn fengu fyrir
hraðakstur hjá embættinu.
Til gamans má geta þess að
Bandaríkjamenn eru 24% ferða-
menna sem koma til landsins en
Bretar eru tæp 16%.
Hlutfallslega flestir frá Ítalíu
Sé horft til flestra sekta miðað við
fjölda ökumanna voru Ítalir sektaðir
í um 5% tilfella en þeir eru þó ein-
ungis um 2% þeirra ferðamanna sem
koma til landsins. Er það hæsta hlut-
fall sekta miðað við fjölda erlendra
ferðamanna.
Ferðamenn oftar teknir
Hlutfall íslenskra ökumanna sem eru teknir fyrir of hraðan akstur á Suðurlandi
er 35% 1.901 ökumaður sektaður til 1. október 1.239 erlendir ökumenn
Hraðasektir á Suðurlandi
Þýskaland
Frakkland
Pólland
Bretland
Bandaríkin
Ísland
Heimild: Lögreglan á Suðurlandi
0 100 200 300 400 500 600 700
Önnur lönd: 595
75
85
86
99
302
659
Hraðasektir í heild: 1.901
Íslenskir ökumenn: 659
Erlendir ökumenn: 1.242
Morgunblaðið/Júlíus
Hraðamælingar Ökumenn greiða sektina í yfirgnæfandi meirihluta tilfella.
Páll Stefánsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þegar stjórnendur Krónunnar
hefðu lagt fram úrbótaáætlun yrði farið yfir hana. „Þær
úrbætur sem talað er um eru fljótunnar, þannig að þeir
eiga ekki að þurfa mikinn tíma til þess að hrinda þeim í
framkvæmd,“ sagði Páll.
Hann sagði jafnframt: „Áætlunin verður skoðuð þegar
hún kemur. Vonandi verður hún metnaðarfull og þá verð-
ur hún bara samþykkt. Ef hún er ekki nægjanlega metn-
aðarfull þá verðum við að fara í viðræður við fyrirtækið.“
Líkt og fram kemur í meginmáli hefur Krónan 14 daga til þess að senda
heilbrigðisnefndinni úrbótaáætlun.
Vonandi metnaðarfull áætlun
HEILBRIGÐISEFTIRLIT HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS
Páll Stefánsson
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis hefur krafið versl-
unarkeðjuna Krónuna um að gera
úrbætur á því hvernig staðið er að
sölu á fersku brauðmeti í fjórum
verlunum Krón-
unnar í Kópavogi
og Hafnarfirði.
Krónan og heil-
brigðiseftirlit
Hafnarfjarðar-
og Kópavogs-
svæðis hafa deilt
um fyrir-
komulagið mán-
uðum saman.
Jón Björnsson,
forstjóri Kaupáss, móðurfélags
Krónunnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þessi deila
um brauðin í verslunum Krónunnar
hefði staðið í nokkra mánuði.
„Við hófum málið og erum að
reyna að knýja fram ákvörðun þess
efnis hvort reglur um brauðbari séu
öðruvísi en í öllum nágrannalöndum
okkar – löndum sem við berum okk-
ur saman við,“ sagði Jón.
Hann segir að heilbrigðiseftirlit á
Íslandi séu sett upp eftir svæðum
og þess vegna séu misjafnar reglur í
gildi hjá mismunandi svæðum, eða
reglurnar túlkaðar á mismunandi
hátt. Eins hafi heilbrigðiseftirlit hér
á landi túlkað reglur öðruvísi en
Evrópulönd hafi gert.
„Við höfum viljað fá úr því skorið
hvort selja mætti brauð í opnum
körfum en ekki lokuðum, eins og
sum heilbrigðiseftirlit vilja. Við höf-
um jafnfamt óskað eftir því að það
komi stjórnvaldsúrskurður í þessu
máli, því ella getum við ekki kært
málið,“ sagði Jón.
Hann segir að fáist stjórnvalds-
úrskurður, sem sé ekki Krónunni í
hag, muni fyrirtækið kæra þann úr-
skurð. „Vegna þess að við viljum fá
að vita hvers vegna aðrar reglur
gilda á Íslandi en annars staðar í
Evrópu,“ sagði Jón.
Jón sagði jafnframt að Svíar
væru með einhverja ströngustu
matvælaeftirlitsstaðla sem til væru í
London Þetta er opinn brauðbar í matvöruverslun í London. Engar kröfur
eru gerðar af heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi um lokaða brauðbari.
Deila um sölu brauða
í Krónu-verslunum
Segir söluformið í samræmi við ströngustu Evrópustaðla
Jón Björnsson