Morgunblaðið - 03.12.2016, Side 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016
Kvenfélag Reyð-
arfjarðar var stofnað
3. desember 1916. Á
stofnfundinum voru 18
konur, en 16 gerðust
stofnfélagar. Fyrsti
formaður félagsins var
Anna Stefánsdóttir,
húsfreyja í Bakka-
gerði. Með stofnun fé-
lagsins var brotið blað
í félagsmálum stað-
arins. Það var hvort tveggja í senn
menningar- og líknarfélag. Til þess
að ná markmiðum sínum efndi það
til skemmtanahalds, auk þess að
selja eigin handavinnu.
Árið 1919 stofnaði félagið sjúkra-
samlagssjóð til að styðja við fólk í
erfiðum veikindum. Félagið lagði
fram 200 kr. sem stofnfé sjóðsins og
lagði honum svo til fé næstu árin,
allt þar til sjálfstætt sjúkrasamlag
var stofnað á Reyðarfirði árið 1932,
með 5.000 króna framlagi úr sjóðn-
um. Þetta var stórfé á þessum tíma.
Svo myndarlegir voru styrkirnir að
samlagið borgaði allan ferðakostn-
að og 80% af sjúkrahúskostnaði.
Kvenfélagið styrkti auk þess árlega
fátækt fólk, einkum fyrir jólin.
Frá upphafi hefur félagið haldið
jólaball. Sá sem þetta
ritar á vart yndislegri
æskuminningar en
þær, sem tengjast
barnaballinu. Lítill
hnokki yfir sig spennt-
ur af tilhlökkun
klæddur matr-
ósarfötum með snúru
og tilheyrandi, nánast
flýgur í systk-
inahópnum upp í
skóla. Angan af eini-
viðnum fyllir loftið,
vaxkertin loga glatt á heimatilbúnu
jólatrénu, leikið á litla kirkjuorgelið
og svo er dansað og sungið. Hvílík
dýrðarstund! Svo er farið niður í
kennslustofurnar þar sem prúðbún-
ar kvenfélagskonur bjóða til stór-
veislu og gæta þess vel og vand-
lega, að allir fái nóg.
Ég og kona mín Anna Frímanns-
dóttir óskum félaginu innilega til
hamingju með afmælið og vonum,
að starf þess blómstri áfram sem
hingað til.
Aldarafmæli Kven-
félags Reyðarfjarðar
Eftir Guðmund
Magnússon
»Með stofnun félags-
ins var brotið blað í
félagsmálum staðarins.
Guðmundur Magnússon
Höfundur er fv. fræðslustjóri.
Morgunblaðið/GolliFrá Reyðarfirði.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is
Fasteignasalinn þinn
fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda
Íris Hall
lög. fasteignasali
Sirrý
lög. fasteignasali
Erna Vals
lög. fasteignasali
Sérbýli í Vogum eða Túnum óskast
Höfum kaupanda að 200-250 fm einbýlishúsi eða raðhúsi í Vogum eða
Túnum í Reykjavík.
Sérbýli í Fossvogi óskast
Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi eða raðhúsi í Fossvogi.
Sérbýli í Vesturbænum óskast
Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi í Vesturbænum.
Sérbýli á Seltjarnarnesi óskast
Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi eða raðhúsi á Seltjarnarnesi.
Sérbýli í Skerjafirði óskast
Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi í Skerjafirði.
2ja-3ja herb. íbúð óskast
Höfum kaupanda að 2ja-3ja herb. íbúð í miðbæ, vesturbæ eða hlíðum.
Æskileg stærð 55-75 fm.
Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali, s: 861 8514,
sverrir@eignamidlun.is
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Eignir óskast
Þeir sem hafa lesið
bókin „Bloodlands,
Europe between Hit-
ler and Stalin“ eftir
Timothy Snyder
kannast við það
hvernig stjórnvöld
geta með ofbeldi, hót-
unum og ógnunum
kæft alla fjölmiðlun
sem ekki er sömu
skoðunar og stjórn-
völd hafa. Eins fróðleg og bókin er
þá er hún ógnvekjandi aflestrar og
maður fyllist skömm við lesturinn.
Skömmu eftir valdatöku fasista í
Þýskalandi og stalínista í Sovétríkj-
unum hófu þessi stjórnvöld mark-
vissa vinnu við að
þagga niður í öllum
þeim sem ekki aðhyllt-
ust þeirra pólitísku
rétthugsun. Á örfáum
árum tókst stjórnvöld-
um þessara ríkja að
kæfa alla frjálsa hugs-
un, fyrst hjá fjöl-
miðlum og svo hjá al-
mennum borgurum.
Þessi kúgunarstefna
endaði síðan eins og
menn vita með hörmu-
legum afleiðingum fyr-
ir Evrópu og heimsbyggðina 1939-
1945.
Verandi með þessa bók í huga
brá mér óneitanlega við að lesa í
Morgunblaðinu frétt 24. nóvember
síðastliðinn þess efnis að ónefndur
útvarpsmaður og þáttastjórnandi á
einni af minni útvarpsstöðvunum
sem reknar eru hér á landi hefði
verið ákærður af lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir eitthvað
sem sagt er vera hatursorðræða og
fyrir útbreiðslu haturs í garð sam-
kynhneigðra.
Þessi ákæra af hendi yfirvalda er
fráleit og óskiljanleg með öllu. Út-
varpsmaðurinn hefur það eitt unnið
sér til saka að stjórna útvarpsþætti
þar sem fólk getur hringt inn og
talað um það sem liggur því á
hjarta. Það er ljótt til þess að vita
að stjórnvöld ætli sér framvegis að
stjórna því og stýra hvaða skoðanir
almenningur hefur. Á tyllidögum er
oft talað um nauðsyn frjálsrar fjöl-
miðlunar og nauðsyn frjálsra skoð-
anaskipta en það er með þessa
hluti eins og með frelsið, fyrir
þessu hefur þurft að berjast og það
hefur kostað blóð, svita og tár. Með
þessari ákæru erum við vonandi
ekki að hverfa aftur til áranna
1930-1940, til Þýskalands og Sov-
étríkjanna. En ekki þarf að fara
svona langt aftur í tímann því það
nægir að leiða hugann að því sem
nú er að gerast í Tyrklandi þar
sem stjórnvöld hafa í allmarga
mánuði markvisst kúgað og ofsótt
fjölmiðla og fjölmiðlamenn. Öllum
ráðum hefur verið beitt, þingi, rík-
isstofnunum og leyniþjónustu. Svo
vel hefur tekist til að engin frjáls
fjölmiðlun þrífst lengur í Tyrklandi.
Er Ísland á leið til Tyrklands?
Hvað lögregluyfirvöldum gengur
til er illskiljanlegt. Er ekki nær-
tækara að þau eyði takmörkuðum
mannafla og fjármunum í að berj-
ast gegn yfirþyrmandi óréttlæti svo
sem heimilisofbeldi, barnaníði, og
almennri glæpastarfsemi. Vont er
að horfa uppá að með þessari
ákæru hefur trúverðugleiki lögregl-
unnar beðið verulegan hnekki. Það
er ekkert spaug að ákæra almenn-
an borgara og bera á hann sakir
samkvæmt einhverju huglægu
mati. Ég er ansi viss um að það
eru fleiri en ég sem eru hugsi yfir
þessu öllu.
Fasismi innleiddur á Íslandi
Eftir Magnús
Magnússon
Magnús Magnússon
» „Það er ekkert spaug
að ákæra almennan
borgara og bera á hann
sakir samkvæmt ein-
hverju huglægu mati.“
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og aðhyllist skoðanafrelsi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 28. nóvember var
spilað á 13 borðum hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 387
Bjarni Þórarinss. – Gunnar Jónsson 371
Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarss. 336
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 332
A/V:
Ólafur Kristinss. – Eggert Þórhallsson 347
Ásta Sigurðard. – Valgerður Eiríksd. 346
Halldór Kristinss. – Hreiðar Þórhallss. 341
Björn Arnarsson – Nick Barshay 340
Gabríel og Aðalsteinn
langefstir hjá BR
Fjögurra kvölda aðaltvímenning-
ur BR stendur yfir og eftir þriðja
kvöld er staðan þessi:
Gabríel Gíslason - Aðalst. Jörgensen 59,1%
Haukur Ingason - Helgi Sigurðsson 56,3%
Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason 55,2%