Morgunblaðið - 12.12.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2016
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Tvær sprengjur sprungu fyrir utan
íþróttaleikvang í Istanbúl í Tyrk-
landi á laugardag og urðu að
minnsta kosti 38 manns að bana og
talið er að 166 séu særðir. Sprengj-
urnar sprungu tveimur klukku-
stundum eftir að leik tveggja helstu
knattspyrnuliða borgarinnar, Besik-
tas og Bursaspor, lauk á heimavelli
þess fyrrnefnda. Seinni sprengjan
sprakk í nálægum garði þar sem
margir lögrelgumenn voru staddir.
Talið er að um þrjátíu lögreglumenn
hafi látið lífið.
TAK, hópur skæruliða Kúrda,
lýsti árásinni á hendur sér í gær-
kvöldi en hópurinn er sagður ná-
tengdur PKK, Verkamannaflokki
Kúrda. „Hefndarhópur TAK fram-
kvæmdi tvær samstilltar árásir utan
við Vodafone-leikvanginn í Istanbúl
og í Macka-garðinum kl. 22.30 að
staðartíma,“ sagði í yfirlýsingu
hópsins en jafnframt var tekið fram
að árásirnar hefðu ekki beinst að al-
menningi í Tyrklandi. Sakaði hóp-
urinn stjórnvöld um „fasisma“ gagn-
vart Kúrdum en árásin væri
hefndarráðstöfun vegna ofbeldis í
Suðaustur-Tyrklandi og vegna fang-
elsunar PKK-leiðtogans Abdullah
Öcalan.
Hópurinn hefur efnt til þriggja
stórfelldra árása í Tyrklandi á þessu
ári, tveggja í Ankara þar sem sam-
tals 62 biðu bana og bílasprengjuá-
rásar í Istanbúl þar sem ellefu
manns lágu í valnum.
Tyrkir munu ná fram hefndum
„Land mitt og þjóð getur treyst
því að við munum berjast gegn
hryðjuverkum allt til enda. Við mun-
um ekki láta þessar árásir óátaldar.
Hryðjuverkamennirnir verða látnir
gjalda fyrir þetta,“ sagði Recep Tay-
yip Erdogan, forseti Tyrklands, í
yfirlýsingu eftir árásirnar. Innan-
ríkisráðherra Tyrklands, Suleyman
Soylu, tók í sama streng við minn-
ingarathöfn tveggja fórnarlamb-
anna og sagði að fyrr en síðar
myndu Tyrkir ná fram hefndum.
„Armur laganna er langur.“
Tyrkir flykktust að leikvanginum
þegar hættan var liðin hjá, lögðu
blóm til minningar um þá sem féllu
og héldu á tyrkneska fánanum og
hrópuðu: „Niður með PKK“ og
„Ættjörð okkar verður ekki klofin“.
Numan Kurtulmus, aðstoðarfor-
sætisráðherra Tyrklands, sagði
árásirnar hafa beinst að lögreglu-
mönnum. „Sérfræðingar segja að að
minnsta kosti 300-400 kíló af
sprengiefni hafi verið notuð í árás-
unum en gígur myndaðist þar sem
bílsprengjan sprakk,“ sagði hann við
sjónvarpsstöðina CNN Turk.
Boða samstarf gegn
hryðjuverkum
Forsetinn lýsti yfir þjóðarsorg sem
standa ætti yfir í sólarhring. Sagði
hann jafnframt að markmiðið með
árásunum hefði verið að valda eins
miklu manntjóni og mögulegt væri.
Á meðan tyrknesk stjórnvöld
reyna að sannfæra almenning um að
þau hafi stjórn á aðstæðum kraum-
ar óöryggi undir yfirborðinu og
Tyrkir óttast að stjórnvöldum takist
ekki að stöðva sprengjuárásirnar í
landinu. Þetta segir Mark Lowen,
fréttamaður BBC í Istanbúl. Margir
telji því að yfirlýsing Erdogans for-
seta sé innantóm. Þjóðin lætur þó
ekki bugast og hafði einn mótmæl-
andi á orði að hryðjuverkamennirn-
ir reyndu að hræða almenning svo
hann hætti sér ekki út úr húsi. „Við
megum ekki láta undan, við verðum
að sýna samstöðu gegn ógninni.“
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hafði samband við Erdogan í
síma og bað hann fyrir samúðar-
kveðju til fjölskyldna fórnarlamb-
anna. Þau voru sammála um að auka
samvinnu ríkjanna gegn hryðjuverk-
um. Þá fordæmdi Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Ísraels,
árásirnar en sagði Tyrki þurfa að
gjalda líku líkt ef Ísrael sætti árás-
um.
38 létu lífið í sprengjuárásum
TAK, hópur skæruliða Kúrda, lýsti árásunum á hendur sér Erdogan segist ætla að stöðva hrinu
hryðjuverka eftir fjórðu árás TAK á Tyrki í ár Almenningur telur mikilvægt að sýna samstöðu
AFP
Mannskæð árás Tyrknesk kona felldi tár við lögreglubíl í Istanbúl í gær eftir að TAK, hópur skæruliða Kúrda, gerði tvær sprengjuárásir borginni á
laugardag. Árásirnar beindust aðallega að lögreglumönnum. Af þeim 38 sem létu lífið voru um 30 lögreglumenn. Þjóðarsorg var lýst yfir í landinu í gær.
Paolo Gentiloni var í gær skipaður
forsætisráðherra Ítalíu eftir að
Matteo Renzi sagði af sér í kjölfar
þjóðaratkvæðagreiðslu þegar til-
lögu hans um breytingar á stjórn-
arskrá landsins var hafnað.
Gentiloni var utanríkisráðherra í
stjórn Renzis en forseti landsins,
Sergio Mattarella, bað hann að
mynda nýja ríkisstjórn sem á að
starfa þar til kosið verður í febrúar
2018.
Í stuttri ræðu í gær sagðist Gen-
tiloni átta sig á hve knýjandi það
væri að mynda nýja ríkisstjórn sem
fyrst til að binda enda á pólitísku
óvissuna í landinu. Hann myndi
einnig vinna á grundvelli fráfar-
andi ríkisstjórnar og endurskipa
nokkra ráðherra.
AFP
Nýr leiðtogi Paolo Gentiloni á blaða-
mannafundi í Róm í gær.
Gentiloni skipaður forsætisráðherra
ÍTALÍA
Donald Trump segist ekki trúa
ásökunum þess efnis að rússneskir
hakkarar hafi reynt að hafa áhrif á
forsetakosningarnar í Bandaríkj-
unum í síðasta mánuði þegar
Trump bar sigur úr býtum.
The Washington Post greindi frá
því á föstudag að leyniþjónustan
CIA liti svo á að netárásir gegn
demókrötum undanfarið tengdust
Rússum og markmið þeirra hefði
verið að hjálpa Trump í kosning-
unum. „Ég held að þetta sé bara
enn ein afsökunin,“ segir Trump í
viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina í
gær. „Ég trúi þessu ekki.“
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, telur netárásirnar alvar-
legar og hefur ásamt demókrötum
kallað eftir formlegri rannsókn.
BANDARÍKIN
Trump trúir ekki ásökunum um hakkara
AFP
Trump Kveðst ekki trúa því að hakkarar
hafi haft áhrif á úrslit kosninganna.