Morgunblaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2016
Ég er mikið jólabarn og hef alltaf í gegnum tíðina haft opið húsá afmælisdaginn en það var haldið upp á það öðruvísi núna,“segir Signý Guðbjartsdóttir sem á 50 ára afmæli í dag. „Ég
hélt 100 manna afmælisveislu á laugardaginn í kaffisal Fíladelfíu. Við
fluttum inn belgískan kokk sem er vinur dóttur minnar og hann var
með öðruvísi mat fyrir okkur.“
Signý hefur mikið starfað fyrir Fíladelfíusöfnuðinn gegnum tíðina.
„Við erum nýbúin að ljúka jólatónleikunum sem verður sjónvarpað á
Stöð 2 og það verður mikil dagskrá hjá okkur um jólin og svo er dag-
skrá hjá okkur alla sunnudaga klukkan 11.“ Signý starfar einnig á
kristilegu útvarpsstöðinni Lindinni og er með þætti á fimmtudags-
morgnum frá kl. 10 til 12 og svo eru þeir endurfluttir yfir vikuna.
„Ég er mikið í crossfit þessa dagana, finnst gaman að ganga á fjöll
og elska að ferðast. Svo er mitt hjartans mál að boða okkar kristnu
trú hér á Íslandi og halda henni á lofti. Við erum að fara til Afríku í
febrúar að taka upp þátt um fólk sem mig langar að kynna, en það er
að sinna stórkostlegu hjálparstarfi í Búrkína Fasó. Þetta verður tólf
daga ferð og yngsti sonur minn verður með í henni, en hann mun sjá
um að taka upp efnið og klippa það.“
Eiginmaður Signýjar er Sigurður Örn Reynisson. Börn hennar eru
Andri Ómarsson og Tinna Vibeka Ómarsdóttir og sonur Signýjar og
Sigurðar er Bjartur Sigurðsson. Eiginkona Andra heitir Snædís
Bergmann og dóttir þeirra er Signý Alba og kærasta Bjarts er Anika
Sól Ólafsdóttir.
Með barnabarninu Signý ásamt nöfnu sinni, Signýju Ölbu.
Mikið jólabarn og
boðar kristna trú
Signý Guðbjartsdóttir er fimmtug í dag
Á
rni Ólafur Lárusson
fæddist á Grímsstaða-
holtinu í Reykjavík
12.12. 1946: „Ég ólst
upp í eina húsinu sem
bar húsnúmer við Garðaveg, nr. 4,
sem lá frá Fálkagötu niður að sjó, að
Grímsstaðavör við Skerjafjörð, en
þar var hitt húsið við þennan veg,
sem heitir í Görðum. Garðavegur
breyttist í Tómasarhaga með nýju
skipulagi og hverfið breyttist og
byggð þéttist þegar Hagahverfið
reis. Þessi tvö hús standa enn í
endurbættri mynd.
Á Háskólasvæðinu og allt í kring
var braggabyggð, ekkert Háskóla-
bíó en í nágrenni þess var Trípólíbíó
í stórum bragga þar sem Árna-
stofnun er, en Vetrargarðurinn og
Tívolí voru rétt austan við núverandi
hús Íslenskrar erfðagreiningar.
Þetta var umhverfi Djöflaeyjunnar,
ritverks Einars Kárasonar.“
Árni var sendill frá átta ára aldri
og síðar innanbúðarmaður hjá
„Dóra fisk“ og Jósefínu, konu hans,
sem skírskotað er til í Djöflaeyjunni
á mjög afmyndaðan hátt.
„Á þessum árum var miklu meira
líf og fjör á þessum slóðum en sést í
dag, þ.e. í hverfunum Skerjó, þeim
litla og stóra, Skjólunum, Kömp-
unum og síðar Hagahverfinu. Frelsi
barna og unglinga var allsráðandi til
útiveru, vetur sem sumur, við sjóinn
sem og á óbyggðri víðáttunni til
leikja og starfa, til heimagerðra
uppátækja og prakkarastrika. Allt
er þetta nú horfið en í staðinn komn-
ir leikir í tölvum og tækjum, fram-
leiddum í verksmiðjum.“
Árni var í þrísetnum Melaskól-
anum, lauk landsprófi frá Hagaskóla
og stúdentsprófi frá MR 1967 og
lauk Cand. oecon. prófi haustið 1972.
Hann hefur sótt ýmis námskeið og
öðlaðist löggildingu til sölu fast-
eigna, skipa og fyrirtækja árið 2009,
auk löggildingar til reksturs leigu-
miðlunar.
Árni sat í stjórn Framtíðarinnar, í
stjórn Heimdallar og var fram-
kvæmdastjóri þess, sat í stjórn SUS,
í stjórn Vöku, í ritnefnd og ritstjóri
Stúdentablaðsins, var formaður
hagsmunanefndar Stúdentaráðs HÍ,
fulltrúi í Stúdentaráði og fulltrúi
stúdenta í stórn LÍN og síðan fram-
kvæmdastjóri sjóðsins.
Árni var í hlutastarfi með námi
sem upplýsingafulltrúi hjá Umferð-
arráði og kenndi stærðfræði við Ár-
múlaskóla í Reykjavík í þrjá vetur.
Árni hóf störf hjá Olíufélaginu
Skeljungi hf. 1974 til að koma á fót
og stýra hagdeild félagsins, var
framkvæmdastjóri fjármálasviðs fé-
lagsins 1978-98 og gegndi þar starfs-
tengdum trúnaðarstörfum, m.a. setu
í stjórn Plastprents hf., í stjórn
flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, í
Reikningsskilaráði og ráðherra-
skipuðum nefndum.
Árni og kona hans keyptu versl-
Árni Ólafur Lárusson fasteignasali – 70 ára
Fenrir á ferð Vélhjólaklúbbur frímúrarabræðra á hjá Völu, systur Árna, á leið sinni að Kröflu síðastliðið sumar.
Ofvirkur Holtari með
óteljandi áhugamál
Rómantík Árni og Sólveig tilbúin í
kvöldverðinn í Barcelona sl. sumar.
Garður Sigrún Rós Sigurðardóttir fæddist 11. nóvember 2015 kl. 1.17. Hún vó
3.230 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Lovísa Ósk Ragnarsdóttir og
Sigurður Elíasson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is