Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 6
Sigurciur Magnúsjon, prófessor:
Heilsuhælið á Vífilsstöðum
og tildrög jaess.
. Eigi er auðið að segja, hvenær berkla-
veikin hefir fyrst borist hingað til lands,
en vart verður við hana á 17. öld, og hinn
fyrsti líkskurður, sem gerður var hér á
landi, á ofanver.ðri 18. öld, af hinum
fyrsta lærða lækni, Bjarna Pálssyni,
sýndi berklaveiki í lungum, en hinum ís-
lenzku læknum bar saman um það, að
haldnir berklaveikinni, gerist virkir félagar
innan vébanda sinna, og telur þetta eitt höf-
uðskilyrði fyrir góðum árangri af starfi sínu.
Það gerir og ráð fyrir því í lögum sínum, að
hinir hraustu geti orðið styrktarmeðiimir og
hvetur eindregið alla, jafnt konur sem karla,
að gerast það.
ENGINN HUGSANDIMAÐUR GETUR VER-
Ití ANDSTÆÐINGUR ÞESS.
Með stofnun S.Í.B.S hafa íslenzkir berkia-
sjúklingar komið auga á sjálfa sig sem stærð
í baráttunni gegn berklunum og fundið kraft-
inn í sjálfum sér til að vinna þjóðnytjastarf.
Hversu mikill og skjótur árangurinn verður
af þessu starfi, er ekki lítið undir því komið,
að þjóðin þekki vitjunartíma sinn í þessu efni.
S.Í.B.S. hefir hafið starf sitt í öruggri vissu
um það, að þjóðin lætur sitt ekki eftir liggja.
í miðstjórn S.Í.B.S.
Andrés Straumland. Ásberg Jóhannesson.
Karl Matthíasson. Herbert Jónsson.
Gunnlaugur Sæmundsson.
Ármann Guðfreðsson. Jón Rafnsson.
veikin hafi verið mjög sjaldgæf þangað
til síðast á 19. öldinni, en á síðasta ára-
tugi hennar bregður svo við, að allir lækn-
ar landsins verða varir við hana, meira
eða minna, og sumir allmikið, enda kemur
það til greina, að læknar voru þá orðnir
miklu fleiri en áður og höfðu betri skil-
yrði til þess að þekkja veikina. En þó að
berklaveikin hafi áður verið almennari
en menn hugðu, þá virðist vafalítið, að um
hraða útbreiðslu hafi verið að ræða á síð-
asta áratugi 19. aldar og fyrsta tugi þess-
arar aldar, enda kemur það í ljós, eftir að
dánarskýrslur voru lögleiddar árið 1910,*
að dánartölur berklaveikinnar voru tiltölu-
lega eins háar á íslandi eins og annars
staðar í Norðurálfu, eða jafnvel hærri.
Það er sízt að furða, þó að berklaveikin
hafi vaxið stórlega á þessu tímabili, þegar
tekið er tillit til þess, að berklaveikin er
smitandi sjúkdómur og að fólkið var að
þyrpast úr hinum dreifðu byggðum til
kaupstaða og sjóþorpa, þar sem smithætt-
an hlaut víða að stóraukast vegna þétt-
býlis. Þessi snögga tilfærsla fólksins og
breyttir og sízt hollari lifnaðarhættir
hlutu að gefa berklaveikinni byr undir
2
BER.KLAVÖRN •