Berklavörn - 01.06.1939, Page 8
þess, þessir brautryðjendur, að þótt sjuld-
ingar hælanna ættu allir eitt sameiginlegt
áhugamál: útrýmingu berklanna, þá höfðu
þeir engin samtök sín á milli, er sldpulagt
gæti starf í þágu þessa málefnis. Þarna
var saman kominn fjöldi af ungu fólki með
sjúkdóm, er svo var háttað, að hann olli
þeim ekki mikilla þjáninga, en lokaði þá
hins vegar inni frá lífinu utan hælanna um
lengri eða skemmri tíma. Þetta fólk vant-
aði starf til að inna af hendi, mark til að
keppa að.
Hvers vegna ekki að skipuleggja félags-
skap meðal berklasjúklinga til baráttu
gegn böli því, er þjáði þá — gegn berkl-
unum ?
Fyrir ötula forgöngu ýmsra ágætra
manna, sem á heilsuhælunum dvöldu,
var svo stofnþing S. 1. B. S. háð á Vífils-
stöðum dagana 23. og 24. okt. 1938. Stofn-
þing þetta sóttu fulltrúar frá öllum heilsu-
hælum landsins, Landsspítalanum og
Landakoti — 26 fulltrúar alls. Á þinginu
voru samþykkt lög og stefnuskrá fyrir
sambandið, kosin stjórn þess o. fl.
Það lætur að líkindum, að mikið starf
liggur ekki eftir þessi samtök, svo ung sem
þau eru, enda hefir Sambandið engan fast-
an starfsmann enn sem komið er og enga
opna skrifstofu. Síðastliðinn vetur fór nær
eingöngu til útbreiðslustarfsemi. Voru þá
formlega stofnuð félög á öllum heilsuhæl-
um landsins, svo og í Vestmannaeyjum og
Reykjavík. Öll hafa félög þessi verið sæmi-
lega starfandi, og um eitt þeirra, „Sjálfs-
vörn“ á Kristneshæli — má geta þess, að
í vor gaf það út allmyndarlegt blað, sem
selt var víða um land. Formaður þess fé-
lags er Jóhann Kúld rithöfundur, einn af
ötulustu forgöngumönnunum um stofnun
S. I. B. S.
Um útbreiðslustarfsemi S. 1. B. S. skal
þess ennfremur getið, að á vegum þess var
síðastliðinn vetur flutt útvarpserindi, sem
skýrði allrækilega starf og stefnu sam-
bandsins, haldnir útbreiðslufundir og
skrifaðar greinar í dagblöðin.
Nokkru eftir að þing kom saman síðast-
liðinn vetur, sneri S.l.B.S. sér til þess með
2 erindi. Var í öðru þeirra farið fram á, að
Alþingi kysi milliþinganefnd, sem falið
væri eftirfarandi verkefni:
a) Að endurskoða gildandi berklalög-
gjöf með það fyrir augum, að komið verði
á meiru heilsufarslegu öryggi fyrir út-
skrifaða berklasjúklinga en verið hefir að
undanförnu.
b) ' Að athuga möguleika fyrir því, að
komið verði upp atvinnuvegi við hæfi
veiklaðs fólks af völdum berkla og koma
með tillögur í þá átt.
c) ' Að athuga og gera tillögur um fyrir-
komulag vinnukennslu í sambandi við
berklahælin.
Hitt erindið var beiðni um árlegan styrk
til skrifstofu sambandsins.
Bæði þessi erindi döguðu uppi í þinginu,
er því var frestað í vor; en fyrir þann
tíma náði miðstj. S. I. B. S. tali af nokkr-
um þingmönnum úr öllum flokkum, og tóku
BERKLAVÖRN
4