Berklavörn - 01.06.1939, Side 9

Berklavörn - 01.06.1939, Side 9
þeir allir málinu vínsamlega. Þess er því að vænta, að erindi þessi hljóti góða og fljóta afgreiðslu, er Alþingi kemur aftur saman í haust. Allur sá fjöldi hér á landi, sem berklarnir hafa herjað, eða eiga um sárt að binda þeirra vegna, gera nú þá kröfu til fulltrúa þjóðarinnar, þeirra, er á þingi sitja, að þeir taki mál þessi föstum og ákveðnum tökum, meti byrjendastarf S. í. B. S. að verðleikum og veiti því þann styrk, er það þarf. Allir viðurkenna, að berklarnir séu þjóðarböl, og enginn skyldi vanmeta þann skerf, sem bei’klasjúkling- amir sjálfir — í gegnum samtök sín — og allur almenningur getur lagt af mörkum í baráttunni gegn bei’klunum. Það er ekki einungis, að allur almenning- ur hafi látið gleði sína í ljósi yfir stofnun S. í. B. S., heldur hefir og fjöldi lækna heilsað þessum félagsskap sem kærkomn- um bandamanni læknastéttarinnar í bar- áttu hennar gegn berklunum, — enda lítur S. í. B. S. á sig sem slíkan aðilja fyrst og fremst. Á stofnþingi sambandsins mættu sem gestir berklayfirlæknir og læknamir af heilsuhælunum á Vífilsstöðum og Reykj- um. Allir létu þeir ánægju sína í ljósi'yfir stofnun þessara samtaka. Þá hafa og ýms- ir lækriár sýnt áhuga sinn fyrir félaginu Berklavörn hér í Reykjavík, flutt erindi á fundum þess og leiðbeint því á ýmsan hátt. Blað þetta er og ljós vottur þess, að S. í. B. S. á vinsældum að fagna meðal læknastétt- arinnar. Það kemur því óneitanlega dálítið spánskt fyrir sjónir, þegar gert er ráð fyr- ir því, í frumvarpi því til berklavarnalaga, sem landlæknir hefir lagt fyrir Alþingi, að ráðherra setji í’eglur um þennan félags- skap, svo að hann „torveldi á engan hátt berklavarnar-framkvæmdir hins opin- bera“. Við, sem að S. I. B. S. stöndum, fá- um ekki skilið, að stofnun sambandsins hafi gefið á3tæðu til slíkra ákvæða, né held- ur á hvern hátt landlæknir hyggur að fé- BERKLAVÖRN Helgí ingvársson, yfirlæknir: Um krónugjaldið og efnahagsskýrslurnar. Þegar ég var í Danmörku síðast, var nýlega búið að stofna samband danskra berklasjúklinga. Áhugi var mikill meðal sjúklinga fyrir félagsskapnum, og hafði félagið deildir í hverju berklahæli lands- ins. Ég átti tal við trúnaðarmann félags- ins í berklahæli því, sem ég dvaldi þá á. Það var ungur iðnaðarmaður, greindur og með nokkra menntun. Hann var þess fýs- andi, að stofnað yrði félag íslenzkra berklasjúklinga, en réttast taldi hann, að lagsskapur okkar geti gripið fram fyrir hendur heilbrigðisstjórnarinnar. Að sönnu mun S. 1. B. S. gera ýmsar kröfur til hins opinbera, en mæti sambandið velvild og skilningi á hlutverki þess, getur það jafn- framt orðið heilbrigðisstjórn landsins ó- metanlegur styrkur í berklavarnarstarfi hennar, — orðið „gróðafyrirtæki" fyrir ríkið, eins og læknir einn hér í borginni orðaði það um það leyti, sem sambandið var stofnað. Með blaði þessu — sem gefið er út í sain- bandi við merkjasöludag sambandsins — snýr S. I. B. S. sér til íslensku þjóðarinn- ar og heitir á hana til fulltingis í því starfi, sem það hefir nú hafið. Okkur er það vel ljóst, að án fulltingis fjöldans verður starf okkar árangurslítið. Við snúum okkur því ekki einungis til þeirra, sem eru berkla- veikir eða hafa verið það, heldur og til allra þeirra, sem telja það fært að þjóðin vinni sigur á berklunum — að hún losi sig að fullu við berklapláguna, eins og hún hef- ir sigrast á sullum og holdsveiki. Einungis með sameinuðu átaki þjóðar- innar verður takmarkinu náð. ísland berklalaust. 6

x

Berklavörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.