Berklavörn - 01.06.1939, Side 21

Berklavörn - 01.06.1939, Side 21
Jón Rafnsson: Strí ð. Stn'ð. — Þetta uggvænlega orð altekur nú hugi fólks, og váboðar þess grúfa nú yfir höfðum manna, skuggalegri og fer- legri en nokkur fárviðrisský. Mannvitið virðist nú hreykja sér hæst á brúnum skotvirkjanna og siðmenning tutt- ugustu aldarinnar stara á oss opnum augnatóftum í trylltum dauðadansi. Leiðtogar hernaðarríkjanna krefjast, hver í sínu landi, þjóðeiningar í þágu dauða og eyðileggingar á vígvöllunum og að þær taki á móti hvers konar þrenging- um og veikindaböli, sem af þessu leiðir, í einingu undirgefninnar. Hversu hamingjusöm er ekki sú þjóð, sem er laus við hörmungar styrjaldanna og getur helgað einingu sína eigin vel- ferð? Ef til vill nú gefst oss íslendingum betra tækifæri en nokkru sinni fyrr, til að meta réttilega hinn dýrmæta frið, sem við höfum enn við að búa, og koma auga á það, að í landi voru eru næg verkefni til að sameinast um, og að vér erum svo ham- ingjusamir í samanburði við aðrar þjóðir, að geta einbeitt kröftum vorum að lausn þeirra, í stað þess að færa blóðfórnir á vígvöllum. Getum vér ekki nú orðið minnugri þess en áður, að þjóð vor hefir fært ótal fórna og á enn um ýms sár að binda, þó það séu ekki skotsár, — og gert að sameign vorri skilninginn á því, að enn hefir hún sitt stríð að heyja, þó það sé ekki vopnað stríð, í orðsins einbrotnustu merkingu. Þetta er stríð íslands fyrir velferð og lífshamingju barna sinna, — barátta ís- lenzku þjóðarinnar gegn heilsufarslegri úrkynjun og undirrót hennar, skortinum, — en fyrir sköpun heilsuvænlegra lífsskil- BERKLAVÖRN yrða, svo að þjóðinni sem heild geti vegnað vel í nútíð og framtíð, — barátta, sem hún verður að heyja með auknum krafti og fyr- irhyggju, með tilliti til yfirstandandi styrjaldar. Strandhögg hvítadauðans á hendur þjóðar vorrar á tímum síðustu heimsstyrj- aldar verður varla sýnt með tölum, en tví- mælalaust hefir styrjaldareinangnm vor átt allverulegan þátt í að auka það til muna. Vér höfum því orðið að greiða okk- ar stríðsskatt frá síðustu heimsstyrjöld, þrátt fyrir hlutleysið. Á grundvelli þessara staðreynda kom- umst vér íslendingar ekki hjá því, ef vel á að fara, að heyja vort stríð fyrir heilsu- vernd þjóðarinnar. Það stríð verður að heyjast jafnt gegn orsök sem afleiðingu. Þjóðin verður því að einbeita verzlunar- getu sinni við útlönd að því marki, að hana skorti ekkert, sem hreysti hennar byggist á, um leið og það er tryggt, að heilbrigðis- málakerfi landsins geti starfað óhindrað, þrátt fyrir styrjöldina. Hvernig þjóðinni kann að takast þetta, 17

x

Berklavörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.