SÍBS fréttir - 01.02.1985, Side 2
Fylgt úr hlaði
SÍBSfréttum er ætlað að vera tengiliður milli stjórnar og
deilda og hins almenna félagsmanns. Fréttir af starfi sambandsins
og fræðsla ýmiskonar munu verða aðalefnið.
Framundan er mikið breytingaskeið í sögu SÍBS. Öll þekkjuin
við hvílíku grettistaki frumherjarnir lyftu. Árangur þess er m.a.
sá að berklar eru á undanhaldi, þó engan veginn séu þeir útdauð-
ir. Hins vegar fjölgar öðrum brjóstholssjúklingum, fólki með
lungnasjúkdóma, astma eða lungnaþembu, svo að dæmi séu
tekin, og ýmsa hjartasjúkdóma.
Hér er ekki eingöngu uin að kenna fjölgun sjúkdómstilfella.
Öllu heldur ber að þakka þetta aukinni þekkingu á sjúkdóm-
unum og framförum í læknavísindum. Með öðrum orðum,
brjóstholssjúklingum fjölgar um leið og lífslíkur þeirra aukast.
Berklasjúklingum fækkar sem sagt í Sambandi íslenskra
berkla- og brjóstholssjúklinga en að sama skapi fjölgar öðrum
brjóstholssjúklingum. Þess vegna þarf að auka samkennd þeirra
og benda á augljós sameiginleg hagsmunamál. Sú hefur enda
orðið raunin að félög lungna- og hjartasjúklinga hafa hvarvetna,
austan hafs og vestan, sameinað krafta sína í einu sterku sam-
bandi.
SÍBS var og er brautryðjandi í hagsmunamálum sjúklinga og
mun vinna að þeim svo lengi sem þörf krefur. Með reglulegri
útgáfu SÍBS-frétta er brotið blað í sögu sambands okkar. Það er
trú okkar og von að það verði til þess að efla samhug og sam-
takamátt íslenskra brjóstholssjúklinga.
Ritnefnd.
2
SÍBSfréttir