SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 12

SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 12
Fréttaskot frá Landssamtökum hj ar tasj úklinga Fyrir tilstilli formanns Landsamtaka hjarta- sjúklinga og ráðamanna S.Í.B.S. hefur orðið að ráði, að L.H.S. fái að koma að fréttapistlum í fréttabréfi S.Í.B.S. Eru félagar L.H.S. þakklátir þeim S.Í.B.S. mönnum fyrir hugulsamt boð og verður það þegið og nýtt, eftir því sem tilefni gefast. FUNDAHÖLD Á liðnu hausti og það sem af er vetri hafa verið haldnir þrír stjórnarfundir og hafa þar borið hæst fjáröflunarmálin. Ákveðið hefur verið að bretta upp ermar og hefjast handa um fjáröflun á útmánuðum og er mikill hugur í mönnum. Rúrik Halldórsson hefur verið skipaður nýr formaður fjáröflunarnefndar og með honum tveir vaskir félagar. AFHENDING HOLTERTÆKJA Pann 5. desember s.l. fór fram afhending svokallaðra Holter-tækja eða hjartasírita ásamt fylgihlutum í húsakynnum Landspít- alans. L.H.S. hafði áður gefið loforð um afhendingu þessarar gjafar og var hún afhent að viðstöddum forstjóra ríkisspítala, ráðamanna hjartadeildar, blaðamönnum og stjórnarmönnum L.H.S. Við þetta tækifæri lét formaður L.H.S., Ingólfur Viktorsson, m.a. eftirfarandi orð falla: „í samráði við prófessor Þórð Harðarson, svo og aðra hjartasérfræðinga á Landspítal- anum, var það ákveðið um mitt þetta ár af stjórn Landssamtakanna að reyna að mæta þörfum þeirra sjúklinga, sem úti á lands- byggðinni búa, með því að færa Landspítal- anum að gjöf sem allra fyrst, þrjú Holter- tæki (hjartalínurita), sem ætluð eru til þess að fylgjast með hjartsláttartruflunum sjúk- linga, ef um er að ræða, og síðan eru lesnar niðurstöður rannsóknarinnar með til þess gerðum tækjum, sem til staðar eru á Land- spítalanum. Nú er sá möguleiki fyrir hendi að senda Holtertækin hvert sem er út á land, hvenær sem þeirra er þörf, og fá þau síðan send til baka til aflestrar. Jafnframt var ákveðið að stuðla að því að sjá um að Land- spítalinn fengi nú þegar hugbúnað til aflestrar Holtertækjanna, sem hingað til hefur verið handunnið og seinvirkt, en mun með hinum nýja hugbúnaði verða afkasta- mikið og fljótvirkt, og þá um leið að sjálf- sögðu auka mjög nýtni Holtertækjanna. Eftir þessa ákvörðun stjórnarinnar var þegar hafist handa og stefnt að því að vinna þetta verkefni af sama áhuga og bjartsýni og áður. Sem fyrr var leitað til okkar ágætu félaga í samtökunum, svo og annarra góðra stuðningsmanna, og á furðu skömmum tíma tókst að Ijúka þessu mikilvæga verk- efni. Á haustdögum fréttum við að mikil þörf væri á því að Landspítalinn sendi tvo hjúkr- 12 SÍBSfréttir

x

SÍBS fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS fréttir
https://timarit.is/publication/1221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.