SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 14
og óskir um að þau komi að sem bestum
notum í bráð og lengd.“
í þakkarorðum sínum sagði prófessor
Þórður m.a.
„Hjartsláttartruflanir eru algengasta dán-
arorsök hjartasjúklinga. Þær ber að með
ýmsum hætti, stundum fyrirvaralaust, en
gera þó oft boð á undan sér. Slík forboðs-
einkenni eru oftast tíð aukaslög eða runur af
aukaslögum. Heilbrigðir finna að vísu oft
fyrir aukaslögum og eru þau talin saklaus ef
sjúkdómur í hjarta liggur ekki að baki. Hins
vegar geta aukaslög verið varhugaverð hjá
sjúklingum með kransæðasjúkdóma eða
nýlegt hjartadrep.
Það tekur að jafnaði 15-45 sekúndur að
skrá venjulegt hjartarit og því undir hælinn
lagt hvort skammvinnar hjartsláttartruflanir
koma fram á slíku riti. Við venjulegar
aðstæður fara þær því oft fram hjá læknum.
Með tilkomu Holterskráningar hafa
þessar aðstæður gjörbreyst. Nú er hægt að
skrá hjartsláttinn á lítið segulbandstæki sem
spennt er um mitti sjúklings. Skráningin
tekur oftast 24 stundir. Segulbandið er síðan
lesið með sextugföldum hraða í Holtertölvu
og annast það tæknimenn eða sjálfvirkur
búnaður í tölvunni. Allar alvarlegar eða
grunsamlegar taktbreytingar eru skráðar á
pappírsstrimil til frekari greiningar. Allmik-
ill fjöldi hjartasjúklinga hefur við þessa
rannsókn reynst hafa alvarlegar hjartsláttar-
truflanir. Einnig mætti nefna að oft finnst
með Holterskráningu tímabundin stöðvun
á hjartslætti en slíkt er algeng orsök aðsvifa
og yfirliðs."
Þá sagði prófessor Þórður Harðarson að
þessi höfðinglega gjöf yrði nú til þess að
unnt yrði að taka upp þjónustu við hjarta-
sjúklinga hvar á landinu sem væri og yrði
miðstöð þeirrar þjónustu á Landspítalanum.
Að loknum ræðuhöldum, viðtölum
blaðamanna, myndatökum o.fl. þágu gestir
veitingar í boði stjórnar ríkisspítalanna, sem
hér með er þakkað.
Þess skal getið í lok þessa stutta spjalls, að
stjórn L.H.S. hefur satnþykkt að haldinn
verði almennur félagafundur í febrúar n.k.
og verða þá væntanlega tíunduð fyrirhuguð
verkefni samtakanna. Að svo mæltu senda
stjórnarmenn félögum og öðrum velunn-
urum samtakanna bestu nýárskveðjur.
b. bjarman.
* .................. *
Félagsvist
SÍBS deildin í Reykjavík
heldur félagsvist í Hátúni lOa, 9. hæð,
þriðjudagana 12. febrúar og 12. mars nk. kl. 20.30.
Kaffiveitingar kosta kr. 50,00.
Góðir og eigulegir vinningar.
Allir velkomnir.
SÍBS deildin í Reykjavík.
14
SÍBSfréttir