SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 16
að reykja. Réttur hinna hefur þá gleymst.
Það stendur þó vonandi til bóta með nýjum
lögum um tóbaksvarnir.
Matarofnæmi er svolítið snúið við fyrstu
kynni. Að fá kláðabletti, exem eða opin sár
af því að borða baunir! Höfuðverk og sjón-
truflanir af ávöxtum! Að smábarn megi alls
ekki fá kúa- eða þurrmjólk, egg, fisk, ávexti
og allt þetta holla! Þessu eiga ýmsir erfitt
með að kingja.
Matarofnæmi, ja svei, þetta er ekkert
annað en helvísk matvendni!
Ofnæmi af málmum er velþekkt. Nikkel-
ofnæmi er einna algengast.
Alltof oft eru óvandaðir (óekta) lokkar
settir (í göt) í eyru stúlkubarna. Sýrur úr
líkamanum og sviti eyða þunnri húðuninni
og skaðinn skeður. Nikkel er allsstaðar, í
smápeningum og bréfaklemmum, skart-
gripum og hurðarhúnum, rennilásum og
vatnskrönum. Listinn er endalaus. Ein-
kennin koma víða. Útbrot eða exem á mag-
anum, af tölunni á gallabuxunum. Á eyrun-
um, andlitinu og í hársrótinni, af eyrna-
lokkunum. Á höndunum vegna sífelldrar
ertingar af smápeningum, verkfærum, eld-
húsáhöldum, o.s.frv. o.s.frv.
Ég gæti haldið áfram út í það óendanlega
að lýsa ofnæmiseinkennum. Hins vegar er
öllu erfiðara að lýsa sálarástandi þess sem
ver allri sinni orku í að ná andanum milli
hóstakviðanna. Eða þess sem ekkert getur
snert vegna sviða, kláða eða þrota. Eða
unglingsins sem ekki þorir á skemmtistaði
með félögum sínum út af reykjarsvælunni.
Eða. Eða. Slíku er ekki hægt að lýsa.
EN ÞAÐ ER HÆGT AÐ REYNA AÐ
SKILJA
En astmi, er það ekki nýr sjúkdómur
hér?Af hverju eru öll þessi börn allt í einu
komin með astma? Maður varð ekkert var
við slíkt í mínu ungdæmi.
Þegar stórt er spurt verður oft fátt um
svör.
Svo mikið þykist ég þó vita, að astmi er
ekki ný bóla hér, öðru nær. Það að fleiri
virðast hafa astma en áður, stafar fremur af
því að þekking á honum og meðferð er á
hærra stigi en áður í dag og fer sífellt batn-
andi. Lífslíkurnar aukast dag frá degi.
Börn, og fullorðnir auðvitað einnig, dóu
hér áður fyrr úr allskyns sjúkdómum.
Lungnaveiki, brjóstamein, brjóstþyngsli,
innantökur, hósti, jafnvel tæring. Svona
má lengi telja. Hve mikið af þessu var
astmi? Við vitum líka að ef mótstaðan er
veik leggjast sjúkdómar þyngra á fólk.
16
SÍBSfréttir