Fréttatíminn - 15.07.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 15. júlí 2016
www.husgagnahollin.is
558 1100
Þú finnur útsölubæklinginn
á www.husgagnahollin.is Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
ÚTSALA
Sumar
afsláttur
60%Allt að
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Ljós- og dökkgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 231 × 140 × 81 cm 89.990 kr. 119.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
30%
ÖLL SMÁVARA
FRÁ IVV
SALLY
Hægindastóll PU-leður
Litir: Brandy, brúnn
og svartur.
29.990 kr. 39.980 kr.
AFSLÁTTUR
25%
KIRUNA
U-sófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökkgrátt
slitsterkt áklæði. Stærð: 301 × 200 × 78 cm
179.990 kr. 239.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
NEPTUN
Borðstofustóll.
Eik og krómlappir.
10.990 kr. 14.990 kr.
AFSLÁTTUR
26%
ÚTSALA
Sumar
á dögunum að ekki hafi verið farið
að lögum í tengslum við byggingar á
landi hans og að öll viðbrögð borg-
arinnar varðandi málsmeðferðina
væru beinlínis handahófskenndar.
Þannig hafa borgaryfirvöld áður
fjarlægt óleyfismannvirki af landi
Hrafns.
Járnblómahörgur, ekki bátaskýli
Svo segir einnig orðrétt í álitinu:
„Þá verður einnig talið afar ámælis-
vert að umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurbogar hafi ekki sinnt
því að grípa til aðgerða í samræmi
við þær ákvarðanir sem teknar
hafa verið í málum varðandi lóðina
að Laugarnestanga og svæðið þar
í kring. Er vandséð hvernig mark-
miðum laga á sviði skipulags- og
byggingarmála verði náð með slíku
aðgerðar- og sinnuleysi af hálfu
Reykjavíkurborgar.“
Meðal bitbeina í áliti umboðs-
manns er nokkuð sem hann nefnir
bátaskýli. Það er þó rangnefni, enda
húsið heilagt, að sögn Hrafns, og
það staðfestir Hilmar Örn Hilmars-
son allsherjargoði sem hefur haldið
nokkrar vígsluathafnir í skýlinu,
sem ber nafnið Járnblómahörgur.
Hörgur er heiðið blóthús eða blót-
stallur.
Augnayndi fyrir húmorista
„Ég segi bara við þig, það er alltaf
gott þegar það koma ungir ofur-
hugar, og það er þakklátt, en þá
verða menn líka að þekkja for-
söguna,“ segir Hrafn sem tekur
málinu af stóískri ró, enda sjálfur
að takast á við flensu þegar viðtalið
var tekið.
„Þetta er bara guðshús og það
hefur engan praktískan tilgang
fyrir mig. Það stendur bara þarna
og er eflaust augnayndi fyrir þá
sem hafa húmor fyrir svona lagað,
menn verða að hafa húmor,“ seg-
ir Hrafn ennfremur, en svo virðist
sem borgaryfirvöld deili ekki sama
skopskyni, en í versta falli verður
hörgurinn fjarlægður á kostnað
Hrafns.
Dálítið afstætt hugtak
Hilmar Örn Hilmarsson allsherj-
argoði sagði í samtali við Frétta-
tímann að hann hefði haldið fjórar
vígsluathafnir í hörgnum.
„Ég hef meðal annars gef-
ið sonum Hrafns nafn,“ útskýr-
ir hann. Spurður hvort þarna sé
um heilagan stað að ræða, svarar
Hilmar því til að það sé á dálítið
gráu svæði. „Þetta er eins og með
kirkjugriðin, dálítið afstætt hug-
tak,“ segir Hilmar Örn.
„Hugmyndin var nú samt sú að
heiðnir menn hefðu aðgang að
þessum hörg og gætu notað hann
ef þeir vildu undir athafnir. Hrafn
lagði því mikið upp úr því að húsið
væri helgað,“ útskýrir Hilmar.
Hvern á hörgurinn að særa?
Hann segist ekki geta ímyndað sér
að hörgurinn sé fyrir nokkrum
manni, „og ég skil ekki í rauninni
hvern hörgurinn ætti að særa,“
bætir Hilmar við.
Spurður hvort það kæmi til
greina að ásatrúarmenn hlutuðust
til um hörginn með formlegum
hætti, verði niðurstaðan sú að það
eigi að rífa hann, svarar Hilmar:
„Ég sé ekki að við gætum gert það.
En ef svona staðir eru skemmdir,
þá er það tilfinningalegur skaði
fyrir okkur. Ef ég tala fyrir sjálf-
an mig, þá þætti mér leiðinlegt ef
hann yrði rifinn.“
Íbúinn í hörgnum
Blaðamaður ákvað að fara með
ljósmyndara að hörgnum til þess
að skoða hann betur og átta sig á
aðstæðum. Það er óhætt að full-
yrða að hörgurinn sé nokkuð
vígalegur með ryðguðu stáli ofan
á þakinu og veðruðum turni. Það
var þá sem blaðamaður hitti Alsír-
inginn Jozef, sem sat í makindum í
hörgnum og naut veðursins.
Jozef talaði litla sem enga ensku
en þó kom í ljós í örstuttu spjalli
við Jozef að hann héldi til í hörgn-
um.
„Ég bjó á Hringbrautinni, svo
missti ég það. Þá reyndi ég að
vera í gistiskýlinu, en það var ekki
nógu gott,“ útskýrði hann. Spurð-
ur hvort hann héldi til í hörgnum,
með samþykki Hrafns, brosti hann
breitt og svaraði játandi.
„Hann er frábær náungi. Hann
sest stundum hérna með mér,“
sagði Jozef og benti á stól við
borðið þar sem hann sat.
Óðinn og Freyr gæta hörgsins
Jozef segist hafa komið frá Frakk-
landi og vera með franskt vegabréf,
hann væri í vinnu, en það væri
erfitt að finna húsnæði í borginni
sem væri viðráðanlegt. Þangað
til héldi hann til í hörgnum hjá
Hrafni.
Samkvæmt síðustu fundargerð
umhverfis- og skipulagsráðs mun
málsmeðferð gegn Hrafni hefjast á
ný og fær hann til þess lögbundinn
andmælarétt. Fari málið á versta
veg þarf að rífa niður mannvirkið.
Bæði hörginn sem og fleiri mann-
virki á lóðinni.
Hrafn tekur þó fálega í málið
og segir að lokum: „Ef menn vilja
brjóta niður guðshús, þá hugsa ég
bara til Óðins, sem er inni í hörgn-
um, og Freys, en ég á von á að álf-
ar og tröll og fleira furðufólk, sem
leitar oft í minn félagsskap, passi
upp á hörginn.“
„Ef menn fá eitthvert stórkostlegt
kikk út úr því að brjóta niður guðs-
hús, þá brjóta þeir það bara niður,“
segir kvikmyndaleikstjórinn Hrafn
Gunnlaugsson, en minnisblað var
samþykkt á fundi umhverfis- og
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar
á dögunum um að gefa á Hrafni
kost á að fjarlægja svokölluðu
óleyfismannvirki af lóð sinni innan
ákveðins tímafrests.
Það er óhætt að fullyrða að Hrafn
hafi sett Reykjavíkurborg í ákveðið
stjórnsýslulegt uppnám en um-
boðsmaður borgarbúa úrskurðaði
„Þetta er eins og með
kirkjugriðin, dálítið
afstætt hugtak.“
Hörgurinn
er vígður af
allsherjargoða.
Myndir | Hari
Borgin vill fjarlægja ólöglegan hörg
Samfélagsmál Reykjavíkur-
oborg krefst þess að skýli á
lóð Hrafns Gunnlaugssonar
verði fjarlægt. Skýlið var vígt
af allsherjargoða og er nú
híbýli Alsírings.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Jozef segist búa í hörgnum að öllu jöfnu.