Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2017, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 14.02.2017, Qupperneq 12
Bournem. - Man. City 0-2 0-1 Raheem Sterling (29.), 0-2 Tyrone Mings, sjálfsmark (69.). Nýjast Enska úrvalsdeildin Efst Chelsea 60 Man. City 52 Tottenham 50 Arsenal 50 Liverpool 49 Neðst M’Brough 22 Leicester 21 Hull 20 C. Palace 19 Sunderland 19 Í dag 19.30 PSG - Barcelona Sport 2 19.30 Benfica - Dortmund Sport 21.45 Meistaramörkin Sport freydís halla fór áfram freydís halla einarsdóttir komst áfram upp úr undankeppninni í stórsvigi kvenna á hm í alpa­ greinum sem fer fram í st. moritz í sviss. freydís halla var með níunda besta tímann í undan­ keppninni en 25 af 74 keppendum komust áfram. hún var saman­ lagt með tímann 2:01,14 mínútur. freydís halla keppir í úrslitum á fimmtudagsmorguninn. andrea Björk Birkisdóttir tók einnig þátt í undankeppn­ inni og lenti í 30. sæti á tímanum 2:08,22 mínútum. hún komst ekki áfram í úrslit. möguleiki á grannaslag dregið var í undan­ úrslit í Coca­ Cola­bikarnum í handbolta í gær. möguleiki er á hafnarfjarðar­ slag í úrslitum í karlaflokki en fh og haukar drógust ekki saman í undanúrslitunum. fh mætir bikarmeisturum Vals en haukar mæta aftureldingu. í kvennaflokki mæta bikarmeistarar stjörnunnar selfossi. haukar og fram eigast svo við í hinum undanúrslita­ leiknum. undanúrslitin í kvenna­ flokki fara fram fimmtudaginn 23. febrúar. karlaleikirnir eru daginn eftir. Úrslitaleikirnir fara svo fram laugardaginn 25. febrúar. allir leik­ irnir verða í laugardalshöllinni. guðrÚn karítas í kr guðrún karítas sigurðardóttir, sem var valin efnilegasti leikmaður Pepsi­deildar kvenna 2014, er gengin í raðir kr frá stjörnunni. guðrún er uppalinn hjá ía en hefur verið í herbúðum stjörn­ unnar undanfarin tvö ár. hún varð íslandsmeistari með stjörnunni í fyrra og bikarmeistari árið á undan. kr, sem endaði í 7. sæti Pepsi­deildarinnar í fyrra, hefur blásið í herlúðra í vetur og fengið marga sterka leikmenn til liðs við sig, m.a. landsliðskonurnar hólm­ fríði magnúsdóttur og katrínu ómarsdóttur. Guðni Bergs: Atvinnu- maður á Englandi í 20 ár. Verður lögmaður á meðan. Bjargar mannslífi. Verður formaður KSÍ. Fín ferilskrá. Forseti næst?. Guðmundur Reynir Gunnarsson @mummi21 Bikarinn á loft Bjarni Ólafur Eiríksson, fyrirliði Vals, lyftir Reykjavíkurbikarnum eftir 1-0 sigur á Fjölni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í Egilshöll í gærkvöldi. Eina mark leiksins var sjálfsmark. Þetta er í 22. sinn sem Valsmenn verða Reykjavíkurmeistarar. FréttaBlaðið/vilhElM Reykjavíkurmeistaratitill númer 22 1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r12 s p o r t ∙ f r É t t a b L a Ð I Ð Sport fótboLtI meistaradeild evrópu í fótbolta læðist nú aftan að spark­ áhugamönnum en það gerir hún með látum. sextán liða úrslitin fara af stað í kvöld en tvær stærstu viður­ eignir fyrstu umferðar útsláttar­ keppninnar eru báðar í þessari viku. í kvöld eigast við frakklands­ meistarar Paris saint­germain og spánarmeistarar Barcelona en bæði lið eru í miklu stuði heima fyrir og hafa ekki tapað leik í langan tíma. annað kvöld fær arsenal svo Bayern münchen í heimsókn í fyrri leik liðanna. enn eina ferðina þarf arsenal að kljást við einn af risum evrópu strax í fyrstu umferð en sex ár eru síðan liðið komst lengra en í 16 liða úrslit. Meistarar í öðru sæti stemningin í París er mikil fyrir stórleik Psg og Barcelona en þjálf­ ari liðsins, unai emery, hefur talað mikið um leikinn á síðustu blaða­ mannafundum. emery gerði sevilla að evrópudeildarmeisturum síðustu þrjú ár en hefur sjálfur viðurkennt að viðureign eins og þessi, í 16 liða úrslitum meistaradeildarinnar á móti einu allra stærsta liði heims, sé einmitt ástæðan fyrir því að hann tók við starfinu hjá Paris saint­ germain. Bæði lið eru sjóðheit heima fyrir. Psg er búið að vinna ellefu af síðustu tólf leikjum og er enn á lífi í báðum bikarkeppnunum í frakklandi. lærisveinar emery nálgast toppsætið óðfluga en þeir eru nú aðeins þremur stigum á eftir monaco þegar nóg er eftir af deildinni og er liðið mjög líklegt til að vinna titilinn fimmta árið í röð. Barcelona er einnig í öðru sæti spænsku 1. deildarinnar þar sem real madrid er í kjörstöðu á toppn­ um. Börsungar eru komnir í úrslita­ leik spænska konungsbikarsins og eru búnir að vinna átta af síðustu ellefu leikjum og ekki tapa einum einasta. Þessi lið mættust síðast í útsláttar­ keppninni fyrir tveimur árum, þá í átta liða úrslitum. Þar hafði Barce­ lona betur, nokkuð auðveldlega, 5­1, eftir 3­1 sigur í París og 2­0 sigur á heimavelli. neymar skoraði þrjú af fimm mörkum Barcelona í ein­ víginu en hann hefur ekki verið með markaskóna reimaða fasta á þessari leiktíð. thiago silva, miðvörður og fyrir­ liði Psg, sneri aftur eftir meiðsli um helgina og ætti að byrja leikinn sem eru góðar fréttir fyrir Psg. Sjö ár í röð hjá Skyttunum? Það verður seint sagt að arsenal hafi verið heppið með drátt í 16 liða úrslitum meistaradeildarinnar undanfarin ár. Það er búið að falla úr keppni á þessu stigi keppninnar sex ár í röð en í fjögur af þessum sex skiptum hefur liðið annaðhvort mætt stórveldunum Barcelona eða Bayern münchen. nú er það Bayern í þriðja sinn á síðustu sjö árum. Það þýðir þó lítið að gráta það enda þurfa allir að vinna þá bestu til að fagna sigri í meistaradeildinni. arsenal tapaði líka fyrir monaco fyrir tveimur árum þegar það átti að vera stóra liðið og þá töpuðu skyttur Wengers fyrir aC milan fyrir fimm árum. Þar tapaði arsenal fyrri leiknum 4­0 en var ekki langt frá því að koma til baka á emirates­ vellinum þar sem það vann leikinn, 3­0. Það var ekki nóg. alltaf með en enginn árangur arsene Wenger hefur stýrt arse­ nal í 21 ár og nú komið liðinu í meistaradeildina 19 sinnum í röð. hann hefur fengið mikið lof fyrir það og margir stuðningsmenn lundúnaliðsins verja hann einmitt vegna þess að liðið er fastagestur í meistaradeildinni sem er djúpur tekjubrunnur. árangur Wengers í meistaradeild­ inni er lítill sem enginn. liðið hefur ekki komist upp úr 16 liða úrslit­ unum sex ár í röð og ekki komist í undanúrslit síðan 2009 þegar það tapaði fyrir manchester united, 4­1 samanlagt. Það er aðeins í annað af tveimur skiptum sem arsenal komst í undanúrslit. í hitt skiptið unnu skytturnar og fóru alla leið í úrslitin þar sem liðið tapaði fyrir Barcelona. arsene Wenger hefur aldrei á ferli sínum unnið evróputitil og leiðin verður ströng að þessu sinni. Það væri bara ágætis byrjun fyrir frakk­ ann að koma sínum mönnum í átta liða úrslitin. tomas@365.is Byrjar aftur með látum Meistaradeild Evrópu í fótbolta fer aftur af stað í kvöld eftir ríflega tveggja mánaða pásu. Útsláttarkeppnin fer svo sannarlega af stað með krafti því í kvöld mætast PSG og Barcelona og á morgun Arsenal og Bayern. Kveður Wenger enn eina ferðina í 16 liða úrslitum? FréttaBlaðið/aFP 6 ár í röð hefur Arsenal verið slegið út í 16 liða úrslitum. 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 A -D B 1 4 1 C 3 A -D 9 D 8 1 C 3 A -D 8 9 C 1 C 3 A -D 7 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.