Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 2
Valentínus sækir í sig veðrið
„Konudagurinn er alltaf stærstur en Valentínusardagurinn fer mjög ört stækkandi,“ segir Díana Allansdóttir deildarstjóri Blómavals í Skútuvogi.
Valentínusardagurinn er í dag og gera margir vel við ástina sína af því tilefni. „Á Valentínusardeginum vilja menn helst rósir en á konudeginum eru
blómvendir vinsælastir. Viðskiptavinahópurinn er einnig mismunandi. Íslendingar koma frekar á séríslenska konudeginum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Veður
Í dag er útlit fyrir suðaustanátt og
rigningu víða á sunnan- og vestanverðu
landinu. Það rignir fram eftir kvöldi á
Suðurlandi og í nágrenni höfuðborgar-
innar. sjá síðu 16
Aðalfundur Korpúlfa verður haldinn miðvikudaginn 22. febrúar 2017
kl. 13:00 í Borgum, Spönginni 43, Reykjavík.
Dagskrá fundarins :
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári 2016.
3. Ársreikningar félagsins fyrir árið 2016, kynntir og fyrirspurnum svarað.
4. Lagabreytingar og afgreiðsla tillagna.
5. Þakkir til fráfarandi stjórnar og nefndarmanna
6. Uppstillingarnefnd kynnir tillögur sínar að nýjum nefndar og
stjórnarmönnum Korpúlfa
7. Kosning stjórnar og nefndarmanna
8. Ný stjórn og 4 nefndir kynntar fundargestum
9. Korpusystkin munu skemmta með söng
10. Upplestur frá menningarnefnd Korpúlfa
11. Önnur mál
Vonumst til að sjá sem allra flesta.
Stjórn Korpúlfa.
AÐALFUNDUR KORPÚLFA
SAMTAKA ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI ÁRIÐ 2016.
umhverfismál Björt Ólafsdóttir,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
tekur undir með starfsmönnum
Þingvallaþjóðgarðs sem hafa bent
á að skoða þurfi betur aukna stýr-
ingu í Silfru til að afstýra sem mest
má hörmulegum slysum á borð við
það sem varð um helgina þar sem
ferðamaður á vegum ferðaþjónustu-
fyrirtækis lét lífið. Þetta segir í svari
Bjartar við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Björt segir að þessi mál séu til
skoðunar hjá Þingvallaþjóðgarði
sem hafi unnið að frumvarpi um
starfsemi innan garðsins. Þau frum-
varpsdrög séu væntanleg til ráðu-
neytisins. „Brýnt er að skerpa á því
hvernig ferðaþjónustuaðilar nýta sér
svæði innan þjóðgarðsins með þeirri
miklu aukningu á aðsókn sem verið
hefur undanfarin misseri og áfram
er útlit fyrir að verði,“ segir í svarinu.
Ólafur Örn Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, vill taka
upp eftirlit við Silfru með öryggis-
vörðum sem stæðu vaktir þar. Til að
standa undir kostnaði við slíkt eftir-
lit þyrfti þjóðgarðurinn að hækka
gjald fyrir köfun úr 1.000 krónum í
1.500 krónur. „Öryggismálin snúa
að Samgöngustofu og með því að
hækka gjaldið um 500 krónur þá er
hægt að fá laun fyrir tvo menn sem
á vöktum gætu staðið þarna,“ segir
Ólafur. Hann segist hafa átt marga
góða fundi um þetta með Sam-
Umhverfisráðherra vill
stýra umferð í Silfru
Karlmaður lést í Silfru á sunnudaginn eftir að hann hafði verið að snorkla þar með
hópi fólks. Þjóðgarðsvörður vill taka upp stífara eftirlit. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
göngustofu og fleiri fundir verði
haldnir á næstunni. Þjóðgarðurinn
hafi fengið fyrirtæki sem heitir Lota
til þess að gera úttekt á því hvernig
staðið yrði að svona eftirliti með
valdheimildum. Hann vilji leggja þá
úttekt fram á næsta fundi með Sam-
göngustofu.
Þórhildur Elín Elínardóttir, upp-
lýsingafulltrúi Samgöngustofu, segir
hins vegar að hinn stjórnsýslulegi
eftirlitsþáttur Samgöngustofu nái
ekki til þess að vera með eftirlits-
menn við ferðaþjónustufyrirtæki,
enda væri það víðtækara en hlutverk
Samgöngustofu í dag. „Þá þyrftum
við að vera með eftirlit við Jökulsár-
lón og öll „river rafting“-fyrirtæki og
á öllum bryggjum þar sem stund-
aðar eru hvalaskoðunarferðir eða
útsýnissiglingar. Þetta væri þá orðið
mjög víðtækt,“ segir Þórhildur Elín.
Samgöngustofa heyrir undir sam-
gönguráðherra. Jón Gunnarsson,
ráðherra málaflokksins, segist vera
að afla sér upplýsinga um málið úr
ráðuneytinu og frá Samgöngustofu.
jonhakon@frettabladid.is
Umhverfisráðherra segir
brýnt að skoða hvernig
ferðaþjónustufyrirtæki
nýta sér Þingvelli. Þjóð-
garðsvörður vill að Sam-
göngustofa hafi öryggis-
verði við Silfru sem hafi
eftirlit með starfseminni
sem þar fer fram.
samgöngur Guðný Halldórsdóttir,
kvikmyndaleikstjóri í Melkoti, legg-
ur til að Þingvallavegur verði ekki
endurbyggður í Mosfellsdal eins
og til stendur heldur verði færður
suður í sitt gamla vegstæði um Mos-
fellsheiði.
Í athugasemd við nýja deiliskipu-
lagstillögu segir Guðný nýjan veru-
leika kominn upp. Hún segir 98
prósent þeirra sem fara um Þing-
vallaveg vera ferðamenn að fara
Gullna hringinn svokallaða. Stans-
laus umferð hafi verið á jóladag.
Fyrir fimm árum hafi ekki sála verið
á ferð á þeim tíma.
„Allt hófst þetta fyrir alvöru þegar
vegurinn yfir Lyngdalsheiði var
lagaður og betrumbættur. Þá jókst
umferðin rosalega,“ skrifar Guðný.
Betrumbætur á veginum um Kjósar-
skarð og Uxahryggi eigi eftir að
auka álagið af gegnumstreymi bíla
enn frekar. Hún nefnir blómlega
Guðný Halldórsdóttir vill nýjan
Þingvallaveg burt úr Mosfellsdal
Guðný
Halldórsdóttir
kvikmyndaleik-
stjóri í Melkoti
starfsemi víða um Mosfellsdal sem
muni gjalda fyrir áformuð hring-
torg, undirgöng og nýja vegi innan
sveitarinnar.
„Hætt er við að þessi búsældar-
legasti hluti sveitarinnar láti á sjá
með þeim risavöxnu samgöngu-
mannvirkjum sem fyrirhuguð eru
– einungis með það í huga að liðka
fyrir gegnumstreymi til Þingvalla
og austur í sveitir,“ segir í bréfi Guð-
nýjar sem vill að frekar verði horft
til vegstæðis gamla Þingvallavegar-
ins. Hann var lagður 1890-1896 og
liggur austur yfir Mosfellsheiði frá
Geithálsi. – gar
sjávarútvegur Fimm norskir
loðnubátar lönduðu í Neskaupstað
í lok síðustu viku og unnið var á
vöktum í fiskiðjuveri Síldarvinnsl-
unnar alla helgina.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar
segir jafnframt að vinnslu afla sem
barst fyrir helgina hafi lokið aðfara-
nótt mánudags, en ekkert lát er þó
á komum norskra loðnuskipa til
Neskaupstaðar og höfðu fimm skip
tilkynnt komu sína í gær – með um
1.700 tonn. Vel gengur að vinna
loðnuna í fiskiðjuverinu og er hrá-
efnið ágætt, segir í fréttinni.
Polar Amaroq landaði ennfremur
fullfermi af frosinni loðnu, 610
tonnum, í frystigeymslur Síldar-
vinnslunnar á laugardag en skipið
hefur að undanförnu verið við
loðnuleit ásamt skipum Hafrann-
sóknastofnunar auk þess leggja
stund á veiðar. – shá
Tíðar komur
loðnuskipa
1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
A
-B
D
7
4
1
C
3
A
-B
C
3
8
1
C
3
A
-B
A
F
C
1
C
3
A
-B
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K