Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Page 3
Nýjar
áherslur í
atvinnumálum
Kvennalistakonur eru jafnan
gagnrýndar fyrir að taka ekki á
þeim málum sem ,,mestu
máli“ skipta svo sem atvinnu-
og fjármálum. Þetta er ekki
rétt. Við gerum okkur að sjálf-
sögðu fulla grein fyrir að næg
og örugg atvinna er nauðsynleg
og undirstaða þess að blómlegt
mannlíf fái þrifist.
Þátttaka kvenna í atvinnulíf-
inu hefur farið gífurlega vax-
andi síðustu tvo áratugi. Konur
bera að miklu eða öllu leyti
uppi fjölmargar atvinnugrein-
ar. Þar er fyrst og fremst um að
ræða hin hefðbundnu kvenna-
störf, sem lúta að umönnun,
uppeldi og fræðslu, svo og við
fiskvinnslu. Konur hafa þó
haslað sér völl á öllum sviðum
atvinnulífsins, en þær hafa hins
vegar lítinn þátt átt í mótun
þess — enda ekki hafðar með í
ráðum.
Kvennalistakonur telja
íslendinga fyrst og fremst mat-
vælaframleiðendur og að
leggja beri áherslu á fram-
leiðslu úr innlendu hráefni.
Við viljum varðveita landið
okkar fyrir mengun og náttúru-
spjöllum og erum á móti allri
stóriðju. Við viljum að mann-
legi þátturinn sé ekki minna
metinn við mótun atvinnulífs
en fjárhagslegur hagnaður. Við
teljum að menntun, þekking og
reynsla sé grundvöllurinn að
uppbyggingu atvinnulífsins.
Síðast liðin tvö ár hefur orðið
samdráttur í atvinnu á íslandi.
Venjan er að atvinnuleysi bitn-
ar alltaf verst á konum. Bæjar-
félagið og þeir sem því stjórna
þurfa að vera vakandi fyrir nýj-
um atvinnumöguleikum, til
þess að allir íbúar bæjarins hafi
næga atvinnu við sitt hæfi, svo
og til þess að laða fólk til bæj-
arins og skapa bænum þar með
meiri tekjur. Við viljum að sér-
stakt átak verði gert til upp-
byggingar atvinnufyrirtækja í
bænum og þá með sérstöku til-
liti til atvinnuþátttöku kvenna.
Við viljum að konum verði
veitt aðstoð og skapaðar nauð-
synlegar forsendur til að stofna
ýmis konar lítil fyrirtæki í
framleiðsluiðnaði, verslun,
þjónustu og ferðamannaiðn-
aði.
Konur hafa mikla reynslu af
að reka og stjóma litlum fyrir-
tækjum — heimilunum. Hin
hagsýna húsmóðir hefur sýnt
það og sannað að henni er
treystandi til að fara með fjár-
mál heimilisins og því þá ekki
eins fjármál stærri fyrirtækja.
Úr stefnuskránni
Kvennalistinn vill:
að allir íbúar bæjarins hafi atvinnu við sitt hæfi.
að konum verði veitt sérstök aðstoð og skapaðar nauðsyn-
legar forsendur til að stofna lítil fyrirtæki i framleiðslu og
þjonustu.
að Kópavogsbær hafi forgöngu um að bjóða starfsfólki sínu
upp á sveigjanlegan vinnutíma.
að aldraðir geti stundað störf við hæf i eins lengi og þeir óska.
að gert verði átak varðandi ferðamannaiðnað í bænum.
OKKAR KONA SPURÐ
„Hvað segir þú um þá staðhæfingu fólks að Kvennalistakonur sinni
eingöngu hinum s.k. „mjúku málum“.
„Elsku vinan, ég ætla bara rétt að vona að þú gerir þér grein íyrir að
þær sinna öllum málum. En segðu mér annars hvað er það sem kallað
er „mjúku málin“ og hvað er mikilvægast?
— það að láta enda ná saman,
— það að hafa áhyggjur af því allan daginn hvernig börnunum reiði af,
— það að börnin skuli þurfa að fara fram og aftur oft á dag í skólann af
því að hann er ekki einsetinn,
— það að lifa og starfa í samfélagi þar sem kvennastörf eru eins lítils
metin og þau eru í dag,
— það að lifa í samfélagi þar sem börn og gamalmenni eru sett til hliðar,
„Mjúku málin" eru frá mínum bæjardyrum séð lang mikilvægustu
málin. Þó við köllum þau mjúk þá eru þau ekki síður mikilvæg en þessi
s.k. „hörðu mál“. Það eru „mjúku málin“ sem brenna á okkur daglega.
Það eru þau sem eru aðalatriðið.
ra
Atvinnumiölun
skólafólks
í Kópavogi
Fyrirtæki og
stofnanir
Fyrirtækjum og stofnunum í
Kópavogi er bent á atvinnumiðlun
skólafólks í bænum, vanti þau
starfsmenn, annað hvort tímabundið
eða í allt sumar.
Nánari upplýsingar í síma 642112
milli kl. 10—12 f.h. og 14—15.
Vmnumiðlun Kópavogs
3