Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Síða 9

Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Síða 9
KVENNAFRAMBOÐ Á ÍSLANDI Eru þau tímaskekkja? „Hið mikla fylgi kvenna- lista á íslandi er einsdæmi í gjörvallri sögu kvenréttinda- hreyfínga.“ (bls. 12). Þetta segir Auður Styrkársdóttir, fé- lagsfræðingur í bók sinni Kvennaframboðin 1908— 1926. Bókin var skrifuð fyrir rúmum 10 árum þegar ekki var annað að sjá en sérframboð íslenskra kvenna heyrðu sög- unni til. Svo var þó ekki eins og alþjóð er kunnugt, íslenskar konur sváfu aðeins Þyrnirósar- svefni — í rúma hálfa öld — en vöknuðu þá alhressar, tóku upp þráðinn þar sem hann hafði fallið niður og settu upp í nýjan vef. Kvennaframboðin nýju höfðu litið dagsins ljós með framboðum í sveitarstjórnar- kosningum í Reykjavík og á Akureyri vorið 1982. Eldri framboðin Kvennaframboðin eldri stóðu samfleytt í 18 ár, frá 1908, þegar konur í Reykjavík buðu fram lista til bæjarstjórn- arkosninga og fengu fjórar konur kjörnar, til 1926, er kon- ur buðu hið síðara sinn fram lista í kosningum til Alþingis. Þá náði engin kona kjöri og þar með varð hlé á kvennafram- boðum í langan tíma. A þess- um 18 árum buðu konur fimm sinnum fram í bæjarstjórnar- kosningum í Reykjavík, þrisv- ar sinnum á Akureyri og einu sinni á Seyðisfirði. Konur buðu tvisvar sinnum fram í alþingis- kosningum, 1922 og 1926. í fyrra skiptið stóðu mörg kvennasamtök að listanum. Hann hlaut mikið fylgi eða 22.4% greiddra atkvæða og kom þar með á þing fyrstu íslensku konunni sem þar tók sæti. Það var Ingibjörg H. Bjarnason sem síðar gekk til liðs við stjórnmálasamtök karla til þess að koma Land- spítalamálinu í höfn. I síðara skiptið stóð Kvenréttindafélag Islands eitt að framboðinu. Listinn hlaut aðeins 3.5% greiddra atkvæða og kom ekki konu að. Þar með lögðust kvennaframboð af um tíma. Nýju framboðin Þau voru endurvakin árið 1982 en þá buðu konur í Reykjavík og á Akureyri fram sérstaka kvennalista í sveitar- stjórnarkosningum það ár og náðu tvær konur kjöri á hvor- um stað. I alþingiskosningum árið eftir buðu konur fram í þremur kjördæmum, Reykja- vík, Reykjaneskjördæmi og Norðurlandskjördæmi eystra. Tvær konur náðu kjöri í Reykjavík, ein á Reykjanesi en engin á Norðurlandi. í sveitar- stjórnarkosningunum 1986 buðu konur fram lista í Reykja- vík, Hafnarfirði og á Selfossi. Ein kona náði kjöri í Reykja- vík, önnur á Selfossi en engin í Hafnarfirði. Kvennalistinn bauð fram í öllum kjördæmum í þingkosningunum 1987 og fékk konur kjörnar í fjórum kjördæmum, Reykjavík, Reykjanesi, Norðurlandi eystra og vesturlandi, samtals 6 konur. Kvennaframboð erlendis Eins og fram kemur í bók Auðar Styrkársdóttur fóru konur víða um lönd að huga að sérframboðum, loksins þegar þær hlutu kosningarétt og kjör- gengi. Norskar, sænskar og breskar konur reyndu það nokkrum sinnum á árunum 1908—1937 en með dapurleg- um árangri. Engin kona náði kjöri af kvennalistum þessum. Kvennaframboð voru á um- ræðustigi í nokkrum öðrum löndum, m.a. í Þýskalandi án þess að þau kæmu til fram- kvæmda. Kvennaframboð virðast því hvergi hafa heppn- ast nema á Islandi. Hvers vegna? Hvað er svona merki- legt við íslenskar konur? Eða eru kvennaframboð e.t.v. tíma- skekkja og íslenskar konur á villigötum? Ég læt tvær fyrri spurningarnar liggja á milli hluta að sinni en vísa þeim, sem vilja fræðast frekar um það mál, í bók mína I nafni jafnréttis (Bókrún h.f. 1988, greinin Islenskar konur). Hins vegar ætla ég að fara nokkrum orðum um síðustu spurning- una; hvort sérframboð kvenna séu tímaskekkja. Undirstaða karlaveldis Auður Styrkársdóttir veltir henni lítillega fyrir sér og spyr í lok bókar sinnar ,,hvort allar stjórnmálahreyfingar, sem spretta fram á grundvelli kyn- ferðis, séu fyrirfram dauða- dæmdar vegna ágreinings um önnur atriði, svo sem skiptingu lífsgæðanna“ (bls. 60). Ekki fer á milli mála að sá ágreining- ur hefur mikið að segja og vissulega hafa íslenskar konur búið við misjöfn kjör bæði fyrr og síðar. En veldi karla/patri- arkat um heim allan er stað- reynd enn í dag. Þetta veldi er gamalt og gamalgróið og lætur ekki að sér hæða. Rætur þess liggja djúpt og angarnir teygja sig víða. Undirstaða þess er vinna kvenna, bæði launuð og ólaunuð, vinna sem konur inna af hendi í þágu heildar- innar en fá sjálfar aðeins lítið í sinn hlut. Þetta veldi hefur nú lifað í 6000 ár og það hefur lag- að sig að öllum þeim breyting- um sem yfir það hafa gengið, þar á meðal frelsis- og réttinda- kröfum kvenna. Þrátt fyrir margháttuð réttindi og umbæt- ur í þágu kvenna á umliðnum árum og áratugum hefur grunnurinn ekki haggast. Það sjáum við best á lágum launum kvenna í dag, óheyrilegri vinnubyrði og stöðugri ábyrgð á börnum og búi. íslenskar konur eru að kikna undan þessu álagi. Einkum ungar mæður. Margar konur hafa haldið að sósíalisminn eða jafnaðarstefn- an frelsaði konur, en það er á misskilningi byggt. Ólík efna- hagskerfi í karlveldi — hvorki kapítalismi né sósíalismi, frjálshyggja né félagshyggja — breyta stöðu kvenna að neinu marki enda ekki von þar sem grunnurinn er alls staðar hinn sami. Ódýrt og ólaunað vinnuafl kvenna. Á meðan svo er verður rödd kvenna að hljóma ein og sér. Og nú hljómar hún í fyrsta skipti í bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi. Helga Sigurjónsdóttir. GARÐLOND Kópavogsbær mun sem fyrr leigja út lönd í Smárahvammslandi til ræktunar. Vegna framkvæmda á svæðinu í sumar verður um breyt- ingu að ræða frá fyrri staðsetningu garðanna. Tekið verður á móti pöntunum í afgreiðslu Tæknideildar Kópavogs, Fannborg 2, frá 2.—18. maí n.k., milli kl. 9 og 15. Leigugjald er: kr. 1.000 fyrir 100 m2 garð kr. 2.000 fyrir 200 m2 garð kr. 3.000 fyrir 300 m2 garð. Gjaldið greiðist við pöntun. Allar nánari upplýsingar eru veittar á Garðyrkjudeild á sama stað eða í síma 41570 milli kl. 11 og 12. Garðyrkjustjóri Kópavogs 9

x

Kvennalistinn í Kópavogi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennalistinn í Kópavogi
https://timarit.is/publication/1229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.