Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Síða 8
KOPAVOGS -
KAUPSTAÐUR
Samband frá skiptiborði við:
Bæjarskrifstofur, sími 41570
AÐALSKRIFSTOFUR
Félagsheimilinu 4. hæð.
Opið kl. 8.30—15.00.
Bæjarstjóri, viötalstímar mánu-
daga, þriöjudaga og föstudaga
kl. 11—12.
Bæjarritari, viötalstímar mánu-
daga—fimmtudaga kl. 11—12.
Bæjarlögmaöur, viötalstímar eftir
samkomulagi.
Fjármála- og hagsýslustjóri, viö-
talstímar mánudaga, miövikudaga
og föstudaga kl. 11—12.
TÆKNIDEILD
Félagsheimilinu 3. hæð.
Opið kl. 9—15.
Bæjarverkfræöingur, viötalstímar
þriöjudaga—fimmtudaga kl. 11—12.
Aðrir viötalstímar mánudaga—föstu-
daga kl. 11—12.
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Hamraborg 12
Heilbrigöisfulltrúi, viötalstímar mánu-
daga—föstudaga kl. 11—12. Símar:
41570 og 641515.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
Digranesvegi 12.
Opið kl. 9—15.
Viötalstímar mánudaga—föstudaga
kl. 11—12. Sími: 45700.
SKÓLASKRIFSTOFA
Hamraborg 12, sími 41988 og 41570
Opið kl. 9—12 og 13—15
Skólafulltrúi, viðtalstímar þriöjudaga og
fimmtudaga kl. 11—12.
A
i.r&j
Húsaleigunefnd
Kópavogs
auglýsir
Húsaleigunefnd Kópavogs vill sérstaklega minna leigu-
sala og leigutaka á eftirfarandi atriði við gerð leigumála:
1. EYÐUBLÖÐ:
Alla leigumála skal gera skriflega á sérstök eyðublöð um
leigumála fyrir íbúðarhúsnæði. Aöeins eitt samningseyðu-
blað sem félagsmálaráðuneytið hefur látið gera er í gildi.
Húsaleigunefnd Kóapvogs hvetur leigutaka og leigusala til
að notæhiö lögboðna form um leigusamninga því að á
samningseyðublaðinu koma fram öll þau atriði sem tryggir
ótvíræðan rétt beggja aðila, þ.e. leigjandans og leigusal-
ans, sem nauðsynlegt er að hyggja að þegar samningur er
gerður, því lög um húsaleigusamninga gilda um alla leigu-
mála sem gerðir eru, en hið lögboðna form upplýsir aðila
sérstaklega um rétt þeirra og skyldur.
2. ÚTTEKT:
Úttekt er skrifleg lýsing sérfróös manns á ástandi leiguhús-
næðis við upphaf leigutímans og við ágreining um bóta-
skyldu leigutaka er hún lögð til grundvallar. Upplýsingar um
úttekt leiguhúsnæðis fást á Bæjarskrifstofu Kópavogs, sími
41570 en úttektarmaður er Gunnar Kristjánsson, vinnusími
84211, béimasími 41839.
3. TRYGGINGAFÉ:
Leigusali getur krafið leigutaka um greiðslu tryggingarfjár
sem má nema allt að 3ja mánaða umsaminni leigu. Fé þetta
skal varðveita í banka eða sparisjóði á hæstu mögulegu
vöxtum. Fé þetta er ætlað til að bæta skemmdir sem verða
kunna á leiguhúsnæðinu og leigutaki er ábyrgur fyrir. Fé
þetta má því aðeins nota að báðir aðilar séu því samþykkir
eða ef dómur er genginn um bótaskyldu. Úttekt húsnæðis
er nauðsyn sé tryggingarfjár krafist.
4. TÍMABUNDINN EÐA ÓTÍMABUNDINN LEIGUMÁLI:
a) Tímabundnum leigumála skal leigusali segja upp skrif-
lega eigi síðar en mánuði fyrir lok leigutímabils ella telst
hann hafa stofnað til ótímabundins leigumála.
b) Ótímabundnum leigumála getur leigutaki ætíð sagt upp
með 3 mánaða fyrirvara en af hálfu leigusala er upp-
sagnarfrestur eftir 1 árs leigu 3 mánuðir, eftir 1-5 ára
leigu 6 mánuðir og eftir 5 ára eða lengri leigu 12 mánuð-
ir.
Sé þess óskað, veitir Húsaleigunefnd Kópavogs Kópavogsbú-
um frekari upplýsingar og leiðbeiningar jafnframt því sem
nefndin aðstoðar viö lausn ágreiningsefna sem upp kunna að
koma. Óski aðilar leigumála eftir sambandi við nefndina eru
upplýsingar gefnar á Bæjarskrifstofu Kópavogs í síma 41570.
F.h. Húsaleigunefndar Kópavogs,
Fannborg 2, Kópavogi
Þorgerður Gylfadóttir, sími 41696
Jón Þorvaldsson, sími 44601
Heiður Gestsdóttir, sími 40552
8