Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995 - 03.06.1995, Blaðsíða 7
KVENNALISTINN LEGGUR AHERSLU A:
Efnahagsmdl
Kvennalistinn leggur sjálfbæra
þróun til grundvallar í efnahags-
málum. Sjálfbær þróun er hag-
stefna byggð á langtíma stefnu-
mótun, sem leggur áherslu á að
uppfylla þarfir okkar í dag án þess
að skaða umhverfið eða þær
auðlindir sem við þörfnust í
framtíðinni. Við viljum koma
kvennapólitískum sjónarmiðum til
áhrifa í efnahagslífinu
Atvinnumdl
Kvennalistinn vill raunhæfar
úrbætur í atvinnumálum
landsmanna, sem taki fullt tillit til
umhverfissjónarmiða.
Vaxtarbroddur atvinnulífsins felst í
smáiðnaði. Rannsóknir sýna að
smá og meðalstór fyrirtæki
standast betur samkeppni og
breytingar á markaði, einmitt í
krafti smæðar og sveigj anleika. Hér
eru margvíslegir möguleikar
vannýttir, svo sem í framleiðslu
hugbúnaðar, fullvinnslu
sjávarafurða, lífrænni ræktun í
landbúnaði, ylrækt, fiskeldi,
ferðaþjónustu, heilsurækt og
umhverfismálum.
Nýtt
fiskveiðistjórnarkerfi
Kvennalistinn leggur fram tillögu
að nýju fiskveiðistjórnarkerfi, sem
byggist á hugmyndinni um
byggðakvóta. Fiskimiðunum verði
skipt upp í grunnsjávarmið og
djúpsjávarmið. Grunnsjávarmið
séu nýtt af íbúum nærliggjandi
svæða, en skip yfir ákveðnum
stærðarmörkum veiði á
djúpsjávarmiðum.
Menntun og rannsóknir
í öndvegi
Kvennalistinn vili stórefla menntun
og rannsóknir á íslandi í því skyni
að auka fjölbreytni atvinnulífsins
og stemma stigu við atvinnuleysi
og landflótta. Niðurskurður í
menntakerfinu grefur undan
framtíð okkar. Þjóð sem fjárfestir
ekki í grunnrannsóknum og
menntun - vísindum vísindanna
vegna - er illa stödd. Kvennalistinn
vill að menntun standi öllum jafnt
til boða, óháð efnahag, og varar
því við hugmyndum um
skólagjöld.
Bardtta gegn ofbeldi
Kvennalistinn vill hugarfars-
breytingu gegn ofbeldi, hvort sem
það á sér stað innan heimilis eða
utan. Grundvallarbreyting þarf að
verða á viðhorfi stjórnvalda og
almennings til ofbeldismála og
meðferðar þeirra. Barátta
Kvennaiistans gegn hvers konar
ofbeldi hefur þegar skilað
talsverðum árangri. Bætt meðferð
nauðgunarmála, átak gegn einelti
og aukin athygli almennings á
meðferð ofbeldismála bera því
vitni. En baráttan verður að halda
áfram!
Umhverfisvernd -
stærsta öryggismálið
Kvennalistinn boðar nýja hugsun í
öryggismálum sem byggir á
varðveislu umhverfis fremur en
hernaðarstyrk. Það sem öðru
fremur ógnar jarðarbúum eru
hættur sem steðja að umhverfi
okkar, svo sem útbreiðsla
kjarnavopna, ótrygg kjarnorkuver,
geislavirkur úrgangur,
gróðurhúsaáhrif, eyðing
regnskóga, auðlindaþurrð og
mengun. Þetta kallar á aðrar og
heildrænni aðferðir til að tryggja
öryggi okkar en nú tíðkast, og felur
í sér endurmat á því hvar ísland
skipar sér í flokk á alþjóðlegum
vettvangi.