Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995 - 03.06.1995, Blaðsíða 7

Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995 - 03.06.1995, Blaðsíða 7
KVENNALISTINN LEGGUR AHERSLU A: Efnahagsmdl Kvennalistinn leggur sjálfbæra þróun til grundvallar í efnahags- málum. Sjálfbær þróun er hag- stefna byggð á langtíma stefnu- mótun, sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir okkar í dag án þess að skaða umhverfið eða þær auðlindir sem við þörfnust í framtíðinni. Við viljum koma kvennapólitískum sjónarmiðum til áhrifa í efnahagslífinu Atvinnumdl Kvennalistinn vill raunhæfar úrbætur í atvinnumálum landsmanna, sem taki fullt tillit til umhverfissjónarmiða. Vaxtarbroddur atvinnulífsins felst í smáiðnaði. Rannsóknir sýna að smá og meðalstór fyrirtæki standast betur samkeppni og breytingar á markaði, einmitt í krafti smæðar og sveigj anleika. Hér eru margvíslegir möguleikar vannýttir, svo sem í framleiðslu hugbúnaðar, fullvinnslu sjávarafurða, lífrænni ræktun í landbúnaði, ylrækt, fiskeldi, ferðaþjónustu, heilsurækt og umhverfismálum. Nýtt fiskveiðistjórnarkerfi Kvennalistinn leggur fram tillögu að nýju fiskveiðistjórnarkerfi, sem byggist á hugmyndinni um byggðakvóta. Fiskimiðunum verði skipt upp í grunnsjávarmið og djúpsjávarmið. Grunnsjávarmið séu nýtt af íbúum nærliggjandi svæða, en skip yfir ákveðnum stærðarmörkum veiði á djúpsjávarmiðum. Menntun og rannsóknir í öndvegi Kvennalistinn vili stórefla menntun og rannsóknir á íslandi í því skyni að auka fjölbreytni atvinnulífsins og stemma stigu við atvinnuleysi og landflótta. Niðurskurður í menntakerfinu grefur undan framtíð okkar. Þjóð sem fjárfestir ekki í grunnrannsóknum og menntun - vísindum vísindanna vegna - er illa stödd. Kvennalistinn vill að menntun standi öllum jafnt til boða, óháð efnahag, og varar því við hugmyndum um skólagjöld. Bardtta gegn ofbeldi Kvennalistinn vill hugarfars- breytingu gegn ofbeldi, hvort sem það á sér stað innan heimilis eða utan. Grundvallarbreyting þarf að verða á viðhorfi stjórnvalda og almennings til ofbeldismála og meðferðar þeirra. Barátta Kvennaiistans gegn hvers konar ofbeldi hefur þegar skilað talsverðum árangri. Bætt meðferð nauðgunarmála, átak gegn einelti og aukin athygli almennings á meðferð ofbeldismála bera því vitni. En baráttan verður að halda áfram! Umhverfisvernd - stærsta öryggismálið Kvennalistinn boðar nýja hugsun í öryggismálum sem byggir á varðveislu umhverfis fremur en hernaðarstyrk. Það sem öðru fremur ógnar jarðarbúum eru hættur sem steðja að umhverfi okkar, svo sem útbreiðsla kjarnavopna, ótrygg kjarnorkuver, geislavirkur úrgangur, gróðurhúsaáhrif, eyðing regnskóga, auðlindaþurrð og mengun. Þetta kallar á aðrar og heildrænni aðferðir til að tryggja öryggi okkar en nú tíðkast, og felur í sér endurmat á því hvar ísland skipar sér í flokk á alþjóðlegum vettvangi.

x

Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995
https://timarit.is/publication/1232

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.