Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 2

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 2
allflestar Þeirra höföu aldrei sjeð holdsveikann mann. Síðan var sest að ágætis kaffi- borði. Fimtud. 16. júní. Fundur frá 9-12, kl. tíma hlje til morgunverðar og framhaldsfundur til kl. 4. Kl.5 tedrykkja hjá sendiherra Dana hr. F. le Sage de Fontenay. Þaðan var haldið til geðveikrahæl- isins á Kleppi. Þórður yfirlæknir Sveinsson skýrði frá hvernig veiki sjúklinganna væri háttað og hverjar aðferðir væru notaðar. Var spítalinn síðan skoðaður og eins nýja deildin, sem nú er x smíðum. Kvöldverður var borðaður hjá yfirlæknir. Föstud, 17. júní. Þingvallaferð, Veður var hið á- kjósanlegasta, himininn heiður og blá og fjallasýn hin fegursta, enda lof- uðu gestir vorir tign og fegurð lands ins. Var komið til Rvíkur kl. rúml. 10 um kvöldið. Laugard. 18. júní var allur helgaöur fundarstörfum. Sunnud. 19. júní. Kirkjuganga kl.11 f.h. Sjera Bjarn Jónsson predikaði og beindi seinni hluta ræðu sinnar á dönsku til hinna norrænu hjúkrunarkvenna. K1.2.e.h. var skoðaður Landakots- spítali, skólinn, hin nýja veglega kirkjubygging kaÞólskra sem nú er í smxðum og Landakotskirkja eins og hún er nú. Buðu systurnar upp á ávexti og smákökur. Kl.4 var tedrykkja hjá forsætis- ráðherra. Kl.5 var í Nýja Bíó sýnd smámynd frá barnaheimili í Finnlandi. Þaðan var farið til prófessorsfrú- ar C. Bjarnhé-ðinsson. Bauð frúin upp á ávexti. Kl.8 um kvöldið höfðu hinar er- lendu hjúkrunarkonur boð á Hotel ís- land fyrir meðlimi Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna. Var Þar mjög glatt á hjalla, skemt sjer fram eftir kvöldinu við ræðuhöld og ýmiskonar gleðskap. Mánud. 20. júní. Fundur frá 9-12 og voru Þá af- greidd síðustu málin á fundarskránni. Eftir hádegi var lagt á stað aust- ur yfir fjall, stutt viödvöl á Kolvið- arhól og drukkið kaffi. Haldið austur að Ölvesárbrú og Þaðan að heitu hver- unum við Reyki. Var komið til Reykjavíkur laust fyrir kl. 10 um kvöldið. Þriðjud. 21. júní. Safnast saman á Hotel Island kl. 12 á hádegi til morgunverðar. Kl. rúml. 1 var fárið reiðtúr inn að Elliðaám. Höfðu hjúkrunarkonurnar hlakkað mikið til að koma á hestbak og skemtu sjer líka ágætlega í för- inni, Þó ekki væri hún lengri en Þetta Um kvöldið hafði "Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna" boð á Hotel Island og satu Það um 90 manns, landssjórn,lækn- ar og gestgjafar hjúkrunarkvennanna. Var Það skilnaðarsamsæti fyrir erlendu f ull trúana. Miðvikud. 22. júní. (Burtfarardagur). Myndasafn Einars Jónssonar skoðað kl.11 f. h. Kl.1 var mætt á Farsóttarhúsinu, voru Þar fyrir frk. I.H.Ejarnason,for- stöðukona, Jón Hjaltalín hjeraðslækn- ir og Guðm. próf. Hannesson, er höfðu boðist jril að sýna og útskýra La.nds- spítalann. Var farið Þangað í bílum °g byggingin öll skoðuð og athuguð mjög gaumgæfilega. Guðjón Samúelsson, húsameistari, var Þar fyrir til leið- beiningar. Síðan bauð frk. I.H.Bjarna- son öllum fulltrúunum til tedrykkju í Kvennaskólanum. Á eftir hjeldu Þau með sjer fund frk. I.H.Bjarnason, áður- nefndir læknar og húsarneistari ásamt formönnum hjúkrunarfjelaganna. Kl.8 um kvöldið var ákveðinn burt- farartími og Islandið lagði frá landi í kvöldblíðunni. Systir Bertha Wellin hóf rödd sína og hrópaði: "Lifi ls- land og 1slendingarnir", og mannfjöld- inn á Hafnarbakkanum tók undir með húrrahrópum. Skipið fjarlægðist meir og meir, hattar og klútar voru á lofti um borð og í landi. Þessir efnisríku dagar voru á enda og nú var aðeins endurminningin eftir. Skrá Þeirri, er lögð hafði verið fyrir mótið, var fylgt með hinni mestu

x

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna
https://timarit.is/publication/1235

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.