Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Síða 3

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Síða 3
-3- nákvæmni, aö undanskildum nokkrum breytingum er gera Þurfti síðustu dagana. Því miður varð form, norska hjúkr- unarfjelagsins systir Bergljót Lars- son veik, og gat Þessvegna ekki tek- ið Þátt í mótinu nema fyrstu dagana. Samt var hún orðin Það hress, að hún gat farið með Lyru Þ. 30. júní, og hafði ixl samfyigdar eina norsku fulltrúanna frá mótinu. óhætt er að fullyrða, að Þetta hjúkrunarÞing hjer í Reykjavík,hafi bcrið góðann árangur bæði inn á við og út á við. Það hafa verið lærdómsríkir dag- ar fyrir hina ungu ísl. hjúkrunar- stjett, að fá hingað brautryöjendur á svið hjúkrun&rmála á Norðurlöndum og geta hlustað á Þessa hugsjónaríku fullhuga ræða sameiginleg áhugamál. Það er ósk vor og von, að land og Þjóð, gegnum hina íslensku hjúkrunar- stjett, eigi eftir að njóta ávaxtanna af Því sem sáð hefir verið á Þessum dögum. Það mun framtíðin sýna. Það er ósk vor, að ísland, eins og önnur menningarlönd, eigi eftir að eignast öfiuga stjett vel ment- aðra hjúkruna" ':venna, sem í góðri samvinnu við iækna landsins, beiti sjer fyrir að auka Þekkingu almenn- ings á heilbrigðisir.álum. FRA NAMSARUNOM. Nsturvak-t. Næturvakt í fjórtán nætur sam- fleytt á jeg fyrir höndum. Þetta er fyrsta nóttin, hún er altaf erfiðust, en svo batnar Þegar fram í sækir, að breyta degi í nótt. Jeg fór af deildinni í dag úm'tvö- leytið og varð að mæta til næturvakt- ar kl.6-g- u® kvöldið. Þó jeg eigi manna best með að sofa á daginn, varð mjer samt lítið úr svefni Þetta skiftið, ýmsir Þankar steðjuðu að í huga mínum og umhverf- is mig var heldur ekki altaf jafn hl jótt, Það ar komið fram yfir miðnætti, alt er kyrt og Þögult, allir virðast sofa, Það eru f jórir kl. tímar síðan jeg slökkti á stóra lampanum, kveikti á nátt-týrunni og bauð góða nótt.Marg- ir eru búnir að sofa vænan blund, en sumura hefir varla komið dúr á auga,ný- uppskorni maðurinn, í innsta rúminu, hefir kvalist af Þorsta, Þó hefir hann við og við fengið að drekka eins og fyrir var lagt. Slasaði pilturinn,sera ''Palck" kom raeð seint í gærkvöldi,hef _ ir alveg verið frá af kvölum, Þrátt fyrir deyfandi lyf, sem hjúkrunarkon- an hafði gefið honum áður en hún fór af deildinni, einnig hefi jeg reynt að hagræða honum eftir mætti. Jeg geng fram hjá barnastofunni, Það er stór salur með tólf drengjum. Þeir virðast allir sofa vært, andar- dráttur Þeirra, djúpur og reglulegur, heyrist fram á gang, hurðin stendur í hálfa gátt. Jeg gríp sjálfa mig í að öfunda blessuð börnin, að Þau skuli mega sófa, og segi við sjálfa mig: "Já, svona ertu innrætt;1 Pyrsta vöku- nóttin er mjer altaf svó erfið. Jeg sný við og sest við borðið á miðjum ganginum, borðlampi, með græn- um skerm, varpar daufri birtu út frá sjer, rjett nægilegri til að sauma við eða lesa. Pyrir miðnætti var jeg búin að fara yfir öll dagblöðin. Á borðinu liggja bæði "reyfarar" og "klassikar- ar", jeg tek Þann fyrri, Því jeg er á líkri skoðun og fjelagar mínir, hinir I nemarnir, Þær segja, að "reyfarar" og : kaffi sje'Það einasta, sem geti hald- ið manni vakandi, en Þurrir "klassik- árar" og hjúkrunarfræði sje á nætur- vakt á við svefnskamt.' Og eitt er Það, að tíminn líður svo prýðilega fljótt, Þegar maður hefir eitthvert ljectmeti til aflésturs að næturlagi. Jeg verð að gæta að tímanum og ganga um á stofunum, svo jeg aö morgni geti gefið fullnægjandi upplýsingar um líðan sjúklingarxna, og ekki dugar held- ur að slá slöku viö, segdr samviskan. Nú er farið aö birta af degi,fyrstu fuglarnir byrja að syngja í trjánum, smásaman bætast fleiri og fleiri við, Það er samhangandi kliður Þegar jég opna gluggann og læt hlýja morgungol- una leika um mig. Jeg lýk við morgunverkin frammivið, fer svo inn til sjúklinganna, Þvæ Þeim, mæli og tel púls, hagræði Þeim i spni best jeg get, um allflesta Þurfa

x

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna
https://timarit.is/publication/1235

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.