Embla - 01.05.1986, Qupperneq 2
2
EMBLA
Í7U
kýéundO'
m
Þann 31. maí nk. verður gengið
til bæjar- og sveitarstjórnakosn-
inga um allt land. Hér á Selfossi
hafa komið fram sex framboð. Gera
má ráð fyrir að þar stefni allir að
betra samfélagi, en mér hefur sýnst
að mjög sé misjafnt hvað þar er
sett á oddinn.
Að mínu mati vantar helst á að
stjórnmálaflokkarnir taki til
greina stöðu fjölsky1dunnar , sér-
staklega kvenna og barna, en það er
einkum markmið Kvennalistans að
vinna að bættum hag fjölskyldunnar.
Þegar verið er að móta stefnu
þarf að hafa í huga hverjar eru
frumþarfir mannsins, og vinna að
því að hægt sé að uppfylla þær;
síðan er hægt að snúa sér að því
sem kallast lífsfylling. Uið í
Kvenna1istanum á Selfossi höfum
haft þetta að leiðarljósi við mót-
un stefnu okkar. Frumþarfir allra
einstaklinga eru fæði, klæði og
húsaskjól. Til að þessum þörfum sé
fullnægt þarf að vera hægt að afla
fjár. Til þess þarf atvinnu,
rétturinn til vinnu og mannsæm-
andi launa er grundvallarmannrétt-
indi. Því viljum við að stórátak
verði gert i atvinnumálum Selfoss-
kaupstaðar. Það þarf að finna nýjar
leiðir, t.d. í matvælaiðnaði. Ef
til vill væri hægt að koma upp
dreifingarstöð fyrir matjurtir hér
á Selfossi. Það þarf líka að kanna
hvernig hægt er að nýta þau hráefni
sem til staðar eru betur en nú er
gert. Þegar ég er að kaupa
innfluttar gúrkur og tómata eða
barnamat i krukkum verður mér oft
hugsað til ruslahauganna með öllum
gúrkunum og tómötunum sem ekki
seljast. Eg trúi ekki öðru en hægt
sé að fjölga störfum hér á
Selfossi, ef vel er á málum hald-
ið, og finna megi nýjar leiðir í
matvælaiðnaði ef rannsóknarstarf-
semi verður efld í þeim tilgangi.
Allir borga eða eiga að borga
útsvar og skatta af sínum tekjum
til ríkis og bæja. Þeim peningum
viljum við að sé vel varið, þannig
að hægt sé að mæta félagslegum
þörfum fólks.
Kvennalistinn yill því að dag-
vistar- og skólamál og fleira sem
varðar daglegt líf fólks fái
forgang fram yfir önnur mál.
Astandið í dagvistarmálum hér á
Selfossi er slæmt og nauðsynlegt að
gera átak í þeim málum. Skólatími
barna þarf að vera samfelldur og
brýnt er að félagsmiðstöð unglinga
líti dagsins ljós sem fyrst. Einnig
þarf að huga betur að atvinnumálum
unglinga en gert hefur verið.
Kvennalistinn leggur áherslu á
heilsuvernd með fyrirbyggjandi að-
gerðum og vill auka þjónustu við
aldraða í bænum.
Það sem heillar mig mest við
Kvennalistann er að virðing fyrir
lífi og samábyrgð sitja í önd-
vegi, ekki bara í orði heldur í
verki. Að mínu mati hefur stefna
Kvennalistans fengið allt of lít-
inn hljómgrunn enn sem komið er.
Störf kvenna eru enn talin auka-
störf, ekki fyrirvinnustörf. Þar af
leiðir að lægstu launin eru greidd
fyrir þau.
Verst finnst mér hvernig störf
eru metin til ábyrgðar. Þar fæ ég
ekki betur séð en störf þar sem
fólk fæst við að meðhöndla eða gæta
peninga séu metin miklu hærra en
þau störf sem lúta að því að vinna
með fólki, hvort heldur er við
uppeldi, fræðslu, hjúkrun, ráð-
gjöf eða jafnvel að taka á móti
nýju lífi; þar á ég við ljósmóður-
starfið.
Við teljum það forsendu fyrir
lýðræði í stjórnun bæja að ibúar
eigi greiðan aðgang að upplýsingum
um málefni bæjarins, og að almenn-
ingi séu vel kynntar áætlanir og
fyrirhugaðar framkvæmdir. Þess
vegna viljum við að gefinn verði út
aðgengilegur bæklingur um nefndir'
og ráð bæjarins.
Við teljum það vera mikla ábyrgð
að setja X við einhvern af þeim sex
framboðslistum sem kosið verður á
milli 31. maí. Við munum ekki reyna
að smala atkvæðum með einhverjum
gylliboðum; við viljum að fólk taki
sínar sjálfstæðu ákvarðanir, því
það hefur frjálst val.
Kjósendur góðir, - sérstaklega
þið sem fáið nú að kjósa í fyrsta
sinn, - til hamingju og gangi ykkur
vel í ykkar vali.
Kveðja, ^ _