Embla - 01.05.1986, Síða 10
10
EMBLA
Samgöngur
A Selfossi þar f að
koma á samgöngum
með almenningsvögn-
um, þannig að ein-
falt verði að ferð-
ast innan bæjarins,
ekki síst fyrir
börn og aldraða.
Farið skal að lögum um ferlimál
fatlaðra þannig að þeir komist auð-
veldlega leiðar sinnar og eigi
greiðan aðgang að stofnunum
bæjarins. Leitað skal allra leiða
til að auka öryggi í umferðinni.
Kvennalistinn vill
* að umferðarfræðs1a verði aukin
fyrir unga sem aldna.
* að réttur gangandi og hjólandi
vegfarenda sé virtur.
* að tryggð verði nauðsynleg yfir-
sýn við gatnamót.
* að götu- og umferðarmerkingar
verði bættar og lýsing þar sem
þörf krefur.
* að gerð verði örugg gönguleið
yfir Ölfusárbrú.
Almannavarnir
Við teljum brýnt að efla almanna-
varnir og að skipuð verði sérstök
almannavarnanefnd Selfosskaupstað-
ar .
Mikil hætta er talin vera á að
stórir jarðskjálftar verði á Suður-
landi einhvern tíma á næstu ára-
tugum. I skýrslu vinnuhóps almanna-
varnaráðs "Jarðskjálftar á Suður-
landi" útg. 1978 er talið full-
vist að margar byggingar og önnur
mannvirki hér standist ekki kröfur
um styrkleika komi til meiri háttar
jarðskjálfta.
Fræðsla og leiðbeiningar um al-
mannavarnir geta komið að ómet-
anlegu gagni og því viljum við
stuðla að umræðum um þau mál.
Þeirri umræðu er hvorki ætlað að
vekja ótta né falska öryggiskennd,
heldur vekja athygli á þeim ráð-
stöfunum sem brýnastar eru.
Kvennalistinn vill
* að öllum verði kynnt hvernig
bregðast skal við náttúruham-
fö r um.
* að áætlun um neyðarvarnir liggi
fyrir og sé rækilega kynnt
almenningi.
* að í skólum, á sjúkrahúsum og
öðrum stofnunum og stórum vinnu-
stöðum fari reglulega fram
brunaæfingar og æfingar vegna
almannavarna.
* að framkvæmd verði kerfisbundin
rannsókn á öllum mannvirkjum og
settar fram tillögur um
styrkingu eða aðrar umbætur sem
þörf kann að vera á.
* að brúargerð á Ölfusá við
Oseyrarnes verði hraðað til að
auka öryggi allra ibúa austan
Ö1f usár.
Lýðræði og stjórnun
Forsenda lýðræðis í
stjórn Selfosskaup-
staðar er að bæjar-
búar eigi greiðan
aðgang að öllum
upplýsingum um
bæjarmálefni og
bærinn sinni þeirri
sjálfsögðu skyldu
að kynna almenningi áætlanir og
fyrirhugaðar framkvæmdir.
I upphafi hvers kjörtímabils verði
gefinn út aðgengilegur upplýs-
ingabæk1ingur um nefndir og ráð
bæjarins, verksvið þeirra og að-
setur, fundarstaði, fundartima og
þá fulltrúa sem þar eiga sæti. Þá
skulu vera í bæklingnum greinar-
góðar upplýsingar um hvernig ein-
staklingar geta komið málum á fram-
færi við bæjaryfirvöld. Bækl-
ingnum verði dreift til allra
bæjarbúa.