Pilsaþytur - 31.03.1995, Qupperneq 2
Skessur skunda suður
í fomöld settust að flögð tvö á íslandi, í
sveitum nyrstum og ystum, fögrum hémð-
um og vel byggðum og skiptu með sér
löndum. Sat önnur í Mælifellshnjúk, þar
heitir Skagafjörður. Hin bjó um sig í Súlum
norðanverðum, hvar nefndur er Eyjafjörð-
ur. Þóttust þær þá hafa allnokkuð að unnið
og sváfu nú í þúsund ár.
Vom við völd þann tíma þursar erlendir
og skildu eigi kveðskap foman enda karl-
lægir n\jög. Rumskuðu þær systur við sult
á aldar fresti eða svo og léðu hvor annarri
potta, píska, eða eldunartæki önnur, hvað
þær til skiptis skorti og kölluðust á svo
skulfu héruð.
Um aldir þessar óx upp flokkur smá-
jötna og hrímþursa í héraði og fór mikinn.
Flæmdi burt erlenda kaupahéðna og erind-
reka. Gerðust nú jötnar þessir og þursar
stórtækir mjög og lögðust í gripdeildir.
Sátu skessur nokkrar á Suðurlandi en
tókst eigi einsömlum að skakka leikinn og
stimpuðust þó við móðar mjög. Kom þar,
að skessum þóttu álög vera ill orðin í landi
og mál að lyki. Gerðu þær þá systrum
norðanlands rúmmsk nokkurt og báðu
þær hlýða kveðskap þursa er hljómaði um
land allt svohljóöandi.
Komi kvóti
komi búmark
kynngi hríð niður.
Gjöri sult víða
Hrynji mjöl
hyljifjöll
hatist menn
hverfi guð skatna.
Glatist sauður
gleymdur auður
tœmist sœr
týnist bœr.
Selt sjávarfang
sœtt kvótamang
fimistfæða
fáist armæða.
Hrukku þá systur upp með andfælum
og urðu af því skjálftar miklir um sveitir
norður. Fylktust smáflögð í hópa og fóra
að hlusta eftir röddum systranna, enda
ekki langt að bíða eftir fyrstu hrópum úr
Mælifellshnjúk.
„Systir ljáðu mér pott“. Svarað er að
bragði úr Súlum norður, raust ógurlegri.
„Hvað vilt þú með hann?“ Gegnt var þá
mikilúðlegri rödd úr Mælifellshpjúk.
„Sjóða í honum mann“
sjóða þursa
sjóða hrímþursa.
Kvað þá skessan eldri úr Súlum norður.
Gefi góð ár
grói tún skár
burtu svengd
betri. laxagengd
lifni þjóð
við Ijúfan óð
fargist hatur
fáist ódýr matur
Græðist sauður
glœðist auður
roðni af fiski sjár
rœtist skessuspár
batni hagur
brosi nýr dagur
líði vetur
lifum öll betur
Stikuðu svo þær systur svo í mót
þursaflokki og fylktust saman við skessur
af fjörðum vestan og austan. Mæltu sér
mót við skessur af Suðurlandi, skára upp
herör gegn þursaflokkum og fúlum jötn-
um. Gerði framtak þeirra góðan róm með-
al smáflagða og heita þau með herör þess-
ari á kynsystur sína að fylla flokk flagða og
flæma úr byggðum stjóm þursa og hrím-
jötna, svo aftur muni líft í landi.
Frá Kvennalistanum til þín
Við Kvennalistakonur leggjum áherslu á að grund-
vallarstefna okkar byggist á jafnrétti og efnahags-
legu sjálfstæði einstaklingsins.
Við mótun atvinnustefnu vekur Kvennalistinn
athygli á:
♦ að hugvit kvenna er vannýtt auðlind
♦ að aukin menntun er auðlegð til franttíðar
♦ að auðlindakönnun stuðlar að skynsamlegri nýtingu og
vemdun umhverfis til sjávar og sveita
♦ að aukin gjaldeyrisöflun byggist á fullri nýtingu og full-
vinnslu hráefnis
♦ að leggja beri áherslu á rannsóknir, þróunar- og ntarkaðs-
starf sem undirstöðu nýsköpunar og fjölbreytts atvinnulífs
♦ að stórauka þarf stuðning við frumkvæði og fyrirtæki
kvenna.
Við erunt kontnar til að breyta - þú getur hjálpað okkur.
Þitt atkvædi skiptir máli - veldu V í vor
KVENNALISTINN
2
Kvennalistinn