Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Qupperneq 2
HAGSÝNI KVENNA
ÓNÝTT AUÐUND
S I G R í Ð U R
Það vorar á íslandi
enn á ný. Eftir
óvenju mildan vetur
mun moldin anga og
grasið grænka í sunnlensk-
um byggðum. Oft hefur vor-
koman glatt bændafólk
þessa lands. Vonandi er að
svo verði enn. Þó er hætt við
að sú gleði verði blandin
ótta og óvissu á sumum
bæjum á þessu vori.
Nýr búvörusamningur
hefur litið dagsins ljós og
hætt er við að hann hafi það
í för með sér fyrir fjölda
bænda, að þeir þurfi að
bregða búi og ftytja sig og
sína á mölina, eða að finna
sér eitthvað annað að gera
með tóm fjárhús og hlöður.
Ég óttast að út úr þessum
búvörusamningi komi það,
meðal annars að sauðfjár-
búskapur hreinlega leggist
af á sumum svæðum, og þá
sennilega fyrst og fremst á
Suðurlandi. Það bendir
ýmislegt til þess. Það er hins
vegar staðreynd að á Suð-
urlandi er afurðamesta féð
og þaðan kemur frambæri-
iegasta dilkakjötið. En það
er framleitt of mikið og þarf
að skera niður. Hver á að
skera niður og hver á að
ákveða það?
Fjölmiðlar eru íslenskum
landbúnaði fjandsamlegir.
Þvi er slegið upp í æsifrétta-
stíl að svo og svo margir
milljarðar fari í niðurgreiðsl-
ur og útflutningsbætur og
þó séu þessar vörur alltof
dýrar. Þetta er eflaust satt
og rétt. Það er jafn satt og
rétt að skatttekjur ríkisins
af landbúnaði eru umtals-
verðar. Á það er sjaldnast
minnst.
Eitt er það lítilræði, sem
ég hef enn varla heyrt
minnst á opinberlega þegar
rætt er um offramieiðslu
dilkakjöts og samdrátt í
neyslu. Það er svokölluð
framhjásala, þ.e. heima-
slátrað kjöt sem fer svo eftir
ýmsum leiðum á markað-
inn. Flestir vita að þetta er
stundað vítt og breitt um
landið. En þetta er feimn-
ismál og ólöglegt, svo að
skiljanlega vill enginn verða
tii að ljóstra upp um ná-
grannann. Þetta er bara
þegjandi samkomulag. Og
víst eru bændur bara að
reyna að bjarga sér sem
best á erfiðum tímum. Þeir
eiga kannske svo og svo
mörg lömb fram yfir full-
virðisréttinn, slátra þeim
heima og selja svo kunn-
ingjum á hagstæðu verði.
Báðir græða eða hvað?
Enginn veit hve mörg
STEINÞÓRSDÓTTIR
tonn ganga þannig kaupum
og sölum, en ekki væri ég
hissa þó sá tonnaíjöldi slag-
aði hátt upp í það sem kall-
aður er samdráttur í neyslu.
Svo þegar kemur að því að
gera búvörusamning er
dæmið reiknað út frá
neyslu; minni neysla
minni fullvirðisréttur. Ég fæ
því ekki betur séð en þeir
bændur sem þessa vafa-
sömu verslun stunda, svo
einhveiju nemur, séu um
leið að grafa undan eigin at-
vinnurekstri. Fyrst settar
eru hömlur á framieiðsluna
þarf að sjá til að þeim sé
fylgt-
Já, víst er íslenskur land-
búnaður í vanda staddur.
Ég ætla ekki að fara að tína
tii sökudólga, eða kenna
einu eða neinu sérstöku
um. Þó má ég tii að minnast
á það að bændasamtökin
samanstanda mestmegnis af
körlum. Þar eru konur ekki
nógu virkar. Þvi miður. Ég
vil þvi hvetja sveitakonur til
að koma til starfa í bænda-
samtökunum. Hagsýni
kvenna, dugnaður og nýjar
hugmyndir eru ónýtt auð-
lind, og nú er þörf á sam-
stöðu okkar allra, sem enn
erum í sveitunum. Við verð-
um að bjarga því sem
bjargað verður.
Það brenna eldar í olíu-
lindum suður við Persaflóa.
Það fellur svartur snjór í
Himalajafjöiium. Enginn veit
hve lengi eldamir brenna
suður þar, vikur, mánuði,
ár? Á meðan stígur eitraður
reykur hátt tii lofts og fellur
síðan sem menguð úrkoma í
órafjarlægð. Engin leið er að
sjá hve víðtæk eyðileggingin
verður. Ennþá er Ísland til-
tölulega hreint og ómengað.
Við framleiðum hér hollustu
og bestu matvæli í heimi;
kjöt, fisk og grænmeti. Það
er hreint ekki ósennilegt að í
náinni framtíð verði slík
gæðavara eftirsótt í meng-
uðum heimi. Þá opnast ef til
vill möguleikar á útflutningi
íslenskra landbúnaðar-
afurða. Því skuium við gæta
þess að gera ekkert sjálf
sem gæti mengað og spillt
landinu eða fiskimiðunum.
Við skulum líka gæta þess,
að ganga ekki af íslenskum
landbúnaði dauðum.
Suðurland er láglauna-
svæði. Það er staðreynd.
Þorpin á Suðurlandi byggja
tilvist sína að langmestu
leyti á þjónustu við biómleg
landbúnaðarhéruð. Þegar
samdráttur verður í land-
búnaði bitnar það um leið á
þessum þjónustukjömum.
Á Suðurlandi er að engu
öðm að hverfa. Austan
Þjórsár er engin útgerð né
fiskvinnsla. Nú er von til að
nokkuð rætist úr í atvinnu-
málum í vestasta hluta
Rangárvallasýslu þegar Slát-
urfélag Suðurlands flytur
vinnslustöð sína til Hvols-
vallar. Það er vel. Og hefðu
þeir Sláturfélagsmenn mátt
láta sér það til hugar koma
fyrr, áður en Laugamess-
ævintýrið hófst. En Slátur-
félagið er í eigu bændanna
sjálfra. Þess vegna ættu þeir
að vera virkari, sækja fundi
og veita aðhald. Enn vil ég
benda á það að bændur em
bæði menn og konur. Kon-
ur, vemm með. Ég hef það
fyrir. satt að hugmyndin að
flutningi SS austur sé
komin frá konu.
Á samdráttartímum eins
og nú tei ég mikilvægt að
íbúar hvers sveitarfélags
standi saman um að reyna
að halda utan um það sem
fyrir er. Því miður verður
jaað oft raunin að þegar
harðnar á dalnum reynir
hver og einn að bjarga eigin
skinni og þá ef til vill á
kostnað annarra. Það vantar
samstöðu og það vantar
traust.
Nýlokið er átaksverkefni í
atvinnumálum í mínu sveit-
arfélagi, Mýrdalshreppi. Ég
ásamt fleirum sat svokall-
aða ieitarráðstefnu, sem
stóð dagana 16. og 23.
mars. Ég held að allir séu
sammála um að mjög vel
hafi til tekist. Áhugi heima-
manna er mikill, það voru
um 60 manns sem tóku þátt
í verkefninu. Unnið var í
hópum sem hver fjallaði um
sérsvið. Margar hugmyndir
komu fram en allar virðast
þær stefna í sömu átt; að
nýta það sem fyrir er. Það
var ekki verið að biðja um
álver eða aðra stóriðju. Eftir
er að sjá hvort eitthvað
kemur út úr þessari vinnu,
kannske verða það engin
stórvirki. En þó að það yrði
ekki til annars en að efla
samstöðu og samvinnu
heimamanna, þá er það
töluverður árangur.
Framundan eru kosning-
ar til Alþingis. Það er mikl-
vægt að við hugsum okkur
vel og vandlega um áður en
við greiðum atkvæði, gerum
það ekki í hugsunarleysi.
Við erum að velja okkur
framtíð.
Gleðilegt sumar.
Höfundur skipar 4. sæti Kvennalistans
á SuSurlandi.
PILSAÞYTUR
Á SUÐURLANDI
2. tbl. 1. árg. apríl 1991
Kvennalistinn á Suðurlandi bauð
fyrst fram til alþingis fyrir fjórum
árum og fékk þá talsvert fylgi tæp,
7 prósent. Það dugði þó ekki til að
koma konu á þing. Nú erum við reynslunni
ríkari og undirtektir fólks eru góðar.
Frambjóðendur okkar hafa verið talsvert
á ferðinni undanfarið. Þær hafa komið á
vinnustaði hér og þar og hafa fengið ljóm-
andi móttökur hjá áhugasömu fólki sem við
þökkum. Þær vilja gjarnan fara sem víðast
en svæðið er stórt og í mörgu að snúast.
Kvennalistinn hefur mótað sér skýra
stefnu, sem tekur til allra helstu mála-
flokka sem koma til kasta Alþingis.
Við leggjum áherslu á að stjórnmál og
kosningar snúast um hugsjónir og málefni.
Við leggjum áherslu á nútíð og framtíð. Við
viljum að fólk fái mannsæmandi laun fyrir
vinnu sína og hafi tíma og aðstæður til að
ala upp börn sín. Við viljum umgangast
Móður Jörð með virðingu vegna þess að
komandi kynslóðum og náttúrunni er ógn-
að af vígbúnaði, eyðingu lands og mengun.
Kvennalistinn vill nýta gæði lands og
sjávar skynsamlega. Við viljum leggja
áherslu á íjölbreytt atvinnulíf um allt land
en höfnum mengandi stóriðju. Við viljum
að ísland og hafsvæðin umhverfis landið
verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði og að
herstöðvar hér á landi verði lagðar niður.
Framtíðin er í höndum okkar sem nú
lifum. Kvennalistinn vill vinna að því að
skapa réttlátara þjóðfélag íyrir okkur öll,
konur, karla, aldna og óborna. Vilt þú
leggja okkur lið?
PILSAÞYTUR á Suðurlandi
2. tbl. 1. árgangur, april 1991
Útgefandi: Samtök um Kvennalista á Suðurlandi.
Ritnefnd: Eva Guðný Þorvaldsdóttir
Jóna Vigfúsdóttir
Kristín Þórarinsdóttir
Rannveig Óladóttir
Sigurborg Hilmarsdóttir
Ábyrgðarmaður: Sigurborg Hilmarsdóttir
Útlit: Harpa Bjömsdóttir
Auglýsingar: Eva Guðný Þorvaldsdóttir
Nanna Þorláksdóttir
Tölvusetning og -umbrot: Edda Harðardóttir
Filmuvinna: Prentþjónustan hf.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Forsíðumyndin er af Báru Gísladóttur,
Byggðarhomi í Flóa.
Kosningaskrifstofa
KVENNALISTANS
er á Engjavegi 29, Selfossi
(2. hæð, fyrir ofan Arvirkjann).
Þér er boðið að líta inn.
Ema Siguijónsdóttir kosningastýra býður uppá
te eða kaffi (og stefnuskrá Kvennalistans!)
Við höfum til sölu spennandi vaming;
boli, nælur, gammosíur, svuntur, handklæði,
merki o.fl.
Opið alla virka daga kl. 14-18 og flest kvöld.
Sími 21006.
Allir velkomnir.
2