Pilsaþytur á Suðurlandi - 01.04.1991, Blaðsíða 8
Velium vitrænl - veljum
Níu af tólf frambjóðendum Kvennalistans á Suðurlandi.
KVENNALISTINN VILL
• aS daglaunavinna duai til framfæris og óheimilt verði að
greiða laun undir framfærslumörkum
• hækka persónuafslátt og miða skattleysismörk við fram-
færslukostnaS
• að tekjuskattsþrep verði að minnsta kosti tvö
• fella niður virðisaukaskatt á matvælum
• lengja fæðingarorlof í 9 mánuði
• að foreldrar eigi kost á styttri og sveigjanlegri vinnutíma
þannig að aukinn tími gefist til samveru fjölskyldunnar
• atvinnustefnu sem setur velferð fólks í öndvegi og tekur fullt
tillit til fjölskyldunnar
• fjölbreyttari atvinnu fyrir konur einkum á landsbyggðinni og
auka stuðning við frumkvæði og fyrirtæki kvenna
• endurreisa íslenskan ullariðnað, efla líftækni, úrvinnslu jarð-
efna, stuðla að tilraunum í vetnisframleiðslu og efla iðnráð-
gjöf
• að 80% af heildarafla sjávarafurða verði úthlutað til byggð-
arlaga sem ráðstafi þeim eftir eigin reglum
• að ekki sé siglt með aflann til sölu erlendis, án þess að
íslenskum fiskkaupendum gefist kostur á að bjóða í fiskinn til
vinnslu hérlendis
• að leitað verði nýrra leiða við vinnslu aflans og megin-
áhersla lögð á gæði framleiðslunnar og aukna nýtingu
hráefnisins
• að áhrif kvenna á mótun og stjórnun landbúnaðarins stór-
aukist og verði í samræmi við mikilvægi þeirra í þeirri grein
• að ekki verði stuðlað að verksmiðjureknum stórbúskap
• að allar opinberar stöður verði auglýstar og faglegt mat
haft í fyrirrúmi þannig að pólitískar stöðuveitingar heyri
sögunni til
• jafna raforkuverð um allt land
• jöfnun milli landshluta, atvinnustétta og kynja og sjá til þess
að allir íbúar landsins hafi greiðan aðgang að þeirri þjón-
ustu sem þeir eiga rétt á
• að dreaið verði úr miðstýringu með því að auka vald
byggðakjarna, takmarka afskipti og verkefni ríkisins, efla
fjárhagslegt sjálfstæði stofnana og færa þjónustu út á land
eftir því sem kostur er
• að ellilífeyrisþegar missi ekki yfirráðarétt yfir grunnlífeyri
sínum þó að þeir fari á vistheimili
• að þeir sem annast um elli- og örorkulífevrisþega og geta af
þeim orsökum ekki stundað vinnu utan heimilis fái umönn-
unarbætur
• að lokið verði við byggingu Sjúkrahúss Suðurlands og starf-
semi þess efld
• að aerðar verði ýtrustu kröfur um að mengun verði
æviníega í lágmarki og þeim kröfum fylgt eftir með virku
eftirliti og viðbúnaði til að verjast umhverfisslysum
• að leitað verði allra leiða til þess að draga úr menaun af
völdum umferðar m.a. með því að efla og bæta almenn-
ingssamgöngur
• að fólk sé hvatt til og því gert kleift að nota fjölnotaumbúðir
• vinna gegn hugarfari hermennskunnar
• að ísland og hafsvæðin umhverfis landið verði lýst kjarn-
orkulaust svæði og að losun geislavirks úrgangs og
eiturefna í hafið verði stranglega bönnuð'
• að Island standi utan Evrópubandalagsins og evrópska
efnahagssvæðisins
8