Norðurslóð - 10.11.1978, Page 2

Norðurslóð - 10.11.1978, Page 2
NORÐURSLÓ Utgefendur og ábyrgðarmenn: Hjortur E. Þórarinsson. Tjörn. Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvlk Úttarr Proppé. Dalvlk Ljósmyndari: fíögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun Prentsmiðja Björns Jónssonar Sigtryggur Amason F. 17. september 1916 - D. 5. október 1978 In Memoriam Saga Dalvíkur Dalvíkursaga, fyrra bindi, kemur út um næstu mánaðamót. Bókin verður allt að 500 bls. að stærð, prýdd 400 myndum, þ.á.m. litmyndum. Sagan nær víða útfyrir Dalvík og Svarfaðardal og grípur inn á viðburði og heimildir frá miklu stærra svæði. Útsöluverð bókarinnar verður kr. áskrifenda kr. 12.000. 1 5.000. en til Áskrifendasöfnun stendur enn yfir. Afgreiðslu- menn eru Jónas Hallgrímsson, Bjarkarbraut 1, Dalvík, sími 61116, og Sigvaldi Júlíusson, Bústað 7 við Kleppsspítala , sími 9 1-352Ö7. Dalvíkurbær. — ÞAKKARÁVARP Hjartansþakkir tilallra skyldra og vanda/ausra, er glöddu okkur meðgjöfum og skeytum og hlýhug á 70 ára afmæ/um okkar 12. júlí og 9. október s. I. Guð blessi ykkur ÖH. Hjónin í Svæði. í dýrðlegu haustveðri, laugar daginn 14. október, kvöddu Svarfdælingar hinstu kveðju góðan vin og sveitunga, Sig- trygg Árnason frá Brekkukoti. Hin rúmgóða kirkja á Dalvík var fullsetin þegar kveðjuat- höfnin fór fram. Presturinn, sr. Stefán, hélt minningarræðu, en kirkjukór og félagar úr karlakór sungu. Að þeirri athöfn lokinni var kista Sigtryggs flutt fram í Tjarnarkirkjugarð og jarðsett þar sem foreldrar hans og aðrir nánir ættingjar hvíla. Hinn mikli mannfjöldi, sem viðstaddur var, bar jjess ljósan vott, hver ítök Sigtryggur Árna- son, Tryggvi í Brekkukoti, átti í hugum sveitunga sinna, bæði í Svarfaðardal og á Dalvík. Blíð- viðri haustsins og litadýrð lofts og láðs mynduðu fagra og tilhlýðilega umgjörð um þessa látlausu jarðarför og stuðluðu að þeirri heiðríkju, sem er og verða mun yfir minningu Tryggva í Brekkukoti í hugum okkar sveitunga hans og vina og vandamanna hans nær og fjær. Hann leit fyrst dagsins ljós langt frammi í dal, á Klaufa- brekkum, í hinum volduga fjallafaðmi framdalsins. Á ung- lingsárum hans flutti fjölskyld- an niður í miðsveitina, fyrsts í Steindyr, en 4 árum síðar í Brekkukot. Þar lifði Tryggvi lengstan kafla ævi sinnar og við þann bæ, nú fallinn úr byggð, er nafn hans tengt í minningu samferðamanna. Hann var vel fullorðinn mað ur, þegar hann fluttist síðasta — í Frá Kjörmarkaði KEA Bestu innkaupin eru gerð í Glerárgötu 28. Allar vörur með 10% afslætti Auk þess ágóðaskyldur. Fylgist með vöruverðinu og verslið hagstætt. MATVÖRUDEILD !ili Sigtryggur Árnason. Myndin tekin á Tungurétt á réttardag í september sl. áfangann á lífsleið sinni niður eftir sveitinni, eins og vatnið, sem rennurfráfjöllumtilsjávar. í þetta sinn varáfangastaðurinn Dalvík. Þarbjó hann I2síðustu aldursárin og starfaði sem af- greiðslumaður í byggingavöru- deild kaupfélagsins. Hann kvæntist ekki, en bjó með foreldrum sínum og síðar, eftir lát Árna, með Sólveigu móður sinni og Jóhönnu systur hennar í Sunnuhvoli á Dalvík. Þetta er ekki margbrotin saga eins og hún er hér sögð og sviðið er alltaf hið sama, svarfdælsk byggð, aðeins örlítil tilfærsla svo sem á milli atriða í stuttum, einföldum leik. Samt er saga Tryggva í Brekkukoti í raun og veru hvorki stutt né einföld. Hann vann langan, samfelldan starfs- dag og lagði mörgum góðum málum lið. Á ytra borði virtist líf hans máske fábrotið, en hann átti sér hugarhpim auðugan af áhuga- og hugðarefnum. Hann var mikill og einlægur unnandi söngs og tóna og í íslenskum bókmenntaheimi var hann ágæt lega kunnugur. Hann fylgdist vel með hrær- ingum mannlífsins í þjóðfélag- inu og í næsta umhverfi, e.t.v. fremur sem áhorfandi en sem þátttakandi, lagði jafnan gott til mála og átti aldrei í útistöðum við nokkurn mann. Hann var sjálfsagt ekki að öllu leyti sáttur við eigin örlög, sem sniðu lífi hans þröngan stakk, en gerði ekki uppreisn gegn þeim. Hann var ekki þannig skapi farinn. Ábyrgðarkennd hans og skyldutilfinning gagnvart sam- ferðamönnum almennt og vandamönnum sínum sérstak- lega var ákaflega ríkur þáttur í eðlisfari Tryggva og kannske sá þátturinn, sem auðsæastur var. En það var aðeins einn af mörgum góðum kostum hans. Hann var í sannleika vandaður maður til orðs og æðis, um það eru örugglega allir sammála, góðviljaður maður, sem vildi láta gott af sár leiða. Og hann uppskar ríkulega ávexti góð- semi sinnar og hógværeðar í vinarhug og trausti allra þeirra, sem við hann áttu einhver skipti, og þeir voru margir. Tryggvi í Brekkukoti var góður Svarfdælingur og unni sveit sinni og samferðamönn- um. Hann helgaði þessu byggð- arlagi alla starfskrafta sína, fyrst sem bóndi í sveitinni, síðan sem starfsamaður kaupfélags- ins á Dalvík. Hvert handtakævi hans var unnið í þágu þess fólks, sem hér býr skyldra og vanda- lausra. Það var enginn sorgarblær yfir jarðarför Trýggva. Til þess var ekki ástæða, hann hafði lifað vel og skildi einungis eftir góðar minningar en engin vandamál öðrum til úrlausnar. En við brottför hans fer ekki hjá því, að margur finnur með söknuði, að horfinn er einn þeirra, sem settu svip á mannlíf héraðsins, einn þeirra sem í persónu sinni tengdu saman svarfdælska sveit og fcaupstað. Hjörtur E. Þórarinsson. Bréf frá bræðrum Framhald af bls. 3. Teldi ég vel viðeigandi, að slíkt minnismerki yrði látið standa nálægt heilsugæslustöð- inni eða jafnvel í fögrum skrúðgarði við elliheimilið?“ Séra Trausti fer út í aðra sálma: ,,Ég hafði gaman af mynda- opnu Tímans frá Tungurétt. Þar birtust þó nokkur andlit, sem ég þekkti, þótt kynslóðabil- ið sé orðið nokkuð stórt. Þessar myndir minntu mig líka á gamla daga, þegar maður var sjálfur þátttakandi í réttarfagnaði á Tungurétt og gangnamaður í Stólnum. Það er bjart yfir þeim minn- ingum, þótt veðrið hafi stund- um sorfið hart að bæði mönn- um og málleysingjum. Sérstak- lega minnist ég eins réttardags, er norðaustan rigning og storm ur ætluðu allt að drepa. Þá björguðum við Vilhelm frændi minn lífi okkar með því að setjast á bak Gránu og Skjónu og ríða sem harðast heim, áður en búið var að draga. En blautir og kaldir vorum við, þegar við komumst heim í gömlu baðstofuna á Jarðbrú. Um morguninn hafði verið dásemdarveður, svo fáum hefur víst dottið í hug að hafa með sér regnföt, og sumir ekki átt þau - í það minnsta ekki ég.“ Blaðið þakkar þeim bræðr- um tilskrifið og sendir þeim svarfdælska vinarkveðju. Útboð Tilboð óskast í byggingu á 6 leiguíbúðum í raðhúsi við Hjarðarslóð, Dalvík. Húsin skulu vera fokheld fyrir 15. ágúst 1979 og full- gerð 15. maí 1980. Útboðsgögn fást hjá bæjartæknifræðingi Dalvíkurog á Teiknistofu húsnæðismálastofnunar. Leiguíbúðanefnd Dalvíkur. 2 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.