Norðurslóð - 19.02.1980, Side 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfáöardal
Jóhann Antonsson, Dalvik
Óttar Proppé, Dalvlk
Afgreiðsla og innheimta: Sigriöur Hafstað, Tjörn
Ljósmyndari: fíögnvaldur Sk. Friöbjörnsson
Prentun: PrentsmiOja Björns Jónssonar
Auglýsing
Dalvíkurbær auglýsir hér með eftir umsóknum um
kaup á íbúð að Hjarðarslóð 6, Dalvík, samkvæmt
lögum um leigu- og söluíbúðir.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 1980.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um:
1. Atvinnu umsækjenda
2. Fjölskyldustærð
3. Húsnæðisstöðu þeirra
4. Tekjur umsækjenda og eignir s.l. þrjú ár.
Allar frekari upplýsingar þ.m.t. upplýsingar um
stærð og gerð íbúðanna eru veittar á skrifstofum
bæjarins.
Dalvík, 18. febrúar 1980.
Bæjarstjóri.
...... ................... ■ ■ ■■ >
Húsnæði til sölu
Dalvíkurbær auglýsir til sölu suðurhluta húseign-
arinnar Skíðabraut 4, Dalvík (áður bæjarskrif-
stofur).
Tilboð skilist á bæjarskrifstofumar, Ráðhúsi Dal-
víkur, fyrir 1. mars 1980.
Bæjarstjórinn Dalvík.
Upphitunarvandamálið
hitadeild Orkustofnunar þetta
mál til athugunar á síðastliðnu
ári og lét hreppsnefndinni í té
umsögn í desember. Hefur
Norðurslóð fengið leyfi til að
birta bréfið, sem er undirritað af
Kristjáni Sæmundssyni helsta
jarðhitasérfræðing deildarinn-
ar:
Bréf Orkustofnunar
„í apríl síðastliðnum var tekið á
vegum Jarðhitadeildar vatns-
sýni úr borholunni við Lauga-
hlíð til efnagreiningar. Til-
gangurinn var að athuga hversu
heitt vatn megi væntanlega fá úr
því vatnskerfi, sem fæðir laug-
arnar við Laugahlíð. Nokkrar
gamlar efnagreiningar eru til og
ber öllum greiningunum vel
saman. Samkvæmt þeim má
búast við allt að 50° C heitu
vatni í nokkur hundruð metra
djúpri borholu við Laugahlíð.
I Eyjafirði stjórna berggang-
ar víðast hvar upprennsli heits
vatns neðan úr berggrunninum.
Talið er að svo sé einnig í Svarf-
aðardal. Til að finna legu
ganganna og þar með upp-
streymisleið heita vatnsins þarf
að segulmæla allstórt svæði við
laugarnar og gera jarðfræði-
rannsóknir í nágrenni jarð-
hitans. Þessar athuganir gætu
tekið tvo menn um það bil tíu
daga. Áætlaður kostnaður
miðað við núverandi verðlag er
1 millj. kr.
Samkvæmt upplýsingum frá
Jarðborunum ríkisins kostar
600 m. borhola með jarðborn-
um Ými um 30 milljónir króna á
núgildandi verðlagi. Orkusjóð-
ur hefur yfírleitt lánað 60%
borkostnaðar vegna borana
fyrir hitaveitur.
Áður en farið verður út í frek-
ari rannsóknir, er nauðsynlegt
að gera úttekt á hagkvæmni
hitaveitu miðað við 50° C heitt
vatn, og bera saman við aðra
2 - NORÐURSLÓÐ
Framhald af forsíðu.
kosti til upphitunar. Jarðhita-
deiid mun gera slíka hag-
kvæmnisúttekt og senda yður
fyrir vorið. Ef útkoman verður
góð ætti að vera hægt að gera
nauðsynlegar rannsóknir til
undirbúnings borun næsta
sumar.“
Tvær stórar spurningar
Eins og í bréfinu stendur er
þarna a.m.k. tveimur þýðinga-
miklum spurningum ósvarað: í
fyrsta lagi! fæst þarna 50 stiga
heitt vatn eða meira, og í öðru
lagi væri fjárhagslega hag-
kvæmt að leiða slíkt vatn um
einhvern hluta sveitarinnar?
Undir svarinu við síðari spurn-
ingunni er það væntanlega
komið, hvort réttlætanlegt
þykir að leggja í kostnað og
áhættu við að fá hinni fyrri
svarað.
Aðrir kostir.
Ástæða er til að staldra við það
atriði í bréfi Jarðhitadeildar þar
sem segir að naupsynlegt sé að
bera hagkvæmni varmaveitu frá
Laugahlíð saman við „aðra
kosti til upphitunar“. Hér er
vafalaust m.a. átt við saman-
burð við niðurgreidda olíu
og/eða rafhitun. En jafnframt
hlýtur þama að koma til skoðun-
ar möguleikinn að tengjast hita-
veitu Dalvíkurhjá Hrafnsstaða-
koti og kannske ekkert síður
sérstök hitaveita frá Hamri (þar
sem nú er þó nokkuð afgangs-
vatn) fram Austurkjálka og yfir
ána á hagkvæmum stað.
Hvor kosturinn sem fýsilegur
þætti þyrfti þarna að koma til
góð samvinna við Dalvíkinga.
Ekki er að efa að slíkt mætti
takast og má þá hafa í huga að
Dalvíkingar njóta verulega
góðra kjara hjá Svarfaðardals-
hreppi í sambandi við vinnslu
og notkun heita vatnsins á
eignarjörð hreppsins á Hamri.
Frk. Margrét
staldrar við
á Dalvík
Vikuna 25. - 29. febrúar n.k.
mun Þjóðleikhúsið heimsækja
Dalvík og nágrannabyggðir
með hið kunna leikrit, „frk.
Margrét“. Höfundurinn, Ro-
berto Athayde frá Brasilíu var
aðeins 18 ára gamall er hann reit
þetta verk, og þá sennilega enn
sitjandi á skólabekk. íleikritinu
fáum við einmitt að fylgjast með
kennslukonunni, frk. Margréti
og kennsluháttum hennarítvær
kennslustundir.
Þótt hinn ytri rammi verksins
takmarkist af þröngum veggj-
um skólastofunnar, þá er ekki
örgrannt um að finna megi enn
djúpstæðari og víðtækari merk-
ingu í því sem ber á góma.
Skírskota menn þá gjarnan til
þess þjóðfélagsástands sem ríkt
hefur í Brasilíu - og raunar
miklu víðar.
Með hlutverk kefinslukon-
unnar í uppfærslu Þjóðleik-
hússins fer Herdís Þorvalds-
dóttir. Hefur túlkun hennar á
þessu verkefni hvarvetna hlotið
einróma lof. Leikritið hefur
verið sýnt nú á þriðja ár, alls um
120 skipti. Um páskana í fyrra
var „frk. Margrét" sýnd á
árlegri leikhúsviku í Helsingfors
í Finnlandi, í boði þarlendra.
Undirtektir urðu slíkar að nú
hefur Þjóðleikhúsinu verið boð-
ið að sýna verkið enn víðar.
Þýðandi leikritsins er Úlfar
Hjörvar, en leikstjóri Benedikt
Árnason.
Óhætt er að fullyrða að frk.
Margrét kennslukona vekur
margar spurningar, og er að því
leyti tilvalin hvati til umræðna
um skólamál og þjóðfélagsmál
yfirleitt.
Fyrirhuguð er skólasýning
þann 26. febrúar á Dalvík og
sýning fyrir almenning þann 27.
febrúar. Nánar verður auglýst
um þetta síðar. G. B.
Hvar eru reikistjömumar?
Örstutt dbending fyrir skýjaglópa
Þessi grein er skrifuð fyrir þá,
ef einhverjir eru, sem hafa
gaman af að líta upp í loftið á
björtum kvöldum og virða fyrir
sér festinguna.
Það vill svo til að nú um
stundir sjást þar mjög greinilega
4 reikistjörnur vorar.
Fyrst ber að nefna ástastjörn-
una Venus. Hún er kvöldstjarna
um þessar mundir á suðvestur
himni. Nú um miðjanfebrúarer
braut hennar orðin nokkuð hátt
á lofti, en er þó enn björt og
undrafögur, þegar sól sest og
lítið eitt farið að húma að.
Þá er það Júppíter. Hann er
nú í merki Ljónsins og kemur
upp með því um 10 leytið á
kvöldin undan miðjum Látra-
fjöllum eða svo frá Dalvík séð.
Júppíter er skíriandi bjartur og
gengur að því leyti næst Venus,
þegar hún er björtust.
Mars, stjarna herguðsins, er
líka í Ljónsmerkinu dálítinn
spöl á eftir (vinstra megin við)
Júppíter. Mars er auðþekktur á
sínum daufrauða lit.
Loks er það Satúnus, stjarna
sjávarguðsins. Hann er líka
furðunærri hinum tveimur fyrr-
nefndu, en er þó ekki í Ljóninu
heldur Meyjarmerkinu núna.
Hann er svo sem hálftíma á eftir
Mars (að koma upp) og er dálít-
ið lægra á himninum og er held-
ur daufari. Þessar 3 stjörnur
fara mjög hátt yfir himinbog-
ann og setjast undir vesturfjöll-
in þegar morgnar, líklega undir
Böggustaðafjallið frá Dalvík
séð.
Þess skal að lokum getið að
auðvitað „reika“ þessar stjörn-
ur burt úr þessum stöðum, en
mishratt þó. Venus mun bráð-
lega hverfa okkur sýnum, en
birtast svo sem morgunstjarna í
ágúst. Mars færir sig líka fljótt
milli stjörnumerkja, enda er
hann bara tæp 2 ár að hringsnú-
ast um sólu.
Júppíter er hinsvegar nærri
12 ár að ljúka sinni hringferð og
vesalings Satúnus þarf heil 30 ár
til að tölta hringinn sinn. Við
megum því búast við að sjá
hann á svipnðum slóðum og
hann er nú í langan, langan
tíma.
Lengi hefur verið uppi ráðgerð
um að gera símann hér í Svarf-
aðardal sjálfvirkan, eins og
hann er nú orðinn áallri línunni
Akureyri-Dalvík.
Umdæmisstjóri Pósts og
síma á Akureyri, Ársæll
Magnússon lét góðfúslega eftir-
farandi upplýsingar í té.
í samræmi við langtíma
áætlun Landsímans og sam-
kvæmt eindregnum tilmælum
hreppsnefndar Svarfaðardals-
hrepps er Svarfdælska síma-
kerfið nú á framkvæmdaáætlun
ársins 1980. Þess ber þó að geta
að þetta er áætlun stofnunar-
innar en til þess að öðlast gildi
þarf hún að hljóta samþykki
Alþingis. Þetta getur því ekki
talist öruggt ennþá.
f sambancii við þessa breyt-
ingu þarf að leggja nýjan jarð-
streng í sveitina og er kostnaður
áætlaður kr. 50 milljónir. Þá
verður ennfremur að stækka
stöðina (miðstöðina) á Dalvík
sem nú hefur 400 númer, svo
unnt sé að bæta hinum nýju
Og svo skal svona í lokin bent
á fastastjörnuna Síríus, hunda-
stjörnuna, sem er allra fasta-
stjarna fegurst, tindrandi í öll-
um litbrigðum. Hérna í mið-
sveitinni fer hún fremur lágt yfir
fjöllum, en frá Dalvík séð er
sýnileg braut hennar talsvert
löng. Hún kemur upp undan
Vallafjalli nú um kl. 9 og sest
yfir Svarfaðardalnum.
H.E.Þ.
númerum við. Engin vand-
kvæði eiga að vera á því tækni-
lega, ef kostnaður að sjálfsögðu
nokkur.
Aukinn notendakostnaður.
Nú er bara að bíða og biðja að
fjárbeiðni Landsímans til þess-
arar framkvæmdar verði ekki
skorin niður af Fjárveitinga-
nefnd og Alþingi. Þess ber að
geta að stofnunin er hér ekki að
biðja Alþingi um fjárveitingu á
fjárlögum, heldur um heimild til
að gera framkvæmd, sem kost-
uð verður af eigin tekjum
símans.
Að lokum skal á það minnt,
að engin rós er án þyrna. í þessu
sambandi þýðir þetta það að
kostnaður notandans af sjálf-
virka símanum er til muna
hærri en af gamla kerfinu og
kemur það víst engum á óvart.
Þó verða Svarfdælingar að því
leyti vel settir að Dalvík og
sveitin verða eitt símsvæði, svo
ekki kostar neitt sérstaklega að
tala innan þess.
SjálfVirkur sími
• Svarfaðardalur á áætlun L. L
• Alþingi á eftir að samþykkja
Lengi er von á einum
Rétt eftir að síðasta tölublað
kom út, þar sem birtar voru
niðurstöður jólagetrauna blaðs-
ins, kom upp úr pósthólfinu enn
eitt lausnarbréfið. Það var frá
Jóni Bjartmar Hermannssyni
frá Klængshóli. Það var lausn á
Ijóðagetrauninni og viti menn:
öll 20svörin rétt. Líka nr. 5. sem
þó var í rauninni ekki hægt að
svara rétt af því að vitlaust var
spurt.
Svona lá í málinu. Spurt var:
hvert stefna allar stundir? Og
svarið átti að vera: til dómsins
sbr. kvæði Benedikts Gröndal,
Gýgjan. Gallinn var bara sá, að
höfundur getraunarinnar hafði
lært þessa ljóðlínur vitlaust í
æsku sinni. Hann hélt að kvæð-
ið endaðisvona:
Ég veit að alltaf eilíf lifir saga
Og allar stundir stefna dómsins
til
Nú er síðasta línan alls ekki
svona, heldur:
og allar stundir nefndir dóm-
sins til.
Þetta er auðvitað miklu betra
hjá Benedikt. Og það merkilega
er að Jón Hermannsson hefur
áttað sig á þessari vitleysu og
tilfærir sem svar ljóðlínurnar
tvær, eins og þær eiga að vera.
Vel gert, Jón!.
H.E.Þ.