Norðurslóð - 26.06.1980, Side 4

Norðurslóð - 26.06.1980, Side 4
Tímamót 17. júní voru gefin saman í hjónaband í Vallakirkju Óskar Sveinrt Jónsson verkstæðisformaður og Dóróthea Gísladóttir frá Hofsá. Heimili þeirra er Ægisgata 4, Dalvík. Þann 1. júní var skírölngibjörg ösp, foreldrar Guðrún Ingva-, dóttir og Ingólfur Jónasson verkamaður Dalvík. Þann 1. júní var skírður Kristján, foreldrar Ingigerður Snorradóttir og Sturla Kristjánsson, fræðslustjóri, Akureyri. Þann 17. júní var skírðurSveinnBirkir, foreldrar Sigurbjörg Snorradóttir og Sveinn Kristinsson sjómaður frá Dalvík. Heimili þeirra er á Krossum á Árskógsströnd. Þann 17. júní var skírður Teitur Már, foreldrar Sveinn Sveinsson og Anna Dóra Antonsdóttir frá Dalvík. Þau búa á Frostastöðum í Skagafírði. Þann 24. maí andaðist Sigurjón Stefánsson, bókbindari á Húsabakka. Hann var jarðsettur á Vopnafirði þann 31. maí. Þann 15. júní andaðist Súsanna Guðmundsdóttir fyrrum hús- freyja á Hóli. Hún fæddist á Óslandi í Skagafírði 6. febrúar 1884 og var því elsti borgari í prestakallinu. Árið 1916 giftist hún Zóhóníasi Jónssyni á Hóli, þar sem þau áttu heima til ársins 1976. Súsanna var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 21. júní. Þann 16. júní andaðist Sigurlaug Jónsdóttir í Dalsmynni á Dalvík. Hún var fædd 14. okt 1901 á Hofí. Árið 1947 giftist hún Kristni Jónssyni, sundkennara, frá Hrafnsstaðakoti og bjuggu þau á Dalvík allan sinn búskap. Sigurlaug var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 24. júní. Þann 20. júní andaðist Anna Gunnlaugsdóttir vistmaður í Dalbæ. Hún fæddist 10. ágúst 1919 á Hreiðarsstöðum. Árið 1949 giftist hún Sigurði Jóhannessyni frá Hæringsstöðum. Hún verður jarðsett á Dalvík laugard. 28. júní. Sá fær happ sem hamingjan ann ÖII langar okkur til að detta í lukkupottinn. Flest höfum við a.m.k. látið okkur dreyma um að hreppa stóra vinninginn í happdrætti. En því miður rætast skíkir draumar sjaldan, það vantar alltaf eitthvað upp á, að vísu stundum sárgrætilega lítið, e.t.v. munar ekki nema einum á vinningsnúmerinu og númerinu á okkar miða. Svona er lífið. Eða hvað. . . ? Ekki alltaf. Hún Rósa Kristinsdóttir getur vitnað um það. Við Norðurslóðar fengum að spjalla við hana stutta stund í bókaversluninni Sogn þann 9. maí s.I., en þar var Rósa komin tii að taka á móti stóra vinningnum, þeim alstærsta í happdrætti DAS, 25.000.000,- kr. Á meðan ljósmyndarinn okk- ar, hann Rögnvaldur Frið- björnsson, mundaði tæki sín og tól, skutum viðnokkrumspurn- ingum að Rósu. Jœja, Rósa, Hvernig varð þér við þegar þú fréttir þetta? „Guðlaug Ántonsdóttir hring di í mig. Mér þótti þetta ótrúlegt. Taldi þetta vera ein- hvern misskilning sem yrði leiðréttur fljótlega.“ Guðlaug skýtur því inn í samtalið að ekki hafi hún þorað annað en að biðja Rósu að setjast áður en hún segði henni tíðindin. „ Mér hefur aldrei dottið í hug að ég fengi stóran vinning, hvað þá svona stóran,“ segir Rósa. „Ég hef spilað lengi í happdrætti. Þennan miða, sem ég vann á núna er ég búin að eiga í a.m.k. 20 ár og þetta er reyndar eini miðinn sem ég er með núna. Fyrir einum þrettán árum fékk ég vinning á þennan sama miða, 5.000 krónur.“ Við spyrjum hvort hún haft ákveðið hvað hún œtlar aðgera með peningana, hvort ekki sé upplagt að leggjast bara í leti. Sólveig Antonsdóttir réttir Rósu Kristinsdóttur í Árhóli tuttugu og fimm milljón króna ávísun. Við hlið hennar er Guðlaug Antonsdóttir, en, eins og kunnugt er, reka þær systur verslunina Sogn sem er umboðsaðili fyrir stóru happdrættin. „Ja, ég varð alveg ráðalaus í bili, en ég held alveg sönsum. Ég er ekkert farin að hugsa um hvað ég geri við þessa peninga. Eitt er víst, ég hætti örugglega ekki að vinna, ekki á meðan ég hef heilsu og einhver vill hafa mig í vinnu.“ Við þökkum Rósu spjallið og um leið og við óskum henni til hamingju leyfum við okkur enn þá einu sinni að láta okkur dreyma um að detta í lukku- pollinn. Það er alltaf smá von, eða hvað . . . ? Kannski. . . ÓP Um hvítasunnuna gekkst Lions- klúbbur Dalvíkur fyrirsýningu í barnaskólanum á Dalvík. Var þetta liður í þeirri viðleitni klúbbsins að sinna menningar- málum á staðnum og hefur þetta á undanförnum árum verið auglýst undir nafninu ,, Vorkorna á Dalvík." Undirritaður lagði leið sína í skólann án þess að búast við nokkru sérlega forvitinlegu, en reyndin varð önnur. Þarna reyndust vera 4 aðgreindar sýningar allar merkilegar á sinn hátt. Fyrst skal nefna málverka- sýningu Sólveigar P. Eggertz, sem margir hér þekkja ekki síður undir nafninu Dollý í Hánefsstöðum. Sýning hennar var í tvennu lagi ,,-venjuleg“ málverkasýning og sýning mál- aðra mannamynda á rekavið. Undirritaður kann' ekki að skrifa um málverk, engetursagt það eitt að mesta athygli hans vöktu rekaviðarmálverkin. Það er eftthvað töfrandi og dular- fullt við þessi andlit, sem horfa á mann með sínum óræða svip út úr hrjúfu timbrinu. Sennilega er hér á ferðinni mjög merkileg listsköpun. Vert er að geta þess að öll listaverkin voru til sölu og seldust velflest. Ekki ætlaði þó listakonanan sér að græða peninga á sýningunni, því að hún gaf Lionsklúbbnum allt, sem inn kom, til velferðarmála hér, sem klúbburinn styður. Mörg af listaverkunum seld- ust og gáfu klúbbnum í aðra hönd kr. 1.175.000.- Þá var frímerkjasýning þeirra Sveins Jónssonar í Kálfskinni og Björgvins Jónssonar skip- stjóra. Mun sýningsú hafa verið hin merkasta, en vakti lítinn áhuga leikmanns, sem ekkert kann í þeim sérstöku fræðum, sem söfnun og uppsetning frí- merkja er. Öðru máli gegndi muna- sýningu Kristjáns Ólafssonar, útibússtjóra. Oft hefur verið ia;að um það, að þarflegt væri Framhlaðningur, skíði, páll ofl. að koma hér upp dálitlu mynja- safni og ná saman í því skyni einhverjum munum, tækjum og öðru, sem áður voru í notkun, en tilheyra nú sögunni. Það er skemmst frá því að segja, að þarna er Kristján búinn að draga saman ótrúlega marga gripi, suma mjög eigulega, amboð alskonar, smíðatól o.fl. o.fl. Alls voru þarna um 230 hlutir, flest eign Kristjáns og safnað hér heima. Eitthvað er þó í eigu Lionsklúbbsins, safnað á undanförnum árum, og nokkr ir mundir, sem Kristján hefur fengið framan úr Eyjafirði. Aðspurður sagði Kristján, að það væri ætlun sín að þessi vísir að byggðasafni færi ekki héðan burt, heldur kæmist í almenningseign þegar stundir líða, og einhver staður finnst, þar sem unnt er að hafa það til sýnis. Er þetta björgunarstarf Kristjáns stórlega þakkarvert og má ótrúlegt heita, ef ekki fínnst bráðlega einhver boð- legur geymslustaður þessara muna og annarra, sem enn eru til á flækingi og þyrftu að komast „undir manna hendur". Síðasta og jafnframt furðu- legasta safnið, sem ásýningunni var, er kortasafn Guðbergs Magnússonar á Þverá. Guð- bergur hefur á undanförnum árum safnað allskonar kortum, póstkortum, jólakortum, af- mæliskortum o.s.frv. 5-6000 að tölu. Ekki var það þó allt á sýningunni. Allt er þetta sett í kerfi og raðað upp í albúm. Jafnframt er skrá með upplýs- ingum um hvert kort, hver sendi, hverjum sent, hvaða ár o.fl. Er þetta allt hið mesta eljuverk og snyrtilega upp sett. Eins og Kristján hefur Guð- bergur hug á að koma þessu verki sínu fyrir á almennings- safni hér á Dalvík. Og lýkur hér að segja frá þessari sérkennilegu sýningu. H.E.Þ. Hér birtum við mynd af Helga Má Halldórssyni á Jarðbrú. Hann hefur átt nokkrar ágætar myndir i Norðurslóð, án þess að þess hafi verið sérstaklega getið. f síðasta tölublaði átti hann t.d. 4 myndir þ.e. frá kynningarfundum forsetaefna og vígslu minningar- skjaldar Kristins sundkennara. Blaðið kann Helga bestu þakkir fyrir framlag hans. MÉR ER SPURN? Norðurslóð leitar svara 1. Hverjir áttu að sjá uni hátíðarhöldin 17. júní á Dalvík, þau gleymdust. 2. Hvað ætla bæjaryfirvöld að gera í tilefni af Ári trésins? A.V. 1. Bæjarstjórn leitaði eftir því við félagssamtök á staðnum, að vísu með mjög stuttum fyrir- vara, hvort hugsanlegt væri að þau hefðu umsjón með ein- hverjum hátíðarhöldum þann 17. júní. Af því gat ekki orðið og því var ákveðið að ekki yrði af hálfu bæjarins staðið fyrir nein- um hátíðarhöldum. I umræðum um þetta mál hefur komið fram vilji til að endurvekja „vor- mót“ við Sundskála Svarfdæla þann 17. júní ár hvert og þá i samvinnu við Svarfaðardals- hrepp. 2. Bæjarstjórn Dalvíkur hefur þegar samþykkt að fengnum Framhald á bls. 2. Merkileg söfn

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.