Norðurslóð - 24.10.1980, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 24.10.1980, Blaðsíða 4
Útgerð og fiskvinnsla Skólastjóri og nemendur. Skólasetning á Húsabakka Framhald af forsíðu. inni, þennan líka ágætismat, sem þær búa til Ósk og Halla. (Og samt ódýra, innskot blaða- manns). En samband við foreldra barn- anna? Við höfum haft talsvert sam- band við heimilin og viljum hafa það meira ogtilframbúðar. Það hefur komið í ljós að sumir ungu foreldrarnir hafa dálitlar efa- semdir um það, hvort rétt sé að taka svona ung börn í heima- vist, 7 ára skinn. Eftir þessa stuttu reynslu virðist mér nú, segir Júlíana, að þetta gangi býsna vel og ég hef styrkst í þeirri trú, að þetta eigi ekki að vera mikið vandamál. Hér hjálpar það hvað mest, að hafa þetta góða starfsfólk, og svo er eldri börnin mörg svo einstak- lega góð og nærgætin við litlu krakkana. Svo eru þetta nú bar 3 nætur í viku, sem þeir eru hér í vistinni. Já mér sýnist þau sjóast ansi fljótt, bætir Björn inn í. Að því er varðar foreldrana, þá er ætlunin að hafa a.m.k. einn foreldradag á vetrinum og svo er nú líka orðið svo auðvelt að hafa samband við okkur sím- leiðis, ef eitthvað þarf að ræða viðvíkjandi börnunum. Þegar rætt er við eldra fólkið hérna í sveitinni um skólann í gamla daga, kemur oft fram, að það minnist með alveg sérstakri ánægju söngsins í gamla Grund- arskólanum. Þetta hafa þau hjónin líka heyrt og eru sammála um að gott sönglíf sé flestu öðru mikilvægara í skóla eins og annarstaðar. Björn hefur hugs- að sér, að reyna að hafa einhvern sameiginlegan söng krakkanfta, eins og reyndar Heimir gerði (og hann var nú svo skrambi góður að spila undir). Til að byrja með verður reynt að láta börnin syngja a.m.k. síðasta tímann, áður en þau fara heim á föstudögum. Nú hafið þið séð aðeins framan í veturinn og hvað snjór getur verið ríkur þáttur í umhverf- inu. Fer ekki um ykkur hryll- ingur? Nei alls ekki, við erum ákveðin í að reyna að hafa gaman af snjónum og erum að koma okkur upp gönguskíðum. Það sýnist gangslítið að vera Hálsbrúin nýja. Vegabætur við Hálsá Nú hefur Akureyrarleiðin styst um eina 50-100 metra. Þaðgerir nýja brúin á Hálsánni og tilheyrandi vegarspottar sem hafa rétt úr beygjunni, sem áður var svo kröpp og hættuleg. Blaðið átti tal við umdæmis- verkfræðing á Akureyri, Guð- mund Svafarsson og fékk eftir- farandi upplýsingar: Brúardeild V.R. sá um brúar gerðina. Verkstjóri var Jakob Böðvarsson frá Akureyri. Brú in kostaði rétt um kr. milljónir. Vegastubbarnir nýju, sitt hvoru meginárinnareru 1.2 km. á lengd. Það voru á áætlun 70 milljónir til verksins. Það tókst líka að hækka gamla veginn niður Hrísamóana þangað, sem hækkunin frá því fyrir þremur árum endaði. 4 - NORÐURSLÓÐ 75 með svigskíði og svoleiðis bún- að hér. Tolli (Þórleifur Björns- son 10 ára) er að safna í göngu- skiðabúnað. Það er sjálfsagt að reyna að efla skíðalíf hér á þessum snjóastað og við viljum endilega hvetja börnin til að koma með gönguskíði í skól- ann, öll sem þau eiga. Drengirnir, Þórleifur og Lárus Arnór 3 ára, eru nær- staddir og hlusta með athygli á gáfulegar samræður þeirra full- orðnu. Hvernig líkar þeim vistin hér í Svarfaðardal? Þetta er allt annað líf, segir Þórleifur alvarlega. Og betra? Já, miklu betra. Lárus Arnór kinkar kolli til samþykkis. Að lokum berst talið að fólki og viðmóti þess við innflytjend- urna. Björn afgreiðir málið á eftirfarandi hátt. / Þegar við vorum að koma okkur hérna fyrir í síðasta mánuði, komu hingað nokkrar góðar konur úr nágrenninu og voru að færa okkur mat. Aðallega var það þó grænmeti úr görðunum þeirra, kál og þess háttar. Um það orti ég stöku þessa: Er að vonum glatt mitt geð, glöggt er hvers ég metinn er. Sífellt koma konur með kálhausa að fagna mér. H.E.Þ. Framhald af forsíðu. annars fylgir honum kraft- blökk. Báturinn verður afhentur inn an skamms, eða þegar síldveið- um hans er lokið. Þess má geta að báturinn var á rækjuveiðum 1978 oglandaðiþá héráDalvík. Seljendur, Hafliði hf. Þorláks- höfn, taka Stafnes upp í kaupin. Á þessu og síðasta ári hefur fiskhús fyrirtækisins verið stækkað um 280 m2 hvor hæð, og nú um áramótin kemur flatningsvél, sem þeir hafa fest kaup á. Bliki hf. Þar hefur verið tekið á móti 928 tn. af fiski, 400 tn. farið í salt og 528 tn. í skreið. Af þessum afla hefur Bliki E.A. 12 komið með 575 tn. að landi, auk þess selt i Hull 97 tn. fyrir 85 milljónir króna. Reiknað er með því að Bliki fari í söluferð síðar í mánuðinum. Hann hefur verið á trolli frá i vor. Um næstu áramót fær fyrirtækið flatnings- vél. Rán hf. Það sem af er hafa þeir tekið á móti 360 tn. affiski. Þar afhefur Sæljón aflað 170 tn. 150 tn. hafa verið söltuð og 210 tn. farið í skreið. Auk þess var Sæljón smá tíma á rækju, en lengst af í sumar, eða nærri 3 mánuði, hamlaði vélarbilun veiðum, en skipið er nú komið í lag og er á netaveiðum. Söltunarfélag Dalvíkur hf. Sl. vetur var tekið á móti 180 tn. af bolfiski, sem skiptist þannig eftir verkunaraðferðum. 67 tn. til frystingar. 45 tn. til söltunar. 68 tn. í skreið. Þá hefur verið tekið á móti 185 tn. af rækju og 198 tn. af síld. Dalborg veiddi 560 tn. á þorskveiðum, en landaði 360 tn. utan heimahafnar. Á rækju- veiðum hefur Dalborg fengið 250 tn. af rækju á árinu, þar af hafa 150 tn. verið fullunnin í skipinu og flutt beint út. Otur hf. Þeir hafa aðeins verkað afla af eigin skipum og hafa þau landað 470 tn. f salt hafa farið 270 tn. og 200 tn. í skreið. í sumar keypti fyrirtækið Búa E.A. 100 af Stefáni Stefánssyni, en voru ekki búnir að selja Otur síðast þegar fréttist. Heyrst hefur að hann verði seldur mönnum hér á Dalvík. Um síðustu áramót tóku þeir í notkun flatningsvél í saltfisk- verkun sinni. Stórhóll sf. Tryggvi Jónsson E.A. hefur aflað 97 tn. það sem af er árinu, en alls hefur fyrirtækið verkað 128 tn. 80 tn. í skreið og48 tn. í salt. Tryggvi Jónsson E.A. var um tíma á síld, en er nú með dragnót. Vinur sf. Á árinu hefur fyrirtækið verkað 216 tn. sem er einungis af eigin bát. 40 tn. fóru i skreið og 176 tn. í salt. Auk þess landaði' Vinur E.A. 130 tn. af síld sumpart hjá S.F.D., en auk þess létu þeir frysta fyrir sig beitv- síld. Síðast liðinn miðvikudag byrjuðu þeir að róa með línu og fengu 5 tn. í fyrsta róðrinum. Haraldur sf. Þar hafa verið verkuð 576 tn. 250 tn. í salt og 326 tn. í skreið. Af þessum afla hefur Haraldur E.A. komið með 545 tn. á land. Nú í haust .hófust byrjunar- 'framkvæmdir við byggingu sem þeir ætla að reisa í stað núverandi húsa. Grunnflötur hennar er 500 m2 á tveimur hæðum. Verðurframkvæmdum haldið áfram næsta sumar. J.A. Saltfiskverkun. Ljósm. Jón Baldvinsson. Hvað gerist svo næsta ár? Á næsta ári verður lagt í Árgerðisbrúna og hún annað- hvort hálf- eða fullgerð. Svo er íjárveiting í veginn í sambandi við hana upp á kr. 150 millj. á* verðlagi þessa árs. Þá er á vegaáætlun þess árs 151 millj. til bundins slitlags á Ólafsfjarðarveg. Hvar það verð- ur látið er ekki alveg ljóst, það vantar nefnilega undirbyggingu á nokkra spotta á innanverðri Árskógsströnd, svo hægt verði að setja bundna lagið á heilleg- an kafla. Það kom í ljós að Guð- mundur hefur hug á að fá að láni til eins árs fjármagn, sem ætlað er í vegi annarstaðar við utanverðan Eyjafjörð á árinu 1981. Hvernig það gengur er hins vegar allt á huldu. j 1930 1980 Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni heldur 50 ára afmælisfagnað í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 1. nóvember n.k. er hefst með borðhaldi kl. 19.30. DAGSKRÁ: Borðhald. Skemmtiatriði. Dans tíl kl. 03. Húsið opnað kl. 19.00. Aðgöngumiði kr. 9.500 gildir sem happdrætti. Aðalvinningur: Flugfar Akureyri-Reykjavík-Akureyri. Upplýsingar í síma 21635 daglega milli kl. 16-17. SKEMMTINEFNDIN. r

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.