Norðurslóð - 22.01.1981, Side 3
Jólaleikir Norðurslóðar
Ljóðagetraunin
Margir sendu lausnir á ljóðaget-
rauninni, sjá rammagrein að neðan.
Þær voru að langmestu leyti alveg
réttar og sumar aldeilis prýðilega
frá gengnar með tilvitnunum í höf-
unda og heilar vísur, sem klaus-
prnar voru slitnar úr.
Eftirtaldir sendu ráðningar, sem
teljast fullgildar:
Auður Björnsdóttir, Fagraskógi,
Björn Stefánsson hagfr., Reykjavík,
Dagbjört Ásgrímsdóttir, Dalvík,
Gísli Jónsson, Akureyri, Gunn-
laugur V. Snævarr, Reykjavík,
Halldór Jóhannesson og Steinunn
Daníelsdóttir, Dalvík, Helga Þórs-
dóttir og Ásrún Ingvadóttir, Bakka,
Jóhann Daníelsson, Dalvík, Maron
Pétursson, Sauðárkróki, Jónína
Kristjánsdóttir, Klængshóli, Sigrún
Dagbjartsdóttir, Seldal, Norðfirði,
Stefanía Jónasdóttir, Laugum, og
Stefán og Jóna Snævarr, Dalvík.
Sigrún í Seldal sendi skemmtilegt
bréf. Hún skrifar m.a.: „Til dæmis
um fossinn og eikina. Ég ætlaði
aldrei að muna eftir því kvæði. Svo
var ég andvaka eina nóttina og
kemur þá ekki allt í einu upp í huga
minn Ein fögur eik hjá fossi stóð.
Ég fór að rifja upp kvæðið og það
smákom.“
Og annarstaðar: „Ég hef ótrúlega
gaman af að lesa það (blaðið) og svei
mér ef mér finnst ekki ég vera farin
að þekkja til manna og málefna
þarna hjá ykkur. Bæjarheitin í daln-
um ykkar komu öll í ljóði í blaðinu,
og þótti mér þau ærið frumleg sum.
Ef ég á einhverntíman eftir að koma
í Svarfaðardal hefði ég gaman af að
vita, hvort ég gæti þekkt bæina eftir
ljóðinu . . . . “
Það var dregið um ein verðlaun af
fyllsta heiðarleika og upp kom nr. 6
þ.e. Halldór og Steinunn á Dalvík.
Þeim verður send ljóðabók Guð-
mundar FRímanns, Draumur undir
hauststjörnum.
Krossgátan
Lausnarvísa krossgátunnar var
þessi:
Bak við Stólinn blíð og góð
blundar nýárssólin.
Svo nóttin hér á norðurslóð
er nístingsköld um jólin.
Rétta lausn sendu eftirtaldir:
Kristinn Pálsson, Blönduósi, Erna
Kristjánsdóttir, Hnjúki, Stefán
Jónmundsson og Helen Ármanns-
dóttir, Haga, Sigrún Gísladóttir,
Seldal, Hafsteinn Pálsson, Mið-
koti, Elínborg og Sigurjón, Syðra-
Hvarfi, Gunnar Friðriksson, Dal-
vík, Jón Baldvinsson, Dalvík,
Steinunn Davíðsdóttir, Akureyri,
Hartmann Eymundsson, Akureyri.
Dregið var um verðlaun og kom
upp nr. 6 í röðinni, þ.e. Syðra-
hvarfshjón Elínborg og Sigurjón.
Þeim verðursend bókin Ungs manns
gaman eftir Einar frá Hermundar-
felli.
Vísubotnar
Allmargt skálda og hagyrðinga
spreyttu sig á að botna vísuparta
blaðsins. Hér koma tillögurnar og
kennir margra grasa:
I. Bak við Stólinn blundar sólin,
bítur hólinn kuldans tönn.
Þótt fjúki í skjólin, byggðu bólin
blessa jólin dags í önn.
Halldór Jóhanness., Dalvík.
Hæðasjólinn hefur um jólin
heiðabólin lagt í fönn.
Birna Friðriksd. frá Melum.
Færast ból í fannakjólinn,
fresta jólin dagsins önn.
Hartmann Eymundsson, Akureyri.
Upp við pólinn oft um bólin
er um jólin gleði sönn.
Sami.
Fýkur um jólin flest í skjólin
fínna ei hjólin spor í fönn.
Júlíana Lárusdóttir, Húsabakka.
Er fellir njólinn fannakjólinn
fljótt mun skólinn ljúka önn.
Björn Þórleifsson, Húsabakka.
Matartólin munda um jólin,
má því kjólinn víkka um spönn.
Sami.
Heims um bólin höldum jólin,
hylur pólinn klaki og fönn.
Sami.
Fellur njólinn, fölna bólin,
faðmar pólinn ísahrönn.
Oskar Karlsson, Hrísum.
Lengjast nætur, laufið grætur,
lama rætur haust og fönn.
Sami.
II. Ríkisstjórnin ráðum slynga
reiknar niður verðbólguna.
Mun hún samt á milli þinga
magna stjórnarandstöðuna.
Halldór Jóhannesson.
Meðan aðrir þrátta og þinga
og þrengja öllu í hækkunina.
Birna Friðriksdóttir.
En kappar ei á kýlum stinga,
kosningarnar hafa í muna.
Hartmann Eymundsson.
Að mest hún geri milli þinga
margan farið er að gruna.
Sami.
Nú er strútnum nautn að stinga
nefinu í jarðskorpuna.
Júlíana Lárusdóttir.
Verra samsafn vitleysinga
varla tækist þér að muna.
Björn Þórleifsson.
Enda sjálfsagt þörf að þinga
um þjóðarinnar dans í Hruna.
Sami.
Allur þorri Islendinga
afglöp hennar fyrri muna.
Óskar Karlsson.
Af gremju er nú Geir að springa,
Gunnari þetta skal hann muna.
Sami.
Nú er úr vöndu að ráða með verð-
launaveitinguna, því margur er
botninn góður. Ætli við leysum ekki
vandann með því að veitasameigin-
Iega 1. verðlaun þeim Júlíönu og
Birni á Húsabakka, þó ekki væri
fyrir annað en framleiðslumagnið.
Þeim verður send bókin Ýmsar
verða ævirnar eftir sr. Bolla Gústavs
son. Er þá Júlíana eigandi bókar-
innarafturábls. 107,en Björnáþað
sem þar er fyrir aftan.
Að svo mæltu færum við öllum
kærar þakkir fyrir þátttökuna. Frú
Steinunni P. Hafstað þökkum við
gerð krossgátunnar og bókaútgáf-
unni Skjaldborg fyrir að leggja til
bókaverðlaunin.
Sauðfjár-
sjúk-
dómar
færast 1
aukana
Framhald af bls. 1.
milli þessara dýrategunda á húsi
og beitarhólfum er óheppilegur,
þar sem garnaveikihætta er.
Bólusetning allra ásetnings-
lamba snemma og könnun á
árangri bólusetningar fram-
kvæmd af nákvæmni er örugg-
asta vamaraðgerð gegn garna-
veiki, en þar að auki er mikil
nauðsyn að hreinlæti við alla
hirðingu fjárins sé sem mest á
öllum tímum ársins, einkum
varðandi brynningarílát og saur
mengun á heyi og í umhverfi
unglamba á sauðburði að vori.
Enn er þess að geta, að kaup á
fé frá öðrum bæjum sem sýktir
kunna að vera geta gert að engu
fyrirhöfn við vamir á bænum og
auk þess magnað hættu fyrir
nágranna. Það kom einmitt upp
í sambandi við staðfestingu á
þessari veiki, að flutt hefði verið
fé inn í hreppinn og þar kynni að
vera orsök smitburðar.
Því er vakin athygli á þessu,
að rætt hefur verið um að hefja
bótagreiðslur til bænda í hreppn
um, sem verða fyrir tjóni af
völdum riðuveiki. Áður en af
því verður, er rétt að komið
verði reglu yfir flutninga á fé til
og frá hreppnum og milli bæja
innan hrepps.
Virðingarfyllst,
f.h. Sauðfjárveikivarna
Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir.
Sent:
Héraðsdýralækni,
Oddvita, hreppstjóra og
riðunefndarmönnum.
Bændur á gv. bæjum.
NORÐURSLÓÐ - 3
Lausn ljóðagetraunar
Og hér kemur nú lausn ljóðagetraunar Norðurslóðar, þeirrar
4. í röðinni frá upphafi. Þátttaka var góð eins og fyrr og
árangur sumra alveg frábær eins og brátt verður frá skýrt.
1. Sunna háu höfin á '
hvítum stráir dreglum.
Veröld má sinn vænleik sjá
í vatna bláum speglum.
Stökur og brot, Sig. Breiðfjörð.
2. Nú þekkist sú skoðun og þykir fín,
að þetta vort jarðlíf sé ekkert grín
o.s.frv.
Sigurður Þórarinsson.
3. Sólin klár á hveli heiða
hvarma gljár við bai^punum.
á sér hár hún er að lauga
upp úr bárulaugunum.
Stökur og brot, Sig. Breiðfjörð.
4. Dauðinn sótti sjávardrótt
sog var ljótt í dröngum.
Ekki er rótt að eiga nótt
undir Gróttutöngum.
Heyrt kveðið d glugga á 0eltjarnarnesi.
5. Afturgengin hrópa ég
út yfir lönd og sjá:
Varið ykkur veslingar
á Abbalabbalá.
Davíð Stefánsson.
6. Hélt ég þér á hesti
í hörðum straumi
og fann til fullnustu,
blómknapp þann gæti
ég borið og varið
öll yfir æviskeið.
Ferðalok, Jónas Hallgrímssa/t.
7. Falla tímans voldug verk
varla falleg baga.
Snjalla ríman siuðlasterk
stendur alla daga.
Ólafs ríma Grœnlendings, Einar Ben.
8. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við átorð eitt
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Einrœður Starkaðar, Einar Ben.
9. Góðverka varð sjónin sjúk,
svartan bar á skugga.
Ágirndar þá flygsuQúk
fennti á sálarglugga.
Epitaphium pastoris, Bóluhjálmar.
10. Hitti að bragði Satan sinn
sönn fram lagði skilríkin.
Glóðaflagða gramurinn
Grím þá sagði velkominn.
Gönguhrólfsrímur, Bóluhjálmar.
11. Og jafnvel úr hlekkjunum sjóða má sverð
í sannleiks og frelsins þjónustugerð.
Vorhvöt, Steingr. Thorsteinsson.
12. Fátæktin er mín fylgikona
frá því ég kom í þennan heim.
Við höfum lafað saman svona
sjötigu vetur fátt í tveim.
Lausavísa, Jón Þorláksson.
Þangið, sem horfði á hópinn
var hnipið allan þann dag.
Bylgjan, sem bar það uppi
var blóðug um sólarlag.
Heimþrá, Jóhann Sigurjónsson.
14. Þig ég trega-manna mest
mædd af táraflóði.
Ó, að við hefðum aldrei sést’
elsku vinurinn góði.
Staka, Vatnsenda-Rósa.
15. Við næturkylju köldum leik
þar klettur greinum hlúði.
Og fossinn vökvun færði eik
í fögrum sumarskrúði.
Fossinn og eikin, Páll J. Árdal.
16. Ótal drauma blíða og bjarta
barstu, vorsól, inn til mín.
Það er engin þörf að kvarta,
þegar blessuð sólin skín.
Vorsól, Stefán frá Hvítadal.
17. Fyrir sunnan Fríkirkjuna
fórum við á stefnumótin.
Fyrir 8 árum, Tómas Guðmundsson.
18. Stolt siglir fleyið mitt
stórsjónum á.
Gylfi Ægisson.
19. Og vestfirskur jökull,
sem heilsar við Horn
í hilling með sólroðna brá.
Það gefur á bátinn við Grœnland, Kristján frá Djúpalœk.
20. Sörli er heygður Húsafells í túni,
hneggjar þar við stall með öllum ttygjum.
krafsar hraunasalla blakkurinn brúni,
bíður eftir vegum fjalla nýjum.
Skúlaskeið, Grímur Thomsen.
(Átti að spyrjast: hvað?, en misritaðist í hvar?)
21. Er gigtin fór að jafna um Jón
fannst Jóni komið nóg.
Hann nennti ekki að lifa lengur
lagði sig og dó.
Sálin hans Jóns míns, Davíð Stefánsson.
22. Náttskugga fyllurnar fjarlægðust dvínandj,
fjörðurinn opnaðist breiður og skínandi.
Illugadrápa, Stephan G. Stephansson.
23. Afi þinn á Barði bjó,
bændaprýði ríkur nóg.
Við mér ungri heimur hló
ég hrasaði fyrr en varði.
Amma kvað, Örn Arnarson.
24. Kertin brunnu bjart í lágum snúð,
bræður fjórir áttu ljósin prúð.
Mamma settist sjálf við okkar borð,
sjáið ennþá man ég hennar orð.
Jólin 1891, Matth. Jochumsson.
25. Náköld er Hemra, því Niflheimi frá
nöpur sprettur á.
En kaldara und rifjum er konungsmönnum hjá.
Kalinn á hjarta þaðan slapp ég.
Á Glœsivöllum, Grímur Thomsen.