Norðurslóð - 22.01.1981, Side 4
V etr ar fuglarnir
um áramótin
Samkvæmt venju fór fram fugla-
talning hér (og um allt land) um
áramótin á vegum Náttúrufræði-
stofnunar. Dagurinn var 29. des.
Það var suðvestankaldi, hríðar-
slitringur og 8 stiga frost.
Á Dalvík taldi Steingrímur
Þorsteinsson og gekk sam-
kvæmt venju fjöruna frá mynni
Svarfaðardalsár út að Brim-
nesárkjafti (eins og Guðlaugur
Arason kallar árósinn).
Uppskeran varð sem hér segir:
1. Stokkönd 32 stk.
2. Hávella 40 stk.
3. Æðarfugl 65 stk.
4. Gulönd 4 stk.
5. Sendlingur 14 stk.
6. Stormmávur 8 stk.
7. Silfurmávur 40 stk.
8. Svartbakur 60 stk.
9. Bjartmávur 6 stk.
10. Hettumávur 15 stk.
11. Rita (skeggla) 1 stk.
12. Hrafn 6 stk.
13. Snjótittlingur 150 stk.
í sveitinni taldi Kristján E.
Hjartarson. Gekk hann sam-
kvæmt venju frá Tjörn með bæj-
um út að Holtsá, yfir flatann og
suður með börðum austan ár og
í gegnum Hánefsstaðaskóg og
heim. Hann sá aðeins þetta:
1. Stokkönd 1 stk.
2. Hrafn 3 stk.
3. Snjótittlingur 11 stk.
4. Rjúpa 7 stk.
Til viðbótar er þess að geta, að
daginn áður, þ.e. 28. des., sá
bóndinn á Tjörn fugl fljúga upp
úr læknum milli fjóss og bæjar
og fljúga móti vestangarranum
uppeftir í átt til fjalls. Hann sá
fuglinn mjög vel áfluginu og gat
ekki betur séð en þetta væri
hrossagaukur. Nú eiga hrossa-
gaukar ekki að vera hér.á þess-
um tíma árs, þótt ekki áé hægt
að útiloka að eftirlegukindur
kunni að leynast hér og lifa af
vetrarhörkuna fram að áramót-
um.
En annar möguleiki er rétt
hugsanlegur. Keldusvíd voru
ekki.óalgeng hér um slóðirfyrir
nokkrum áratugum. Nú munu
þó liðin ein 20 ár, síðan frést
hefur af þessum fugli. Keldu-
svínið er staðfugl, heldur sig
mikið við lindir á vetrum eins og
nafnið bendir til (kelda = lind)
og þykir gott að skýla sér og
leita fanga undir snjóloftum.
Það líkist hrossagauk á margan
hátt, stærð, litur, neflag osfrv.
Gæti það hugsast að þetta
hafi verið keldusvín og þau séu
ÞORRABLÓT
Verkalýðsfélagið Eining, Dalvíkurdeild, heldur sitt
árlega ÞORRABLÓT föstudaginn 6. febrúar kl. 20.00.
Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi til kl. 02.
Annáll og ýmislegt glens og gaman.
Miðapantanir í síma 6-14-58, 6-15-86og 6-11-26dag-
ana 1., 2. og 3. febrúar. Miðarnir seldir á skrifstofu
Einingar miðvikudag og fimmtudag 4. og 5. febrúar
milli kl. 19.00 og 21.00. Miðaverð aðeins kr: 100.00.
SKEMMTINEFNDIN.
LAUST STARF
Starf tækjastjóra hjá Dalvíkurbæ er laust til um-
sóknar. Upplýsingar um starfið veitir bæjarverk-
stjóri. - Umsóknarfrestur er tii 30. janúar 1981.
BÆJARSTJÓRI.
Aðalfundur
Samtök Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni halda
aðalfund sinn í Safnaðarheimili Langholtskirkju
laugardaginn 7. febrúar n.k. kl. 4 síðdegis. Á eftir
verður spiluð félagsvist. Verðlaun veitt. Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem létu í Ijós
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
bróður míns,
J. ST. BRIMARS SIGURJÓNSSONAR.
F.h. aðstandenda.
Þórdfs Sigurjónsdóttir. \
Gjafir til
Urðakirkju
þá ekki aldauða hér eftir allt
saman?
Nú langar okkur til að spyrja:
Hafa einhverjir Svarfdæíingar
séð að vetrarlagi fugl, sem líkist
hrossagauk nú eða nýlega? Ef
það kæmi á daginn, að keldu-
svín sé hér enn við lýði, þá væri
það heilmikil fuglafrétt og gleði-
efni öllum þeim, sem láta sig
málefni fuglanna einhverju
skipta.
Við látum fylgja mynd af
þessum fugli.
10u. mynd. Keldusvín.
Frá sóknarnefnd Urðakirkju hefur
blaðinu borist eftirfarandi skrá um
gjafir með ósk um birtingu:
Á árinu 1979 gáfu systkinin frá
Sandá Anna og Sigtryggur kr. 6.000
stofngjöf til kaupa á skírnarfonti í
kirkjuna. Ennfremur gáfu þau
Gunnlaug og Gunnlaugur á Atla-
stöðum kr. 15.000 í sama skyni til
minningar um lítinn dreng.
Áárinu 1980gafst kirkjunnieftir-
farandi til væntanlegra skírnar-
fontskaupa:
Kr. 100.000 frá Lilju, Karli,
Dómhildi og Gunnlaugi í Klaufa-
brekknakoti og Höllu og Atla á
Hóli. Upphæðin er gefin í minn-
ingu dóttur þeirra, systur og mág-
konu Jónasínu Dómhildar Karls-
dóttur í Klaufabrekknakoti.
Kr. 100.000 frá Sigurpáli Hall-
grímssyni frá Melum til minningar
um Þóru systur hans og Halldór afa
hans.
Kr. 100.000 frá Helga Símonar-
syni á Þverá og kr. 100.000 frá
Kvenfélaginu Tilraun.
Sóknarnefndin biður blaðið að
færa ofanskráðum gefendum alúð-
arþakkir fyrir góðar gjafir og hlý-
hug í garð kirkjunnar.
Á síðasta aðalsafnaðarfundi Urð-
arkirkju var stofnaður viðhalds-
sjóður kirkjunnar. Stofngjöf var kr.
15.000 frá sóknarnefndinni. Hana
skipa nú Hreinn Jónsson, Jón J.
Þórarinsson og Lena Gunnlaugs-
dóttir.
Frá bæjarskrifstofunni
Eins og flestir hafa orðið varir
við hefur verið tekin upp tölvu-
vinnsla á gjaldendabókhaldi hjá
bænum. Með því skapast mikið
hagræði fyrir starfsmenn skrif-
stofunnar og einnig geta gjald-
endur fengið betri upplýsingar
um stöðu sína á hverjum tíma.
Síðari hluta janúarmánaðar
verður sent út yfirlit til allra
gjaldenda þar sem fram kemur
staða þeirra um síðustu áramót.
Þar verða líka sýnd öll gjöld á
árinu 1980 svo og greiðslur og
álagðir dráttarvextir hjá þeim
sem þá fengu. Eru gjaldendur
vinsamlega beðnir um að fara
vandlega yfir yfirlitið og láta
okkur á bæjarskrifstofunni vita
ef eitthvað kemur ekki heim og
saman við þeirra tölur.
Með þessu yfirliti fylgir lika
álögð fyrirframgreiðsla útsvars
1981 en hún er 70% af álögðum
gjöldum síðasta árs. Þar kemur
fram gjalddagi hverrar greiðslu
og eru gjaldendur beðnir að at-
huga það vel. Staðgreiðslukerfi
skatta hefur ekki enn verið kom-
ið á og því er fyrirframgreiðsla
þessi raunverulega byggð á tekj-
um ársins 1979 sem voru grund-
völlur álagningar á árinu 1980.
Heimild er til þess í lögum að
lækka fyrirframgreiðsluna ef
mikil tekjuskerðing hefur orðið
á árinu 1980 miðað við árið
1979. Því geta þeir sem telja sig
falla undir heimild þessa komið
með afrit af skattframtali sínu til
undirritaðs á skrifstofuna og
fengið úrskurð í þvi máli. Ef
aftur á móti tekjuaukningin
1980 hefur verið meiri en
almennt gerðist, er ekkert á móti
því að jafna útsvarsgreiðslunum
betur yfir árið og greiða eitthvað
meira fyrri hluta árs en fyrir-
framgreiðslan segir til um.
Á fyrirframgreiðsluseðlinum
kemur hjá flestum einnig fram
kaupgreiðandi ef einhver er.
Þrátt fyrir lög um skyldu kaup-
greiðenda til að halda útsvars-
greiðslum eftir af kaupi starfs-
manna sinna, mun gjaldendum
á Dalvík eins og áður heimilt að
greiða sjálfir gjöld sín á bæjar-
skrifstofunni ef þeir óska þess.
Þett^ er þeim heimilt meðan
greiðslufall verður ekki og þurfa
þeir að láta starfsmenn bæjar-
skrifstofunnar vita ef þeir vilja
notfæra sér þetta.
Þeir sem ekki fá álagningar-
seðil um fyrirframgreiðslu, en
hafa átt lögheimili hér 1. des. sl.,
eru vinsamlegast beðnir um að
hafa samband við undirritaðan
sem allra fyrst.
Allir eiga nú að hafa fengið
fasteignagjaldaseðil sinn í hend-
ur og var gjalddagi fyrri hluta
þeirra 15. jan. s.l. Dráttarvextir
verða fyrst reiknaðir á ógreidd
fasteignagjöld 28. febr. n.k. og
eru fasteignagjaldagreiðendur
vinsamlega beðnir um að gera
skil sem allra fyrst. Það skal
minnt á að ef fyrri hluti fast-
eignagjalda er ekki að fullu
greiddur, þá fellur síðari hlúti
þeirra: einnig í dráttarvexti.
Einnig má minna þá á sem eiga
ógreidd gjöld frá fyrra ári að 31.
janúar verða reiknaðir 4.75%
dráttarvextir á öll ógreidd gjöld
frá fyrra ári.
Bæjarritari.
Pelastikk Guðlaugs Arasonar
Ósvikin dalvíkska
Ég var að enda við að lesa Pela-
stikkið hans Gulla Ara. Áður
var ég búinn að lesa nokkrar
umsagnir eða dóma um bókina.
Og ég held helst að allir hafi
verið sammála um, að hún sé
bara skrambans ári góð. Þar
sem nú hér er um ósvikið dal-
víkst bókmenntaframlag að
ræða, yrði það að teljast helst til
mikið tómlæti, ef ekki væri
minnst á það í þessu blaði rétt
eins og það hafi farið fram hjá
okkur öllum, að nokkuð hafi
gerst.
Og það er þá skemmst frá því
að segja, að undirritaður er sam
mála öðrum þeim, sem hafa út-
talað sig um bókina. Þetta er
hugþekkt verk. Það er greini-
legt, að höfundurinn er að
skrifa um hluti, sem hann ger-
þekkir. Bókin er ekta að því
leyti til. Og það sem meira er.
Hann er að skrifa um fólk og
mannlíf, sem stendur hjarta
hans nærri. Hann er að rifja upp
fyrir sér (og öðrum) heim
bernsku sinnar, og honum þykir
vænt um hann.
Þess vegna er bókin sann-
færandi og lesandanum líður vel
við lesturinn. Hér eru engir
Guðmundar meðal sjómann-
anna og konurnar i þorpinu eru
engar eldhúsmellur og lita held-
ur ekki á sig sem slíkar. Það er
skemmtileg uppáfinning höf-
undar að virða fyrir sér sjó-
mennskuna og síldarævintýrið
með augum barns. Þannigverð-
ur það með sérstaklega ferskum
blæ og á greiða leið að huga
lesandans. Þaðeina ótrúlegavið
þessa frásögn er það, sem þó er
víst dagsatt, að 8 ára drengur
hafi verið að velkjast á síldar-
dalli heila vertíð. Og að auki
kvað flest af því, sem látið er
gerast um borð og frá borði,
raunverulega hafa gerst í lík-
ingu við það, sem sagan greinir
frá.
Það er skemmtilega dalvíkst
bragð af þessari sögu. Aðstæð-
urnar eru dalvíkskar, fólkið er
dalvíkst, málfarið er sumstaðar
svo dalvíkst, að það mun varla
skiljast annarstaðar. Hér er
aðeins ein aðfinnsla. Á einum
stað segir að Logi hafi verið
kominn með sax í hendurnar.
Tala menn svona eða hafa talað
á Dalvík? Ekki sögðum við
þetta í sveitinni. Við sögðumst
vera með saxa í handarbökun-
um.
Guðlaugur Arason sagði það
í sjónvarpsviðtali einhverntím-
ann um jólaleytið, að allt það,
sem hann hefði að segja, rúm-
aðist í einu sjávarplássi, það
væri nú ekki merkilegra en svo.
Þetta var mikil hæverska hjá rit-
höfundinum.
En kannski er þetta ekkert
lítið, þegar allt kemur til alls.
Kannske lífið í einu sjávar-
plássi á borð við Dalvík spegli
mannlífið í landinu svona yfir-
leitt og kannske í heiminum
öllum. Að í því smáa og þrönga,
séð með augunum hans Loga
litla, speglist hinn stóri, víði
heimur með einhverjum hætti
svo lesandinn eignist'að sínu
leyti dálitla hlutdeild í honum
eins og hann leggur sig. Og þá
var þetta engin hæverska hjá
höfundinum eftir allt saman.
H. E. Þ.
4 - NORÐURSLÓÐ