Norðurslóð - 26.02.1981, Page 1
5. árgangur Fimmtudaginn 26. febrúar 1981 2. tölublað
Björgvin EA 311 á veiðum á „Vesturkantinum“. Myndin tekin í mars 1979.
Útgerðarfréttir frá Dalvík
Netavertíð hófst hér nokkuð almennt um miðjan janúar og þrátt fyrir
óstöðuga veðráttu hefur afli aukist frá sama tíma í fyrra. Útgerðir
netabátanna eru nú allar með eigin fiskverkun.
Hins vegar horfir verr með hráefnisöflun fyrir frystihús KEA, því
óhöpp hafa hent báða togara Útgerðarfélags Dalvíkinga á þessu ári,
og fyrirsjáanlegt er langt stopp hjá Björgvin EA-311.
Vinna hefur legið niðri hjá Söitunarfélagi Dalvíkur hf. frá
áramótum. Dalborg hefur verið í viðgerð, en fór til þorskveiða nú um
helgina, svo fiskverkun fer að hefjast hjá félaginu.
Alvarlegar bilanir
Útgerð togaranna Björgvins og
Björgúlfs hefur gengið áfalla-
lítið þar til nú um áramótin, að
vélaróhöpp hafa verið hjá báð-
um. Norðurslóð hafði samband
við Björgvin Jónsson, fram-
kvæmdastjóra og sagðist hon-
um svo frá:
„Vélarbilun varð í Björg-
úlfi um miðjan janúar, sem tók
þrjár vikur að gera við, en þá
varð alvarleg bilun í Björgvin.
Vélin bilaði 8. febrúar sl. og tók
nokkurn tíma að átta sig á því
hve bilunin var alvarlegs eðlis.
Fyrir um viku síðan var ákveðið
að taka tilboði um nýja vél frá
Wichmann, þá þótti ljóst aðjafn
dýrt, eða dýrara var að endur-
nýja þá gömlu, auk þess myndi
ekki taka skemmri tíma að fá
varastykkin en nýja vel.
Samkvæmt tilboðinu verður
vélin afhent í Noregi 12.-15.
apríl n.k. og ef allt fer að óskum,
fer hún í skipð 15. apríl.
Þá er einnig ákveðið, að
undangengnu útbúði, að véla-
skiptin verði hjá Slippstöðinni
hf. Akureyri og munu þau taka
3 vikur frá því að vélin er komin
til Akureyrar. I samræmi við
þetta gerum við okkur vonir um
að skipið verði tilbúið til veiða í
maílok.
Bæði þessi tjón eru mjög
tilfinnanleg fyrir Útgerðarfélag
Dalvíkinga og einnig atvinnu-
lífið á staðnum", sagði Björgvin
að lokum.
Atvinnuskerðing í
fiskvinnslunni
Þá hafði Norðurslóð samband
við Kristján Ólafsson útibús-
stjóra og spurði um hráefnis-
öflun frystihússins, eins og nú
væri komið málum.
Kristján sagði að allt hefði
verið reynt til að minnka
skaðann af þessu áfalli, og þó
hráefni hafi nú um mánaðar-
skeið aðeins verið af einum
togara hefur verið haldið uppi
fullri vinnu í frystihúsinu.
Þetta hefur orðið til þess að
lítið sem ekkert hefur farið í salt-
fisks- og skreiðarverkun.
Reynt hefur verið að fá skip í
föst viðskipti, en lítið hefur
komið út úr því. Aftur á móti
má gera sér vonir um einstaka
landanir skipa, t.d. frá Siglu-
firði og Hafnarfirði, auk, þess
verður hráefni fengið frá Ólafs-
firði og Akureyri eins og kostur
er. Frá Ólafsfirði hefur þegar
verið ekið um 50 tn. og nú er
fyrirsjáanegt nægt hráefni næsta
hálfan mánuð.
Auðvitað er þetta áfall, og
hætt er við að frystihúsið og
fólkið, sem þar vinnur, verði
fyrir tekjumissi, með því að
yfírvinna verður ekki eins mikil
og annars hefði orðið, sagði
Kristján að lokum.
Sæmilegt
atvinnuástand
Þá spurðist Norðurslóð fyrir um
atvinnuleysisskráninguna hjá
Dalvíkurbæ og kom í ljós að nú
eru 8 skráðir atvinnulausir (allt
karlmenn).
Ekkert samhengi er milli
þessara áfalla og atvinnuleysis-
skráningarinnar, eins og hún er í
dag. Rétt er að taka fram, að
síðastliðinn vetur landaði Dal-
borg aðallega á Húsavík, meðan
hún var á þorskveiðum, en nú er
gert ráð fyrir að hún landi öllum
afla á Dalvík, þannig að ef
netavertíð verður áfram góð er
ekki öll von úti um að veturinn
geti orðið Dalvíkingum sæmi-
lega gjöfull til fiskjar þrátt fyrir
allt. J.A.
Landanir báta 1/1 - 20/2 1981.
Sjóf. Afli Afli í sjóf.
Stefán Rögnv. net 17 52 tn. 3.1 tn.
Vinur lína 14 74 tn. 5.3 tn.
Otur net 18 51 tn. 2.8 tn.
Brimnes net 14 89 tn. 6.3 tn.
Sæljón net 15 34 tn. 2.3 tn.
Bliki net 14 87 tn. 6.2 tn.
Haraldur net ! 6 62 tn. 3.9 tn.
Tryggvi Jóns. net 12 33 tn. 2.7 tn.
Samtals 120 482 tn. 4.0 tn.
Sama tímab. 1980 167 372 tn 2.2 tn.
Landanir togara 1/1 - 15/1 1981
1980
Björgvin E.A. 4 veiðif. 318 tn. 505 tn.
Björgúlfur E.A. 3 veiðif. 253 tn. 429 tn.
Samtals 571 tn. 934 tn.
Eskimóar eru tröll
Fyrirspurn
í foreldrahúsum mínum á Tjörn
voru oft sungnar tvær vísur
undir sérstöku lagi og virtust
vera upphaf á kvæði þar sem
hver vísa endaði á sama viðlagi.
Vísurnar eru svona (eða nokk—
urnvegin svona) eins og þær fest
ust í barnsminninu og við syst-
kin öll höfum eins:
Hver ferðast hefur, ferðum af
veit furðu margt að greina,
því greip ég hiklaust hatt og staf
og hóf svo langferð eina.
Viðlag:
Þetta er ei svo afleitt, ei svo afleitt,
ei svo afleitt.
Karl minn var: Seg Úrían okkur
hvað meir til bar.
Eskimóar eru tröll
og argur þeirra skarinn,
þeim valdi ég skammarorðin öll
og af því var ég barinn.
Þetta er ei svo afleitt, ei svo afleitt
o.s.frv.
Þannig lærðum við þetta og
meira kunnum við ekki. Vel má
vera að eitthvað sé afbakað.
Tildæmis eru orðin „Karl minn
var“ heldur umkomulaus.
Ég hef spurt fjölda manna,
bæði Svarfdælinga og aðra,
sumt mikla lærdómsmenn á
gamlan kveðskap, en enginn
hefur getað frætt mig á hvaðan
úr ósköpunum þessar vísur eru.
Svo er að sjá sem þetta kynni að
vera úr grobbarakvæði: maður
þykist vera víðförull og segir
sögur af fjörrum löndum og
áheyrendur spana hann upp
með viðlaginu.
Mikil fyrirmunun væri það ef
einhver Svarfdælingur kann
ekki þetta og helst meira af
kvæðinu. Ég trúi því varla. Þess
vegna spyr ég lesendur Norður-
slóðar, sem flestir Svarfdæling-
ar lesa, heimamenn og heiman-
fluttir, hugsi sig rækilega um og
sendi annaðhvort mér eða rit-
stjórn blaðsins línu ef þeir hafa
eitthvað fram að færa umfram
það sem hér er frá sagt. Vera má
að einhver viti allt um þetta
kvæði og finnist ég þá hafa spurt
heldur ófróðlega, en það gerir
ekkert til.
Kristján Eldjárn.
Til lesenda
Nú hefitr verið ákveðió að blaógjaUliðfvrir árið 1981 verói -
ug nú hiójum við menn aó tiraga djúpt andann - kr. 80.00.
Þetta er ansi mikil hcekkun frá 50 któnunum ifyrra. Vió
hó/dum þó, aó kaupendur muni greióa þetta sœmilega
ánægóir, enda þarf þá ekki aó standa alveg jqfnmikió i
eltingaleik við auglvsingarnar. svo góóar og nauösynlegar
sem þœr þó eru.
Þaö má sem sé gera ráófyrir aö gíróseólar meö nýju sniöi
veröi sendir út meö marsblaöinu og er þá ekki aö efa. aö fjár-
magn J'er aö streyma til okkar hvaöanæva aflandinu.
Heimafólk er eftir sem áöur beöiö að inna af hendi
greiðsluna í bókabúöinni Sogni.
Útge/endur.
Frá Svarfdælinga-
félaginu í Reykjavík
Aðalfundur Svarfdælingafél-
agsins var haldinn 7. febr.
síðastliðinn. Þar bar helst til
tíðinda að þeir Egill Júlíusson
og Júlíus Halldórsson, sem
báðir hafa verið í stjórn félags-
ins um árabil, gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs. í þeirra stað
voru þau Sigurbjörg Guðjóns-
dóttir og Árni Hjartarson kjörin
í stjórnina. Aðrir stjórnarlimir
voru endurkjörnir. Fyrsti stjórn
arfundur ársins var svo haldinn
21. febrúar. Þar skipti stjórnin
með sér verkum. Sveinn Gamal-
íelsson formaður félagsins baðst
undan endurkjöri og var Edda
Ögmundsdóttir kjörin í hans
stað sem formaður. Sigurbjörg
Guðjónsdóttir var kosin ritari,
Sveinn gamalíplsson tók að sér
gjaldkerastörf,' Árni Hjartarson
var útnefndur blaðafulltrúi fél-
agsins og Anna Sigvaldadóttir
meðstjórnandi.
Á fundinum var lögð upp
starfsáætlun vetrarins og verður
hún með hefðbundnu sniði.
Laugardaginn 7. mars kl. 16.00
verður spiluð félagsvist í safnað-
arheimili Langholtssóknar og
eru allir Svarfdælingar og þeirra
vinir velkomnir. Félagsvistin
sem spiluð var í janúar tókst
með þeim ágætum, að ástæða
þykir til að endurtaka spila-
mennskuna. Þegar líða tekur á
veturinn verður haldinn köku-
basar í fjáröflunarskyni fyrir
félagið og í maí verður kaffi-
gleði aldjaðra eins og undanfar-
in ár. Ymis önnur mál voru
rædd á fundinum en þar sem
þau eru enn á umræðustigi
innan stjórnarinnar verða þau
ekki tíunduð frekar hér.
Á. Hj.