Norðurslóð - 30.04.1981, Síða 5
rndina?
i sínum.
Bláklætt fólk í meðförum Guð
rúnar Tómasdóttur, Guðnýjar
Sverrisdóttur, Indriða Helgason-
ar, Guðnýjar Ólafsdóttur, Þor-
steins Aðalsteinssonar og Rúnars
Lund gaf sýningunni góðan
punkt yfir i-ið. 011 voru þau
mjög í anda þess sem hægt er að
ímynda sér dæmigerða eilífðar-
sjúklinga á geðv.hæli, óttinn og
vonleysið uppmálað, umkomu-
leysið algjört. Þorsteinn og
Rúnar báru þó af bæði hvað
varðar gerfi og látbragð. Rúnar
stal reyndar senu á köflum sem
þykir ekki hólsins vert í „alvöru
bissness", þótt áríðandi sé aftur
á móti að tolla í rullunni. Eg
verð að játa að samtal Láru og
Kalla á föndurstofunni fór að
mestu fram hjá mér á báðum
sýningunum vegna stórkostlegr
ar hegðunar Rúnars meðan á því
stóð. Þetta hlýtur að skrifast á
kostnað leikstjóra þar sem
ekkert af hegðan blákl. fólks-
ins er skrifað í handriti nema
fliss I.H. er Kalli kemur inn. Því
segi ég: Húrra Rúnar!, en við
leikstjó
leikstjóra: Þú gast notað þetta í
annan tíma t.d. í kringum
dansleikinn.
Leikskrá er nýstárlega og vel
upp sett þrátt fyrir tvo smágalla
á bls. 11; annars vegar mynd-
galla, hins vegar vöntun á nafni
formanns. Lýsing var góð þótt
nokkrar slysasnurðrur væru á
síðustu sýningu.,
Tónlistin féll einkar vel að
stemningu hverju sinni. Leik-
mynd látlaus og smekkleg og
góðum tæknikostum búin fyrir
skiptingar og eins til ferða-
laga, sem ég vil hvetja hópinn
til, fyrir hönd nágrannabyggð-
anna og þeirra Dalvíkinga sem
ekki ómökuðu sig. Það væri
synd að láta svo vel leikna og
jafngóða sýningu niður falla við
svo búið.
Að lokum læt ég hér fylgja
línur úr einu eftirlætiskvæði
mínu sem sífellt ásótti huga
minn á báðum sýningunum
(Brecht; María Farrar, þýð.
H.K.L.):
„.... Ég vænti griða, herra, af ykkur
hinum:
því hvað er líf án samhjálpar frá
vinum?
. . . . og fordxmdu ei hið bogna,
brotna, veika,
þess böl er mikið, þjáning þess
er djúp.“
Áfram L.D.!
-Brynja.
örn Ingi með listaverk, sem hann skenkti félaginu.
Fréttir frá
Trygginga-
stofnun
ríkisins
Fœðingarorlof
Norðurslóð hefur fengið bréf
frá Tryggingarstofnun rikisins.
Þar er vakin athygli á bæklingi
um fæðingarorlof sem tók gildi
Handlistarfélag Dalvíkur
og nágrennis stofnað
Agúst Karl Gunnarsson og örn Ingi.
Mánudaginn 16. mars var hald-
inn stofnfundur félags áhuga-
manna um hvers kyns hand-
mennt sem nöfnum tjáir að
nefna. Er félagið kennt við
handlist og mun það nýyrði í
íslensku máli. Aðal hvatamaður
að stofnuninni var Ágúst Karl
Gunnarsson. Var hann á fund-
inum kjörinn formaður félags-
ins, með honum í stjórn þær
Sólveig Pétursdóttir og Svein-
björg Hallgrímsdóttir. Einnig
var kosin starfsnefnd, hana
skipa Sigríður Hafstað, Kol-
brún Ólafsdóttir, Júlíana Lárus
dóttir og Jóhann Daníelsson.
Að sögn Ágústs Karls er hug-
myndin á bak við stofnun
félagsins sú að sameina alla þá
sem áhuga hafa á að þjálfa huga
og hönd og framleiða fallega
og/eða nytsama hluti hvers
könar. f því augnamiði hyggst
félagið efna til námskeiðahalds í
framtíðinni. Ennfremur verður
reynt að víkka sjóndeildarhring
inn með því að fá listamenn til
að koma hér og sýna og kynna
verk sín og störf, auk sýninga á
verkum félaganna sjálfra.
Stofnun Handlistarfélagsins
virðist þegar hafa fengið mjög
góðar undirtektir bæði hér og
annars staðar. Stofnfélagar eru
35 og á fundinn bárust kveðjur
og velfamaðaróskir víða að.
Stjórn Handlistarfélagsins á
Dalvík og nágrenni vill hvetja
fólk til þátttöku og stuðnings
við markmið félagsins.
Fyrsta verkefni félagsins var
sýning í Ráðhúsi Dalvíkur 3., 4.
og 5. apríl s.l. á verkum Arnar
Inga. Sýningin var vel sótt og
seldust mörg málverk.
Norðurslóð sendir árnaðar-
óskir. Brvnia.
1. jan. s.l. Ekki er hægt að birta
bæklinginn í heild, en hann
liggur frammi hjáumboðsmönn
um tryggingarstofnunarinnar.
í þessum bæklingi stendur
meðal annars:
Hverjir eiga rétt á fæðingar-
orlofsgreiðslum almannatrygg-
inga?
Allar konur sem lögheimili
eiga á íslandi og ekki eiga rétt á
launum í þriggja mánaða fæð-
ngarorlofi, eiga rétt á fæðingar-
orlofsgreiðslu frá almannatrygg
ingum. Það er ekki skilyrði að
kona hafi unnið á almennum
vinnumarkaði. Þannig eiga t.d.
konur sem stunda heimilis-
störf eingöngu, einnig rétt á
greiðslu fæðingarorlofs. Hins
vegar hefur þátttaka á al-
mennum vinnumarkaði áhrif á
upphæð fæðingarorlofs.
Rétt er að vekja sérstaklega
athygli á að lögin eru aftur-
virk, þannig að konur, sem alið
hafa barn eftir 1. okt. 1980
öðlast einnig rétt til fæðingar-
orlofs, þó misjafnlega mikinn.
En í 12. tölulið bæklingsins
stendur:
Enda þótt lögin um greiðslu
fæðingarorlofs almannatrygg-
inga hafi fyrst gengið í gildi
þann l.jan. 1981, getaþókonur
sem fæddu á tímabilinu 1.
október- 31. desember 1980, og
ekki hafa átt rétt til greiðslu
fæðingarorlofs á vegum stéttar-
félags t.d. heimavinnandi hús-
mæður, átt rétt á greiðslu
fæðingarorlofs samkv. vissum
reglum í einn til þrjá mánuði.
a) Fæðing í okt. 1980: Fæðingar
orlof greiðist í einn mánuð.
b) Fæðing í nóv. 1980: Fæðing-
arorlof greiðist í tvo mánuði.
c) Fæðing í des. 1980: Fæðingar
orlof greiðist i þrjá mánuði.
Athugið: Sækja skal um
greiðslur fæðingarorlofs á sér-
stökum eyðublöðum sem fást
hjá Tryggingarstofnun og hjá
umboðum hennar úti um land.
(Á Dalvík á skrifstofu bæjar-
fógeta).
FRÉTTIR ÚR
PRESTAKALLINU
Góð kirkjusókn um páskana
Fjórar messur voru fluttar hér í
prestakallinu og Voru allar vel
sóttar. Sú nýbreytni var höfð á
hér á Dalvík, að messað var í
kirkjunni kl. 8 á páskadags-
morgun. Heita mátti, að kirkjan
væri full og voru messugestir um
200. Var þetta mjög ánægjuleg
athöfn og hefur verið gerður
góður rómur að þessari ný-
breytni.
Áuk þess að messa í öllum 4
kirkjum Vallaprestakalls, flutti
prófasturinn,sr. Stefán Snævarr
messu í Olafsfjarðarkirkju.
Kirkjan var fullsetin og voru
skírð 2 börn við athöfnina.
Fermingar á þessu vori
I Dalvíkurkirkju'verður fermt
sunnudaginn 24. maí kl. 10,30.
Þessi börn verða fermd:
Bragi Haraldsson, Hjarðarslóð 6d
Elvar Þór Antonsson, Bjarkarbraut 19
Eiríkur Svanur Sigfússon, Bjarkarbr. 5
Gestur Jóhannes Arskóg, Smáravegi 9
Gísli Már Jóhannsson, Mímisvegi 22
Guðmundur Haraldsson, Grundargötu
Grundargötu 1
Hjörleifur Már Haraldsson, s.st.
Jón Hjálmar Herbertsson,
Hafnarbraut 16 ^
Jón Sveinbjörn Vigfússon, Öldugötu 2
Kristján Þorvaldsson, Mímisvegi 5
Sigurður Sveinn Antonsson,
Sunnubraut 10
Svanur Bjarni Ottósson, Asvegi 1
Sævaldur Jens Gunnarsson,
Svarfaðarbraut 16
Þorsteinn Kristinn Stefánsson,
Mímisvegi 10
Árdís Freyja Antonsdóttir,
Karlsbraut 13
Dóróthea Elfa Jóhannsdóttir,
Karlsbraut 7
Eydís Arna Eiríksdóttir, Böggvisbraut
Hanna Marís Skaftadóttir, Karlsbraut 13
(Lögh. Hraunholt 4, Akureyri)
Ingibjörg Nancy Georgsdóttir, Jaðri
Sigríður Brynjarsdóttir, Ásvegi 9
Sigríður Þráinsdóttir, Hafnarbraut 2
Sigrún Júlíusdóttir, Goðabraut 13
Sigrún Stefánsdóttir, Goðabraut 15
Steinunn Jóhannsdóttir, Karlsbraut 7
Sædís Guðrún Bjarnadóttir, Bárugötu 2
I Vallakirkju verður ferming
á uppstigningadag 28. maí kl.
13.30. Þessi börn verða fermd:
Friðjón Sigurðsson, Hrísum
Rögnvaldur Ingvason, Þverá
Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir,
Hofsárkoti
„Fögur saftin
bleika“
»að er nú komið upp úr kafinu,
ð ekki var rétt skýrt frá höf-
ndi vísunnar góðu um kaffið,
ögru, bleiku saftina, sem við
órtum í jólablaðinu. Hún var
ögð eftir Hans Baldvinsson
rá Upsum. Vísan er svona:
Fjör og krafta færandi
fögur saftin bleika.
Lúahaftið leysandi,
lífgar aftur veika.
Við þetta hefur Gunnlaugur
jíslason á Sökku dálítið að at-
íuga. Hann lærði þessa vísu
tefnilega kornungur af Dag-
jjörtu ömmu sinni, konu Jóns
Cristjánssonar á Syðra-Hvarfi.
dún sagði honum að vísan væri
;ftir föður sinn, GunnlaugGísla
;on bónda á Göngustöðum og
/íðar hér í sveit (f. 1807, d.
1861).
Gunnlaugur bóndi kvað hafa
ærið mikill kaffiunnandi, eins
og. vísan bendir til, en alnafni
tians á Sökku kann aðra vísu
eftir langafa sinn, sem sýn-
ir hið sama. Gunnlaugur kom
inn frá gegningum og var þá
kona hans, Soffía Arngríms-
dóttir, enn ekki komin á fætur.
Bóndi vildi fá sopann sinn og
engar refjar og mælti fram vísu
þessa:
Góðan daginn, guð þinn haginn
blessi.
Rístu úr fleti, reflatróð,
og réttu ketil upp á glóð.
Gunnlaugur var seinni mað-
ur Soffíu og eignuðust þau að-
eins eitt barn, dótturina Dag-
björtu. Um hana kvað faðir
hennar þessa gamansömu vísu:
Dagbjört min er fallegt fljóð,
fer henni allt með snilli.
Stundum ill og stundum góð,
stundum þar á milli.
Og nú vitum við sannleikann í
þessu máli og þökkum Gunn-
laugi á Sökku fyrir hans hlut í
að leiða hann í ljós. Um leið
óskum við þeim Gunnlaugi og
Rósu til hamingju með nýja
símann, sem er nr. 61563.
NORÐURSLÓÐ - 5