Norðurslóð - 30.04.1981, Page 8
Við snyrtiborðið. Verkstjórinn, Anna Sigríður, lengst til hægri.
Fréttir af fiski
Fréttamaður leit inn á skrifstofu
frystihússins á dögunum. Frysti-
hússtjóri var ekki heima, sagður á
tölvunámskeiði á Akureyrt. Hins-
vegar var til viðtals framleiðslu-
stjóri, Magnús Guðmundsson.
Hann veitti góðfúslega eftirfar-
andi upplýsingabrot.
Vinnuskorpa um páskana
Eftir takmarkaða vinnu í frysti-
húsinu frá áramótum, einkum
vegna þess að Björgvin er i
lamasessi, var mikið að gera
fyrir og eftir páskana og er
reyndar enn. Aðallega var þetta
í kring um skreiðarverkunina og
undirbúning hennar undir af-
skipun til útflutnings. (Til
Nígeríu).
Til viðbótar venjulegu starfs-
liði var ráðið margt skólafólk,
sem var í páskafríi. Bæði var um
að ræða pökkun á þurrum
hausum (hausaskreið) og fiski.
Þurrkklefinn nýi gefst ágætlega,
þótt ekki hafi að vísu reynt mjög
á hann núna vegna ágætra
þurrka undanfarið. En samt
hefur það sýnt sig að hann ræður
alveg við rennblauta skreið,
bæði hausa og fisk, ef á þarf að
halda.
Þetta gjörbreytir allri að-
stöðu, að geta þannig ráðið
ferðinni með þurrkunina, en
þurfa ekki einvörðungu að
treysta sól og vindi. (Þetta er
alveg sambærilegt við súgþurrk-
un heys, bara heita loftið fram
yfir.)
Nú eru tilbúnir 1500 pakkar
af skreið, 309 kg. pakkinn, til
útskipunar eftir nokkra daga.
Gott að þurrka hausa á Hjalteyri
Nú eru hirtir allir hausar, líka
frá öðrum fiskverkendum á
Dalvík. Þeir eru að mestu fluttir
til Hjalteyrar og forþurrkaðir
þar. Þótt undarlegt kunni að
sýnast þykir þetta hagkvæmt.
M.a. kom það nú í ljós, að
fannfergið, sem öllu reið á slig
hér útfrá, var ekkert vandamál
þarna inn með firðinum. Hér
brotnuðu og brömluðust hjall-
ar, svo tjónið nemur stórfúlg-
um. Auk þess er kostnaður við
snjóruðning feykilegur. Einn
reikningur er kominn upp á kr.
50.000. nýjar vel að merkja, og
eitthvað er ókomið. Svo mikið
um skreiðina.
Tímamót
Skírnir.
Á páskadag, 19. apríl, voru skírð eftirtalin börn:
Gunnar, foreldrar Erla Gunnarsdóttir og Eiríkur Ágústsson,
Hjarðarslóð 4B á Dalvík.
Jón Gunnlaugur, foreldrar Filippía Jónsdóttir og Stefán K.
Jónsson, Mímisvegi 12 á Dalvík.
Finna, foreldrar Steinunn K. Hauksdóttir og Sigurgeir Jóns-
son, Dalbraut 3 á Dalvík.
Guðmundur Jón, foreldrar Sólrún Lára Reynisdóttir og
Magnús I. Guðmundsson, Böggvisbraut 10 á Dalvík.
Á annan dag páska var skírð í Urðakirkju Erla Rebekka,
foreldrar Margrét B. Gunnarsdóttir og Guðmundtir Gunn-
laugsson á Göngustöðum.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl., voru skírð:
ívar örn, for. Snjólaug St. Rósmundsdóttir og Vignir Hall-
grímsson, Skíðabraut 9, Dalvík.
Agnar Snorri, for. Jenný Valdimarsdóttir, Svarfaðarbraut
15, Dalvík, og Stefán Agnarsson, Hofi, Svarfaðardal.
Frú verkstjóri
Þá er það frystingin. Á
dögunum landaði Sléttbakurfrá
Ú.A. 130 tonnum af þorski og
ýsu aðallega. Þetta var verið að
vinna núna, sumt í salt, annað til
frystingar. Eftir helgina kemur
svo Björgúlfur með fullfermi af
„skrapfiski“ einkum karfa. Þá
verður mjög mikið að gera,
karfinn er svo seinunninn.
Við höfðum tal af verkstjóra í
vinnslusal. Það reyndist vera
Anna Sigríður Hjaltadóttir (frá
Ytra-Garðshorni. Anna Sigríð-
ur er útskrifuð sem fiskiðnaðar-
maður frá Fiskvinnsluskólan-
um, sem menntar fólk til
almennrar verkstjórnar og fisk-
mats. Hún var ráðin sem verk-
stjóri um áramótin, fyrsta kon-
an í þeirri stöðu hér.
Aðspurð sagði Anna Sigríður
að nú væri verið að vinna úr 17
tonna ýsuafla úr Sléttbak. Það
er nóg að gera, unnið til kl. 7 í
kvöld og áætlað að vinna á
morgun, laugardag. Það eru 20-
30 konur að vinna samtímis.
Hvort þetta er skemmtilegt
starf? Já, það er reglulega
skemmtilegt, þegar nóg er að
gera og allt gengur vel, en
svolítið leiðinlegt, þegar skortur
er á verkefnum fyrir fólkið.
Það lítur út fyrir að áhugi á
ræktun loðdýra sé vaknaður
fyrir alvöru meðal bænda lands-
ins og fleiri. Hjá landbúnaðar-
ráðuneytinu liggja nú fyrir til
afgreiðslu a.m.k. 50 umsóknir
um leyfi til að mega stofna refa-
bú og 10-20 beiðnir um minka-
leyfi. Auk þess eru nokkrar
beiðnir um leyfi fyrir ullar-
kanínubúum og a.m.k. eitt fyrir
annarri nagdýrategund, sem
sinsilla heitir (með íslenskri staf-
setningu).
Hér á dögunum var hér á
ferðinni búnaðarmálastjórinn
Jónas Jónsson. Notaði hann þá
tækifærið og fór ásamt með
blaðamanni Norðurslóðar í
heimsókn í Böggvisstaðabúið.
Þar tók á móti þeim Þorsteinn
Aðalsteinsson forstjóri búsins
og fræddi um gang mála á þeim
stóra stað.
Vel lukkuð pörun.
í búinu eru nú30001æðureða
um það bil. Pörun er nýlega
lokið og gekk sérlega vel.
Pörun, hvað er nú það, er það
einhver samkvæmisleikur?
kunna menn að spyrja. Nei, ekki
beinlínis, það er það sem í sam-
bandi við sauðfjárræktina er
kallað fengitími í sveitinni. Og
pörunin gekk sem sagt prýðisvel
eftir nýju „kerfi“, sem ekki
hefur áður verið reynt á Böggvis
stöðum. Þetta er líka fagmál,
sem þarf að skýra fyrir leik-
manninum. Með kerfinu er átt
við hvenær, hve oft og hve lengi
karlinn, högninn, er látinn vera
hjá læðunni. Þetta er gert með
ýmsu móti þ.e.a.s. menn fara
eftir mismunandi kerfum. Þetta
er allt of tæknilegt til þess að
unnt sé að útskýra í almennu
fréttablaði, en nóg er að geta
þess, að fyrst er karlinn aðeins
látinn „leita á“ eins og það heitir
á bændamáli, áður en nokkuð
alvarlegra gerist.
„Ég er óánægður ef meira en
10% af læðunum er gelt núna,“
sagði Þorsteinn. Stundum er
geldprósentan miklu hærri.
Mikill bústofn.
Nú fer gottíminn í hönd, því
meðgöngutíminn er ekki nema
ca. 60 dagar. í búinu er verið að
undirbúa gotið, útbúa nýja
„hreiðurkassa“ fóðra þá með
Framhald á bls. 7.
Búnaðarmálastjóri, til vinstri, í heimsókn.
Gatnagerð og nýbyggingar
í fjárhagsáætlun Dalvíkurbæj-
ar er gert ráð fyrir að til
gatnagerðarframkvæmda verði
varið samtals 1.147.900. Álögð
gatnagerðargjöld eru áætluð kr.
332.250, þannig að framlag úr
bæjarsjóði nemur því 815.650.-
Gert er ráð fyrir að gang-
stéttir vejði lagðar við Karls-
braut, Ásveg og lokið við
lagningu við Hafnarbraut og
Skíðabraut.
Jarðvegsskipti og endurnýjun
lagna verði í Hólavegi ofan
Svarfaðarbrautar, Sognstúni, 03
nýrri götu á Brimnestúni.
Þá er áætlað að Smáravegur,
Goðabraut og Ránarbraut norð
an Karlsrauðatorgs verði mal-
bikaðar.
Þá er í fjárhagsáætlun gert ráð
fyrir að unnið verði við nýbygg-
ingar sem hér segir:
Skólabygging.
Lokið verður við að koma
öllu húsinu, sem byrjað var á í
íyrra, á fokheldisstig, auk þess
er gert ráð fyrir nokkurri
upphæð til að ganga frekar frá
þeim tveim stofum, sem teknar
voru í notkun í fyrra.
Ráðhús.
Þar verður vestur hluti kjall-
ara múrhúðaður. Þá verður
gengið frá húsinu að utan. Þar á
meðal verður húsið málað, auk
þess verða framkvæmdir við
stéttir og lóð.
Leikskóli (Krílakot)
Lítilsháttar verður unnið við
lóðarframkvæmdir og frekari
frágang hússins að innan.
Heilsugæslustöð.
Frágangur norðurhluta húss
er þegar hafinn og verður hann
tilbúinn undir tréverk á árinu.
Þá verður húsið málað utan og
gengið frá lóð.
Samkomuhús Dalvíkur (Ungó)
Samkomuhúsið er sameign
bæjarins og all margra félaga á
staðnum. I sumar er fyrirhuguð
viðbygging við það, sem notað
verður sem anddyri, fatahéngi
og snyrtingar.
Sundlaug.
Undirbúningar að byggingu
sundlaugar er hafinn og verður
unnið að teikningum á árinu.
Loðdýraræktin
Mihill áhugi á stofnun refabúa