Norðurslóð - 28.03.1984, Side 1

Norðurslóð - 28.03.1984, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær 8. árgangur Miðvikudagur 28. mars 1984 3. tölublað Úr stúdíói Útvarps Dalvíkurskóla. Ábúðarmiklir tæknimenn að störfum ásamt þul. Vettvangsvika í Dalvíkurskóla Mikið líf hefur verið í Dalvíkur- skóla undanfarna daga. Biaða- maður og Ijósmyndari Norður- slóðar litu þar inn á dögunum og urðu vitni að því lífi og fjöri sem þar var. Myndefni ljós- myndarans var óþrjótandi, en því miður aðeins hægt að birta fáeinar myndir hér. Um það var samið að nemendur sjálfir sæju um frásögn af því sem hefur verið að gerast. Við gefum því Helgu B. Eiríksdóttur í 9. bekk orðið. Vikuna 19.-23. mars var Hraðar hendur við færibandið. Rækjan kemur aftur Laugardaginn 24. mars fór aftur að rjúka hjá rækjuvinnslu Söltunarfélags Dalvíkur eftir rúmlega tveggja ára hlé. Settar hafa verið niður nýjar rækjuvinnsluvélar. Afköst eru nú svipuð og áður var, en munu síðar aukast með viðbótar tækjakosti. Veiðar hafa gengið vel að undanförnu og haldi svo fram sem horfir má vænta mikillar vinnslu á næstunni. Hraðar hendur við færibandi. stundaskrá brotin upp í Dalvík- urskóla og var nemendum skipt niður í hina ýmsu hópa. 7.-9. bekkur fékkst að mestu leyti við breytingar inni í gamla skóla í þessari vettvangsviku. Má þar nefna myndlistarhóp, smíðahóp og saumahóp. Vinna þessara hópa var í sameiningu að mála veggi, setja upp bekki oggardín- ur sem nemendur höfðu unnið þessa daga ofl. ofl. Fram til þessa hafa gangar skólans verið mjög óaðlaðandi þar sem nemendur hafa hvergi getað tyllt sér og þurft að vaða í óhreinindum frá útiskóm og yfirhöfnum. Á þessu var ráðin bót með smíðum á skóhillum og fatahengi í anddyri skólans. Auk þessa störfuðu hópar að skóla- blaði sem ráðgert er að komi út bráðlega og þá var starfrækt útvarp sem sendi út margvíslegt fróðleiks- og skemmtiefni sem nemendur unnu upp í vikunni. Þá var einn aðstoðarhópur meðal eldri nemenda skólans sem aðstoðaði yngri nemendur við þeirra vinnu. Yngri bekkir skólans unnu við grímu- og brúðugerð, lærðu skyndihjálp og notkun áttavita og sumir unnu við útvarpið. í fyrrnefnd'ri viku var einnig mikið um æfingar fyrir árshátíð skólans sem haldin var 23. og 24. mars. Á föstudag voru sýningar fyrir nemendur skólans en á laugardag voru 2 sýningar fyrir almenning og var uppselt á Frh. á bls. 5. Kynning fyrirtækja Víkurbakarí Víkurbakarí eiga og reka hjónin Hallfríður þorsteinsdóttir og Ríkharður Björnsson. Ég heim- sótti Fríðu og Rikka um daginn og bað þau að segja mér ögn frá fyrirtæki sínu. Þau tóku því vel °g gef ég nú Rikka orðið: Námið „Ég var ekki nema 15 ára þegar ég fór til sjós. Eftir að hafa verið eitt sumar í landi ákvað ég að drífa mig í eitthvert iðnnám. Ég fór að huga að því hvaða iðn- greinar vantaði á staðinn. Ég sá lljótt að nóg virtist vera af bif- vélavirkjum og smiðum og hugurinn beindist í fyrstu að rakaraiðn. Þá vildi svo til að hér var verkfræðingur að nafni Edgar Guðnrundsson. Hann hvatti mig til að fara í bakaraiðn og taidi sig geta konrið mér í læri hjá karli föður sínum sem rak Sveinsbakarí í Reykjavík. Það varð úr. Þá var ekki hægt að stunda iðnnánr hér heima þannig að ég Jrurfti að taka bóklega námið í Iðnskólanum á Akureyri en verklega nánrið fór, eins og ég sagði áðan, fram í Sveinsbakaríi í Reykjavík. Teikningum gátum við sem þá vorum í iðnnámi reyndar lokið hér heima, Edgar kenndi okkur þær. Þetta gekk allt vel og að námi loknu langaði mig til að kynnast fleiru hjá góðum meist- urum. Ég var svo heppinn að komast að í Bernhöftsbakaríi sem er gamalgróið, talið elsta bakaríið á landinu og hefuralla tíð haft gott orð á sér.“ Fjölskylda -flutningur „Ég býst við að ég hafi alltaf verið ákveðinn í því með sjálfum mér að koma heim aftur þótt auðvitað hafi ýmislegt annað freistandi rekið á fjörurn- ar hjá mér. Þegar þarna var komið sögu hafði ég eignast konu. Hún hafði lokið sínu iðn- námi þegar leiðir okkar lágu saman og stóð að því leytinu betur en ég að hún rak sína eigin hárgreiðslustofu. Það er því engin furða þótt hún hafi ekki verið alveg tilbúin í fyrstu að ílytja með mér norður á þennan útkjálka sem Dalvík hlýtur að hafa verið í hennar huga. Hún er innfæddur Reykvíking- ur, hafði aldrei búið utan Reykjavíkur og það er engin launung á því að hún var mjög kvíðin enda rifin upp með rótum úr sínu umhverfi þar sem ættingjar hennar og vinir allir voru. En hún vildi gefa mér tækifæri og prófa þetta og haustið 1973 fluttum við norður.“ Starfslið - tækjabúnaður „Ég hafði frétt af uppgjafa- bakaríi á Vopnafirði. Þaðan keypti ég ofn, hrærivélar og fleira sem komið var fyrir í húsnæði sem við leigjum enn að Skíðabraut 3. Við gátum svo opnað í desember 1973. Þessi Vopnafjarðartæki reynd- ust nú ekki öll eins og vonir stóðu til. Ofninn var t.d. hand- ónýtur og fór beint á haugana. Til allrar hamingju hafði ég pantað annan ofn sem kom í tæka tíð. Við byrjuðum því með fjórfaldan „kommóðuofn" sem tók 12 plötur. Þá vorum við með handsnúna vél til að rúlla út vínarbrauð og því um líkt. Nú er þetta allt gert í vélum og því mikill munur á. Nú erum við komin með svokallaðan „stikk- ofn“ þar senr „stikkinn" snýst í ofninum og hér er vél sem lagar deigið, setur í trekt og út kenrur brauðið tilbúið á plötuna. í fyrstu vorum við fjögur sem unnum hér en þrátt fyrir vél- tegundir af matarbrauði sem við framleiddum en í dag bökum við daglega 10-11 tegundir og allt eru það gróf brauð sem bæst hafa við. Neysla á kaffibrauði er alltaf svipuð, auðvitað bætast við fleiri tegundir og fólk er þakklátt þegar við komum með eitthvað nýtt. Fólk vill breyta til og við reynum að koma til móts við það.“ Markaður Áður en ég kom höfðu Dalvík- ingar um árabil einungis haft völ á brauði frá Brauðgerð KEA. Ég er samt ekki fyrsti bakarinn hér á Dalvík og það er saga sem gaman væri að rekja einhverntíma. Ég varð auðvitað að byrja á því að leita hófanna hjá útibússtjóra KEA, Kristjáni Olafssyni áður en ég ákvað Starfsfólk í brauðgerðinni - hjónin Rikki og Fríða til vinstri. væðingu erum við átta sem vinnum hér í dag. Einn nemi hefur útskrifast héðan. Það er Björn Ingi Hilmarsson sem vinnur nú í bakaríi í Vestmannaeyjum.“ Neysluvenjur „Breyting á neysluvenjum er gífurleg. Fyrst voru þetta 3-4 endanlega að koma. Hann tjáði mér skömmu seinna að ekkert væri því til fyrirstöðu að ÚKEA keypti af mér allt brauð sem ég framleiddi. Ég sel að vísu víðar. Ég byrjaði t.d. á því að selja til Vopnafjarðar, að ég held í tvö ár og svipaðan tíma til Siglufjarð- ar. Til Ólafsfjarðar hef ég selt frá fyrstu tíð, þó ekki sömu aðilum. Ég hef alls ekki einokun á brauðsölu hér á Dalvík. Kr. Jónsson sendir t.d. brauð hingað út eftir. Mér finnst gott og heilbrigt að hafa samkeppni. Búðin okkar er illa staðsett svona á enda bæjarins. Sumt fólk kemur þó alltaf reglulega og virðist ekki telja vegalengd- ina eftir sér enda er brauðið hér alltaf ferskt og við getum verið með fleiri tegundir af ljúffengu kaffibrauði sem ekki er pantað af öðrum útsöluaðilum. Nú, svo er auðvitað alltaf hægt að panta hitt og þetta fyrir veislur og sér- stök tilefni. Vinnutími - frístundir Vinnutíminn er frá kl. 5:00 á morgnana til kl. 15:00. Þá taka að vísu við alls konar snúrfihgar sem fylgja þessu. Ég hef vanist þessum vinnutíma. Hann er góður á sumrin og þó sérstak- lega á vorin. Fjölskyldunni finnst þetta stundum erfitt því að ég er oft syfjaður á kvöldin ef ég hef ekki haft færi á að leggja mig svona í klukkutíma um daginn. Fyrst eftir að ég kom hingað heim aftur var ég mikið á skíðum og tók þátt í uppbygg- ingunni í fjallinu af lífi og sál. En það kom að því að ég lagði skíðin algjörlega á hilluna og fór út í hestamennskuna. Ég hef ekki tíma til að stunda hvoru- tveggja. Lokaorð Fríða tjáði mér að ekki hefði hún séð eftir því að hafa flust hingað úr borginni þótt auð- vitað væri margs að sakna, annað kæmi í staðinn. Rikki sagði öll samskipti sín við viðskiptavini, bæði fyrirtæki og einstaklinga, hafa verið með miklum ágætum til þessa og hann kvaðst vonast til að svo yrði áfram. Svanh. Bj.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.