Norðurslóð - 28.03.1984, Page 3
ORÐSENDING
TIL BÆNDA
TIMANLEG PONTUN TRYGGIR TIMANLEGA
AFGREIÐSLU.
Við viljum hvetja bændur, svo og aðra viðskiptamenn
okkar, sem hyggja'á búvélakaup á komandi vori og
sumri, til að kanna nú þegar hugsanlega þörf sína og
koma pöntunum til okkar sem fyrst.
1
MF
Massey Ferguson
2
HEYÞYRLUR
MJALTAVELAR
5
ALFA-LAVAL
HEYHLEÐSLUVAGNAR
//A
6
SLÁTTUÞYRLUR
7
ÁBURÐARDREIFARAR
RAFMÓTORAR
1 og 3gja fasa
jOTunn hp
INTERNATIONAL
HARVESTER
OG VINNUVÉLAR
11
Universal
ssnn
DRÁTTARVÉLAR
LEITIÐ UPPLYSINGA HJA OKKUR
áður en þér festið kaup annars staðar.
^VÉIADEILD
sími 21400 og 22997
Nýtt skipafélag á Dalvík
Fulltrúi allmannatengsla gerir kunnugt:
Laugardaginn um daginn
1984, var stofnað á Dalvík
skipafélag. Á stofnfundi félags-
ins sem haldinn var í Sælu-
húsinu á Dalvík voru allirstofn-
endur þess sex að tölu mættir og
kusu þeir sig í stjórn hjá
félaginu.
Ákveðið var nafn á skipa-
félagið, Different Line Itd. en
það mun útleggjast á íslensku,
Misjafna Skipafélagið Inter-
national.
Nauðsynlegt reyndist að þýða
nafnið á íslensku, en það er
vegna þess að ætlunin er að
landa aflanum um borð hér
heima til að byrja með, og
auðveldar íslenska nafnið alla
vinnu við aflanótur o.þ.h. auk
þess sem það flýtir öllum afurða-
og rekstrarlánum til félagsins.
Sterk stjórn
Félagið skipa sex áhugasamir
og ungir og efnilegir Dalvíkingar
um útgerðarmál, þeir eru í
stafrófsröð:
1. Geir Guðsteinsson, gjald-
keri, fulltrúi félagsins í spari-
sjóðsstjórn og yngsti maðurinn í
félaginu.
2. Gunnar Bergmann, stjórn-
arformaður og lukkutröllfélags-
ins.
3. Lárus Gunnlaugsson, út-
gerðarstjóri og rakari eigenda.
4. Sigurður Lúðvíksson, vara-
stjórnarformaður og bakhjarl
félagsins.
5. Zophonías Antonsson,
viðhaldsstjóri og andlit félags-
ins út á við.
6. Þorsteinn Aðalsteinsson,
ritari og fulltrúi almannatengsla
og fólksins í landinu.
Á fundinum missti Lárus út
úr sér að hann væri þegar búinn
að kaupa félaginu skip og hafði
hann tekið út á það 100% lán.
Fundarmenn voru mjög óhressir
með að ekki fékkst hærra lán en
þessi kríusk. . . ., og vitnuðu til
annara útgerða í landinu. Eftir
allsnarpar umræður skrifuðu þó
allir undir víxilinn.
Frh. af baksíðu.
hátta, því ekki fellur alltaf
saman frítími fólks til sjávar og
sveitar. Hjónadansleikur í
nóvember og þorrablót á þorra,
eru fastir liðir, en hvortveggja
tókst með ágætum þennan
vetur. Ungmennafél. var með
jóladansleik og svo árshátíð
sína 3. mars. Stendur fyrir
félagsvist og bingói af og til og
íþróttalíf og æfingar alltaf í
gangi.
Kirkjukórinn æfði nokkur
lög í jólaannríkinu og flutti þau
27. desember ásamt smáv.
skemmtiatriðum og dansað var
áeftir. Þetta varágóðasamkoma
í þágu kirkjunnar. Kvenfélagið
og Lionsfélagið Hrærekurvoru
sameiginlega með jólatrés-
skemmtun fyrir börnin og
Hrærekur síðan með dansleik
og listmunauppboð þ. 7 jan.
Kvenfélagið er alltaf með
margvíslega starfsemi og nú er
nýlokið námskeiði í leðurvinnu.
Saumanámskeið var sl. haust og
fyrir jólin námskeið íjólaföndri
og skreytingum og myndarlegur
basar haldinn.
Björgunarsveit S.V.F.Í. hér á
stanum er með fasta fundi
mánaðarlega og eflir nú búnað
sinn og þjálfun. Slysavarna-
deildin sér að mestu um fjár-
öflun fyrir björgunarsveitina.
Nú er tími aðalfunda og
margra annarra félagsmála og
hefur aðeins verið stiklað á því
helsta.
Sigríður Þórdís Björg
Skipið er keypt með öllum
föstum lausabúnaði af Hafliða
Ólafssyni nikkuspilara úr firð-
inum. Kaupverð þess er í
þúsundum króna. Kr. 30.000.00
Kr. 30.000.00
Skipið er með skiptiskrúfu og
nýupptekinni Saab vél, smíðað
úr innfluttu timbri á þessari öld.
Fullhlaðið rúmar það rúm eitt-
þúsund og áttahundruð rúm
kíló og rúmlega það. Sex skips-
rúm eru um borð, en ekkert rúm
er fyrir rúm eða kojur, og gerir
rekstraráætlun ráð fyrir því að
það auki aðhald við veiðarnar,
sem þýðir m.ö.o. og nánar til
tekið 17,67% meiri afla pr.
úthaldstíma.
Á fundinum var ákveðið nafn
á skipið, Sigríður Þórdís Björg,
því nýtískulega nafni, eftirsam-
nefndu popplagi. Það mun
útleggjast á ensku eitthvað á
þessa leið, Your Riding Brave
Dini save. (Þó þori ég nú ekki
alveg að standa á þessu.)
Vissulega hefði verið gaman
að geta sent mynd af skipinu og
eigendum þess, en stjórnin
ákvað að heimila ekki mynda-
tökur fyrr en skipið hefur verið
yfirfarið og málað.
Þess í stað sendum við mynd
af systurskipi Sigríðar, - Smiril
Line - en það er að vísu stærra
og ekki útbúið til veiða.
Að lokum má geta þess að
gerður hefur verið samningur
við Sæluhúsið en það mun
kaupa ýmsar fisktegundir úr
afla skipsins, meðeðaán innyfla
óslægt upp úr sjó. Við væntum
þess að þær yrðu þá auglýstar
sérstaklega.
Þá fer stjórn félagsins þess á
leit við Noðurslóð að frétta-
ritarar Norðurslóðar verði nú
ekki eins og þorskar á þurru
landi og fylgist náið með
félaginu og eigendum þess, enda
nauðsynlegt, þar sem ekki er un
neitt meira rætt í bænum en
þessa misjöfnu drengi og félagið
þeirra, sem eru þó ef undann er
skilinn ég ritari félagsins, flestir
af sama sauðahúsi. Sjáið nú til
dæmis . . . hm.
Fulltrúi almannatengsla
og fólksins í landinu.
Þorsteinn Már Aðalsteinsson.
Norðurslóð sendir hinum
hugumstóru athafnamönnum
(næstum því) hugheilar árnaðar-
óskir.
Nú mega íbúar hafsins, fara
að biðja guð að varðveita sig.
Já p>*íoík..... joc * * * *■* '
TXb Ii£fí*>ó(l Odofi. foo VÆ* > ^ÖTtrcJK /9
T/4 uoto/M. y/JóASfi-**' or£’/*crO//0/,fhr
ptf 4V9 c, //<TV Q/, e-jx, 0/JQorx þ C&f ■
*....11 ... ............""» «
Veislunin Sogn
AUGLÝSIR
Fjölbreytt úrval af vortískunni ’84
á börn og fullorðna. Jacpot -
UFO - Simba ofl. tegundir.
Nærfatnaður á alla fjölskylduna.
Gjafavörur í úrvali.
Verlsunin Sogn.
-----------.
íbúð til sölu
Tilboð óskast í íbúð að Bárugötu 2, Dalvík.
íbúðin er á efri hæð ásamt sameign á neðri
hæð. Einnig fylgir íbúðinni viðbyggður
geymsluskúr.
Nánari upplýsingar gefur Helgi Þorsteinsson
í síma 61318 og 61162, Dalvík.
Ása og Sveinn.
NORÐURSLÓÐ - 3