Norðurslóð - 28.03.1984, Page 4
DALVÍKURBÆR
ÍOÁRA
Árið 1974 samþykkti Alþingi fslendinga lög sem veittu
Dalvík kaupstaðarréttindi.
Þáverandi forseti fslands, Dr. Kristján Eldjárn, staðfesti
lögin með undirskrift sinni 10. apríl það ár.
Því telst 10. apríl vera afmælisdagur Dalvíkurkaupstaðar
og 10 ára afmælið vera nú í ár.
Af því tilefni skulu öllum bæjarbúum sendar bestu heilla-
óskir með afmælisbarnið.
Megi það blómgast og dafna um ókomin ár.
Bæjarstjórnin.
Náimskeið í fiskeldi
Bændaskólinn á Hólum hefur
nú um þriggja ára skeið gefið
nemendum sínum kost á
kennslu um fiskeldi. Hefur það
mælst vel fyrir, og hefur skólinn
stöðugt fengið auknar fyrir-
spurnir vegna þessa náms. í
kjölfar þess mikla áhuga, sem
virðist vera á fiskeldi hér á landi
hefur Bændaskólinn á Hólum
ákveðið að efna til þriggja daga
kynningarnámskeiðs í fiskeldi.
Námskeiðið verður haldið á
Hólum dagana 14.-16. apríl
næstkomandi. Auk starfskrafta
skólans hefur skólinn fengið til
liðs við sig nokkra starfandi sér-
fræðinga á hinum ýmsu sviðum
fiskeldis. Námskeiðið verður
sniðið fyrir byrjendur á sviði
fiskeldis, og verður reynt að
gera sem flestum þáttum fisk-
eldis nokkur skil, bæði með
bóklegri og verklegri fræðslu.
Þeim sem áhuga hafa á
þátttöku er bent á að snúa sér til
skólans. Umsóknarfrestur er til
6. apríl, en vegna plássleysis
verður að takmarka aðgang.
Allar nánari upplýsingar veita
Jón Bjarnason, skólastjóri og
Pétur Bjarnason, kennari í síma
95-5962 og 95-5961.
ORÐSENDING
Þeir sem eiga ógneidda gíróseðla vegna
sóknangjalda 1983, eru vinsamlegast
beðnir um að greiða þá sem fyrst.
Sóknarnefnd Dalvíkurkirkju
Þú lifir lengi á góðu sumarleyfi ’84
Grikkland - Sólarströndin Rimini
Sæluhúsin í Hollandi - Sumarhúsin í Danmörku
Sólarparadísin Dubrovnik - Flug og bíll - Rútuferðir
Kynningarmynd fyrir VHS og BETA myndbönd og kynningarbæklingur hjá umboðsmanni.
ATH. Ókeypis innanlandsfiug fyrir þá sem staðfesta ferðapöntun fyrir 6. apríl.
Afgreiðum áætlunarfarseðla
innanlands sem utan.
Sérþekking getur oft sparað
talsverðar upphæðir.
37
Samvinnuferðir - Landsýn
Umboðsmaður Dalvík - Rögnvaldur Friðbjörnsson
Dalbraut 8 - ÚKE Dalvík - Símar 61415 og 61200
4 - NORÐURSLÓÐ