Norðurslóð - 21.03.1985, Qupperneq 3

Norðurslóð - 21.03.1985, Qupperneq 3
Aðalfundur Sparisjóð Svarfdæla Maður kemur manns í stað Fyrrverandi og núverandi sparisjóðsstjóri. Aðalfundur Sparisjóðsins, sá 101., var haldinn í Bergþórshvoli á laugardaginn 16. mars. Á fundinum voru mættir ábyrgðarmenn sjóðsins ásamt sparisjóðsstjóra og fyrrverandi sparisjóðsstjóra, Gunnari Hjartarsyni, sem nú er orðinn útibússtjóri Búnaöar- bankans á Ákureyri. Skýrsla stjórnar Formaður sjóðstjórnar, Valdimar Bragason, gat þess í skýrslu sinni að orðið hefðu forstöðu- mannsskipti hjá sjóðnum á árinu 1984. Nýi sparisjóðs- stjórinn, Friðrik Friðriksson, var áður skrifstofustjóri sjóðs- ins. 1 þá stöðu hefur nú verið ráðin Gíslina Gísladóttir, sem starfáð hefur við stofnunina um skeið. Getið var um helstu nýmæli, sem upp voru tekin á árinu, svo sem útgáfu greiðslukorta og opnun gjaldeyrisreikninga og gjaldeyrisviðskipta. Dágóð afkoma Fyrrverandi sparisjóðsstjóri gerði grein fyrir reikningsafkomu sjóðsins árið 1984, en á því ári voru vextir gefnir frjálsir og fylgdi því mikið kapphlaup um sparifé landsmanna. Svo er að sjá sem sjóðurinn hafi haldið sínum hlut í þeirri keppni. Afkoman varð hinsvegar lakari en undanfarin ár, en þar kemur ásamt öðru til, sérstakur kostn- aður vegna aldarafmælis sjóðs- ins á árinu, en sá kostnaður varð um 600 þús. krónur, þar af nær helmingur útgáfa afmælisrits. Rekstrartekjur alls urðu kr. 25.469.990, en regfuleg rekstrar- gjöld kr. 24.175.277. Hagnaður af reglulegri starfsemi varð því kr. 1.294.713, en að frádregnum afmæliskostnaði kr. 694.632. Allar eru stærðir þessar miklu lægri en 1983 og stafar það einvörðungu af minni verðbólgu og lægri vöxtum á árinu 1984. Varasjóður Sparisjóðsins var í árslok kr. 3.816.588, endur- matsreikningur kr. 13.243.568 og eigið fé alls 31. des. 1984 því kr. 17.060.246 og eru þá fast- eignir og lausafjármunir inni- faldir. Menningarsjóður Svarfdæla Formaður stjórnar hins ný- stofnaða Menningarsjóðs Svarf- dæla, Þorgils Sigurðsson, gerði grein fyrir fyrstu úthlutun úr sjóðnum. Var úthlutað 4 styrkj- um sem hér segir: Til Lestrarlélags Svarfdæla kr. 50.000 Til Bókasalns Dalvíkur 150.000 l il 'I alllélags Dalvíkur 25.000 I il hljóðlæriskaupa í Þing- húsiðáOrund 10.000 Samtals 255.000 Aðalfundurinn samþykkti til- lögu stjórnar um að veita í sjóð- inn kr. 150 þús. á þessu ári, en áður hafði komið fram að Svarfaðardalshreppur veitti í Menningarsjóðinn kr. 35.000 á síðastliðnu ári. Vert erað benda á að Menningarsjóðurinn er sjálfstæð stofnun, óháður Spari- sjóðnum, og ræðst fjárhagsgeta hans að miklu leyti af gjöfum, sem honum kunna að hlotnast frá stofnunum eða einstakl- ingum. Gunnar kvaddur Ýmsir urðu til að ávarpa frá- farandi sparisjóðsstjóra Gunnar Hjartarson, og þakka honum fyrir frábær störf við sjóðinn á miklu þróunar- og vaxtarskeiði hans. Færði stjórnin honum í lokin gjöf til minningar um dvöl hans hér, málverk úr Karls- brautinni á Dalvík eftir Sigfús Halldórsson. Mannabreytingar urðu í stjórn, úr gekk Halldór Jónsson á Jarð- brú, en í stað hans kosinn Þorgils Sigurðsson á Dalvík. Fyrir eru í stjórn auk formanns Baldvin Magnússon, Hjörtur E. Þórarinsson og Óskar Jónsson. Varastjórn skipa nú Guðríður Ólafsdóttir, Halldór Jónsson og Helgi Jónsson. Stoltir synir bústjórans I Dýrholti. Sjá grein um lo&dýrarskt. (Ljósm. B.Þ.) Fólksfjöldinn 1. des. 1984 Dalvík Eins og venjulega hefur Þjóð- skráin sent frá sér mannfjölda- skýrslur, sem miðaðar eru við 1. desember. Norðurslóð hefur birt þessar tölur oft á undan- förnum árum og gjarnan fjallað um þá ánægjulegu þróun, sem birst hefur í vaxandi fólksfjölda á Dalvík, oftast vel yfir lands- meðaltali. Hér birtast enn fólksfjölda- tölur frá 1. des. en nú eru þær ekki jafnánægjulegar og áður. Það hefur sem sé orðið fækkun fólks á Dalvík frá árinu áður eins og hér má sjá. íbúafjöldi l.des. 19841368en var 1375 árinu áður. Fækkun um 7 manns. Á stað með þessum fólksfjölda ætti fjölgun að vera milli 10 og 15 manns miðað við landsmeðaltal. Tapið er því um 20 manns eða um 114% og er þetta tilfinnanlegt. Karlar eru 714 en konur 654 og staðfestist enn sú regla að konur haldast ver við á smærri stöðum landsbyggðar- innar heldur en karlpening- urinn. Sveitin í Svarfaðardalshreppi teljast íbúar nú 290 en voru 285 í fyrra á sama tíma. Fjölgun 5 sálir. En hér bregður svo kynlega við að konur eru fleiri en karlar nefni- lega 148 móti 142 körlum og mun þetta fátítt í sveitabyggð. Þess skal að lokum getið að allt eru þetta fyrstu tölur, sem verða leiðréttar og munu þá vafalaust takaeinhverjum breyt- ingum. En svona verður þetta þó í megindráttum og er þetta í heild sinni spegilmynd af því sem er að gerast nú. Ryksugan mikla, Stórreykjavíkursvæðið, er komin í gang aftur að draga til sín börn landsbyggðarinnar og er vonandi að fljótlega verði hægt að stöðva þá öfugþróun. ATVINNA Starfsmaður óskast til Hita- og vatnsveitu Dalvíkur. Æskileg kunnátta í rafsuðu og logsuðu. Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k. og skal skila umsóknum til Guðmundar Árnasonar veitustjóra sem gefurallar nánari upplýsing- ar í síma 61375 eða 61687. Veitustjóri. Myndlistarsýning Um páskahelgina verður haldin málverkasýning í Árskógi. Þar mun Aðalsteinn Svanur Sigfússon sýna akrýlmálverk sem hann hefur málað á þessu ári og því síðasta. Flestar myndanna eru af landslagi við utanverðan Eyjafjörð og eru nær allar til sölu. Þetta er þriðja einkasýning Aðalsteins sem hefur lagt stund á list- nám undanfarin þrjú ár, fyrst við Myndlistaskólann á Akureyri og nú við Myndlista- og handíðaskóla íslands í Reykjavík. Sýningin verður opin laugardag 6. apríl, páskadag og annan í páskum kl. 14.00 til 20.00 alladagana. Aðgangurerókeypisogheitt verður á könnunni við opnun, NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.