Norðurslóð - 21.03.1985, Page 7
Allir í judo
Góð íþrótt er gulli betri **
Judokappar á Akureyri: Aftari röð f.v. Hallgrímur Matthíasson,
Róbert Lárusson, Jón D. Georgsson, Jón G. Stefánsson, Svavar Ingimars-
son. Krjúpandi f.v. Jón Áki Bjarnason, Vilhjálmur Bergsson og Börkur
Ottósson.
Bjarni Friðriksson judomaður
vann til bronsverðlauna á
Ólympyuleikunum ’84. Þetta
vita flestir, en það vita færri að
vegur judoíþróttarinnar hefur
farið sívaxandi síðan, og nú er
svo komið að judo er stundað
hér á Dalvík.
Það bar að með þeim hætti,
að nokkrir ungir menn hér í bæ
fengu „uppgjafa" judomann til
að kenna þeim það sem hann
kunni í íþróttinni. Þegar svo
kennslan átti að hefjast, reynd-
ust engar dýnur til í íþróttahúsi
bæjarins. (Það eru notaðar
nokkuð sérstakar dýnur í judo.)
Ekki var þó gefist upp, var næst
leitað til Judoráðs Akureyrar,
því menn vissu að þeir áttu
eitthvað af gömlum dýnum, sem
þeir voru hættir að nota. Akur-
eyringar voru sérlega hjálp-
samir, lánuðu hingað 11 dýnur.
Þetta var allveg fyrirtak,
svona í byrjun, æfingar gátu
síðan hafist eftir verkfall B.S.R.B.
Fyrst voru aðeins tvær æfingar í
viku, eftir áramót var síðan
þriðju æfinghnni bætt við, því
menn voru í stöðugri framför,
svo kröfurnar jukust. Um þetta
leiti var judomönnum boðin
innganga í U.M.F.S. og þáðu
menn það með þökkum. Það
þótti síðan við hæfi að stofna
judodeild innan U.M.F.S.
Stofnfundur var síðan hald-
inn 7. mars. Fjölmennt var á
fundinn, kosið var í stjórn, og
ýmsar ákvarðanir teknar, þ.á.m.
var ákveið að láta búa til veifu
með merki judodeildarinnar á,
merkið hannaði Einar Emilsson
smiður.
Mikill áhugi
Skráðir félagar innan deildar-
innar eru um 30 talsins, má það
teljast bara nokkuð gott á ekki
stærri stað. Myndast hefur
nokkuð fastur kjarni, sem
stundar æfingar reglulega. Af 30
skráðum félögum eru aðeins
tvær ungar stúlkur, sem stunda
Olís Dalvík
Seljum Varta rafgeyma í bíla og báta.
Margskonar Aquaseal þéttiefni
á þök og veggi,
smurolíur, brennsuolíur og
margt fleira.
■B Olísumboðið Dalvík
mrH Bliki h.f. sími 61431
þessa íþrótt hér í bæ. Gott væri
ef kvenþjóðin bætti nú úr þessu,
því allir geta æft judo, konur
sem karlar, ungir sem aldnir,
judo er hægt að æfa sem
almenningsíþrótt þó judo sé
yfirleitt útfærð sem keppnis-
íþrótt.
Tvisvar í vetur hafa meðlimir
judodeildarinnar farið á mót,
bæði mótin voru haldin á
Akureyri. Hið fyrra rétt fyrir
jól, kallað Ýlismót eftir gömlu
mánaðarheiti. Keppendur frá
Dalvík voru sex talsins, og
stóðu sig bara vel, t.d. náði þjálf-
ari judodeildarinnar, Brynjar
Aðalsteinsson, að vinna til l.
verðlauna í tröllaflokki. Seinna
mótið var Akureyrarmót, haldið
l. mars. Af 56 skráðum keppend-
um kepptu 9 Dalvíkingar sem
gestir. Fyrir okkur bar hæst sá
árangur sem Börkur Ottósson
náði í miðvigt. Þar var skipt í
tvo riðla vegna fjölda þátt-
takenda. Börkur vann alla í
sínum riðli og komst þar með í
úrslit. Glíman um gullverðlaun-
in var nokkuð erfið fyrir Börk,
þar sem andstæðingur hans var
nokkuð stærri og þyngri. Þó
náði Börkur tvívegis að skora
„koka“ (3 stig) og dugði það
honum til sigurs, því hinn hafði
ekki náð að skora neitt. Af fimm
glímum vann Börkur fjórar á
„ippon“ (10 stig) og eina á koka,
svo hann var vel að sigrinum
kominn. Fleiri Dalvíkingar náðu
ekki verðlaunasæti, en það má
koma hér fram, að Órn V.
Sverrisson náði 4. sæti í +70 kg.
þyngdarflokki, sama árangri
náði Jón D. Georgsson í +60 kg.
þyngdarflokki. Aðrir stóðu sig
samt mjög vel og eru upprenn-
andi judomenn.
J.D. - U.M.F.S.
Framh. af forsíðu
En markaðurinn? Hreinn
bóndi er ekkert smeykur um að
markaður verði ekki fyrir hendi.
Gjarnan vildi hann hafa sem
mestan markað hér á Dalvík,
það gefur að skilja. Nú þegar
hefur hann t.d. Víkurbakarí og
eitthvað fleira þar, en vonandi
bætast nýir kaupendur við fljót-
lega. Þetta kemur allt með
hægðinni.
Dýragarður
Að lokinni skoðun í hænsna-
húsinu fer fréttamaður með
föruneyti sínu að líta á annan
búskap á Klaufabrekkum. Þáer
röðin komin að Soffíu bónda
Hreinsdóttur að leiða gesti í
fjárhús (en fjósið gleymdist
reyndar og er þó að sögn þess
virði að skoða).
í fjárhúsunum eru að sjálf-
sögðu sauðkindur fyrst og fremst.
En raðir þeirra blessuðu dýra
hafa grisjast á Klaufabrekkum
eins og víðar. En þar hafa menn
bætt í skörðin með öðrum dýra-
tegundum. Þania er hópur af
geldneytum og parna í stíu eru 6
hestar. Og hvað er svo þarna í
spili sem líkist kind en er þó ekki
kind? Jú það eru auðvitað
geiturnar hennar Soffíu 7 að
tölu, 5 höðnur og tveir hafrar.
Geiturnar eiga allar að vera með
kiði, svo nú standa vonir til að
hjörðin geti orðið ein 12-15
stykki á komandi sumri. Kannske
maður fái bráðum að smakka á
svarfdælskum geitaosti, gaman
væri nú það.
Já það er svei mér ekki
kyrrstaðan og framtaksleysið á
þessum bænum eins og hjá
sumum okkar hinna. Þama er
nú t.d. gróðurhúsið og þarna er
vélaverkstæðið og hvað á svo að
koma þama syðst, það er
gmnnur að einhverri byggingu?
Það reynist þá vera grunnurinn
að framtíðarhúsi ungu hjón-
anna Soffíu og Gunnlaugs, sem
smátt og smátt eru að taka við
„gamla búskapnum“ á bænum.
Það á að koma einingahús frá
Selfossi með vordögunum og
síðan flutt í húsið um mitt
sumar ef guð lofar.
Það er uppörvandi að koma á
þennan dalabæ, þar sem enginn
uppgjafatónn er í mannskapn-
um. Hreinn bóndi leiðir gesti til
bíls og laumar tveimur eggja-
bökkum inn í aftursætið. Þetta
er fyrir bensíninu hugsar frétta-
maður og þakkar kurteislega
fyrir gjafir og góðar móttökur.
Ekur síðan léttur í skapi niður í
sveitina.
Erla Jóna Jónsdóttir í geitakrónni.
HVER ER
MAÐURINN?
Upplýsingar
óskast.
Sími 61218
NORÐURSLÓÐ - 7