Norðurslóð - 21.05.1985, Síða 8
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírn
Þann 25. apríl, sumardaginn fyrsta, var skíröSony'fl. Foreldr-
ar hennar eru Sigurgeir Jónsson málarameistari og Steinunn
Kristín Hauksdóttir, Dalbraut 3, Dalvík.
Andlát
Þann 25. apríl lést Hjörtur Björnsson, vist-
maður á Dalbæ, Dalvík. Hjörtur fæddist að
Klippstað í Loðmundarfirði 12. desember
1907. Hann kvæntist árið 1943 Þóru Haralds-
dóttur og bjuggu þau lengst af á Vökuvöllum
við Akureyri, og við þann bæ kenndi Hjörtur
sig síðan. Þau hjón eignuðust 3 börn. Hjörtur
missti konu sína 1971 og flutti tveimur árum
síðar að Grund í Svarfaðardal ásamt tveimur
barna sinna, þar sem hann bjó þar til hann fór
á Dalbæ, 1979.
Hjörtur var jarðsunginn í Dalvíkurkirkju
settur á Akureyri.
2. maí ogjarð-
Samsöngur
Þann 30. apríl var haldinn samsöngur þriggja kóra í Víkurröst á Dalvík.
Húsið var fullskipað áheyrendum sem gerðu góðan róm að mjög fjölbrejttu
og skemmtilegu prógrammi kóranna.
Karlakór Dalvíkur, stjórnandi Antonia Ogonovsky.
Samkór Dalvikur, stjórnandi Colin P. Virr.
Kirkjukór Svarfdæla, stjórnandi Ólafur Tryggvason.
Má ég kynna?
Ráðinn hefur verið nýr forstjóri
að Dalbæ, heimili aldraðra á
Dalvík. Sá heitir Ólafur Braga-
son Thóroddsen, kennari við
Dalvíkurskóla, og öllum
Dalvíkingum af góðu kunnur.
Flann tekur við nýja starfinu 28.
þessa mánaðar, en þá lætur
Gunnar Bergmann af þvi starfi
og mun a.m.k. næsta vetur
verða kennari í Hrísey, sem og
líka kona hans Sólveig
Hjálmarsdóttir.
Ólafur Thóroddsen erfæddur
25. júlí 1953 á Patreksfirði,
sonur Braga Thóroddsens vega-
verkstjóra og konu hans
Þórdísar Haraldsdóttur frá
Bakkafirði austur. Ólafur sótti
barna- og unglingaskóla í
heimabyggð, en var síðan einn
vetur í Héraðsskólanum á Núpi
í Dýrafirði. Síðan lá leiðin í M. A
hvaðan hann útskrifaðist 1974.
Þá innritaðist hann í Háskóla
Islands í landafræði sem aðal-
fag, en lagði ennfremur stund á
sögu, einkum Islandssögu, svo
og uppeldis- og kennslufræði.
Hann lauk B. Sc. prófi í
landafræði, þegar hann hafði
lokið ritgerð sinni í faginu.
Áður þ.e. 1980 var hann þó
kominn hingað til Dalvíkur sem
kennari við Dalvíkurskóla, þar
sem hann hefur starfað síðan.
Ólafur og Þóra ásamt Áka, elsta syni
Kona Ólafs, uppgötvuð í M.A.
er Þóra Ákadóttir Stefánssonar
togaraskipstjóra á Akureyri,
altsvo Svarfdælingur að hálfu.
Hún er hjúkrunarkona á Heilsu-
gæslustöðinni á Dalvík.
Þau hjónin eiga 3 syni Áka,
Braga og Egil, 10, 4 og 2 ára.
Aðspurður um hugðarefni
fyrir utan brauðstritið segist
Ólafur hafa mikið yndi af
ferðum úti í náttúrunni, ekki síst
um fjöll og firnindi. Hann er nú
formaður Björgunarsveitar
Slysavarnarfélagsins á Dalvík
en það starf tengist mikið ferða-
lögum á öllum árstímum.
Hann segist hlakka til að
takast á við nýja starfið, það er
hollt að breyta til við og við,
kennslan hefur fallið honum vel
og ekki síður samstarfið við
kollega í skólanum. En sem
sagt, það er gott að breyta til,
kannske á hann þó afturkvæmt
til gamla starfsins, hver veit?
Norðurslóð óskar Ólafi vel-
gengni í nýju starfi.
Gluggasjóður Tjarnarkirkju
Hér í blaðinu kom það fram
nýlega, að sóknarnefnd Tjarnar-
kirkju hefur ákveðið að láta gera
glugga í norðurhlið kirkjunnar
eftir teikningum Valgerðar Haf-
stað. Þar var þess getið að
meiningin væri að stofna sjóð og
safna í til að kosta þetta verk.
Sjóðurinn er nú stofnaður og
þegar fayið að safnast ofurlítið i
hann. Á dögunum fékk for-
maður sóknarnefndar bréf með
peningagjöf frá Önnu S. Snorra-
dóttur ( Sigfússonar og
Guðrúnar Jóhannesdóttur) Við
leyfum okkur að birta glefsu úr
bréfinu:
„Nokkrar krónur fylgja í
g/uggasjóðinn. Mig hefði langað
til að leggja blóm á leiðiforeldra
minna i dag, sumardaginn fyrsta,
sem var brúðkaupsdagur þeirra,
en þetta er miklu betra og égheld
að þau gleðjist á himni sínum ef
eitthvað miðar með þessafallegu
glugga í gömlu kirkjuna. Ég held
jafnvel að það mætti benda því
fólki á, sem á sína nánustu í
Tjarnarkirkjugarði, að tilvalið sé
að minnast afmœla o.s.frv. með
því að stuðla að uppkomu glugg-
anna í stað blessaðra blómanna,
sem visna svo fljótt. Þegar allir
gluggar eru komnir upp er hœgt
að snúa sér að blómagjöfum.“
Sóknarnefndir vill færa Önnu
þakkir fyrir gjöfina og öðrum
þeim, sem sýnt hafa kirkjunni
ræktarsemi og vinarhug fyrr og
síðar.
Þess skal að lokum getið að
þessir gluggar eru mjög dýrir og
þurfa að greiðast fyrir lok þessa
árs. Það væri því þakksamlega
þegið ef fólk vildi láta eitthvað af
hendi rakna fyrir þetta málefni.
Sóknarnefnd Tjarnarkirkju
skipa þessar konur: Sjgríður
Hafstað Tjörn, Ástdís Óskars-
dóttir Syðra-Holti og Kristín
Klemenzdóttir Brekku.
Vélasýning á Bílaverkstæðinu
Laugardaginn 11. maí, einn af
góðviðrisdögunum. sást flagga-
röð á háum stöngum blakta í
sunnanblænum niðri hjá Bila-
verkstæði Dalvíkur. Þarna var á
ferðinni kynningarsýning á
tækjum og á framleiðsluvörum og
stóðu að henni Bílaverkstæði og
Véladeild KEA á Akurevri.
Margir gestir lögðu leið sína
til að skoða herlegheitin og
þiggja kaffisopa og kexbita og
rabba við náungann og sýna sig
og sjá aðra þarna í sólinni og
blíðunni. A.m.k. 300 manns
komu þar að sögn verkstæðis-
stjórans Gunnars Sigursteins-
sonar.
Útifyrir Verkstæðinu var
raðað upp ýmsum landbúnaðar-
tækjum svo sem nýjustugerðum
tragtora og heyvinnuvéla, vel að
merkja þeirra, sem Búvéladeild
Sambandsins flytur inn og
Véladeild KEAselurhérnyrðra.
Ennfremur var þar til sýnis og
prófunar nýr smábíll Opel
Kadett, sem vafalaust á eftir að
sjást víða í umferðinni á næstu
árum.
Inn í Bíladeildinni voru til
sýnis og útskýringa nokkur
athyglisverð tæki, sem verk-
stæðið á nú í „vopnabúri" sínu.
Þar skal nefna mótorstillinga-
Mikio um ao vera a sýningunni.
tæki mjög fullkomið, sem á að
geta sýnt hvað eina, sem aflaga
fer í mótor og gangverki bílsins.
Ennfremur stýrisstillingartæki
til að geta útilokað titring í stýri
og verndað legur í hjólum og
dekkastillitæki, sem kemur í veg
fyrir óeðlilegt hjólbarðaslit
o.s.frv.
I Véladeildinni voru til sýnis
tæki, sem framleidd eru í
deildinni og flest tengjast fisk-
vinnslu: Snyrtiborð fyrir frysti-
hús úr ryðfríu stáli og áli,
skoðunarborð fvrir saltfisk 0£
saltskúffu á lyítara, hvort-
tveggja úr áli, og skreiðarpressa.
Ennfremur voru til sýnis fóður-
bretti fyrir refi mjög hentug og
mjög ódýr að sögn loðdýrarækt-
enda.
Fleira var þarna að sjá, sem
sannfærði gestinn um að þarna er
þýðingar mikil þjónustustofnun,
sem veitir atvinnu 25 manns og
getur tekið að sér fjölbreytt
verkefni fyrir bíla- og véla-
eigendur til ómetanlegt öryggis
atvinnuvegum hér til sjós og
lands.