Norðurslóð - 28.10.1986, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 28.10.1986, Blaðsíða 4
Heilsugæslustöðin Dalvík Bólusett verður við influensu nú í október 1986. Þeir sem eiga kost á bólusetningu eru ellilífeyris- þegar og einstaklingar sem haldnir eru hjarta- og lungnasjúkdómum. Pantanir eru teknar í síma 6 15 00. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN DALVÍK Blómabúðin ILEX Höfum opnað nýja blóma- og gjafavöru- vers’un að Skíðabraut 3, Dalvík. Vegna opnunarinnar bjóðum við afslátt á öllum pottaplöntum og 50% afslátt á haustlaukum. Opið alla cíaga kl. 1-6 Föstudaga kl. 1-7 Laugardaga kl. 1-4 Verið velkomin. BLÓMABÚÐIN ILEX Kirkjugluggakaffi og basar Sóknarnefnd Tjarnarkirkju efnir til basars og kaffisölu að Húsabakka laugardaginn 15. nóvember n.k. kl. 2 e.h., til styrktar gluggasjóði kirkjunnar. Velunnarar Tjarnarkirkju sem ætla að gefa muni eða kökur á basarinn eru beðnirað koma þeim til Fjólu á Húsabakka fyrir föstudagskvöld 14. nóv. Þá verða einnig jólakort Tjarnarkirkju til sölu við sama tækifæri. Sóknarnefndin. ATVINNA Bókhaldsskrifstofan h.f. óskar að ráða starfs- mann til tölvuskráningar og bókhaldsvinnu. Verslunarmenntun eða starfsreynsla tilskilin. Upplýsingar veitir Hilmar Daníelsson. Umsóknarfrestur til 5. nóvember. Bókhaldsskrifstofan h.f. Árshátíð 1986 Árshátíð Samtaka Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni verður haldin í Félagsheimili Seltjarnar- ness laugardaginn 8. nóvember. Húsiðopnaðkl. 19.00. Borðhald hefst stundvíslega kl. 19.30. Góð skemmtiatriði. Hljómsveit Villa frá Karlsá leikur fyrir dansi. Miðaverð kr. 1400.00. Miðapantanir í síma 91-11005 hjá Sólveigu frá Hæringsstöðum mánudaginn 3. nóvember og þriðjudaginn 4. nóvember eftir kl. 16.00 báða dagana. Svarfdælir norðan fjalla athugið: Ævarr íSunnu- hvoli verður með hópferð á hátíðina ef næg þátttaka fæst. Látið nú sjá ykkur sunnan fjalla. Svarfdælingar, hittumst hressir og kátir á bestu árshátið ársins. Nefndin. Meira um stjörnurnar Enginn getur hafa komist hjá að sjá kvöldstjörnuna Júppíter, sem hefur skartað í öllu sínu veldi á austur- og suðurhimni í allt haust. En nú er kominn nýr gestur yfir sjóndeildarhringinn í suðri. Að vísu er hann mjög lágt á lofti enn sem komið er. En í björtu veðri eins og í kvöld (26. okt.) flýtur hann þó vel yfir Skíðadalsbotninn séð frá Dalvík eða niðursveitinni. Enn er þessi stjarna ekki sérlega björt en mjög rauðleit að sjá. Menn eru auðvitað alveg klárir á því að þetta getur ekki verið ein af fastastjörnunum, enda er þetta enginn annar en sjálfur Mars, kenndur við rómverska stríðsguðinn vegna blóðlitarins. Hann er sem sé mikið lægra á lofti en Júppíter og töluvert á undan honum. En bráðlega mun hann hækka á lofti ogjafnframt nálgast höfuð- guðinn, svo að í desember verða þeir svo nærri hvor öðrum að aðcins skilur svo sem hálf tungl- breidd. Þessu verður garnan að íýlgj- ast .með næstu vikurnar. Ogsvo fer Venus bráðum að sjást sem morgunstjarna í suðvestrinu. Námskeið Keramiknámskeiðin eru byrjuð aftur. Upplýsifígar.hjá Maríu í síma 61128 og Jónu Stínu í síma 61466. Goðaleir Dalvík. Meðfylgjandi mynd tók dalvískur sjómaður, Sveinbjörn Sverrisson, austur við I.angancs seint í sumar. Þaö er af bandaríska flugvéla- móðurskipinu Nimitz, sem þá hafði verið á flotaaefingum NATO í námunda við landið. Sjaldgjæf sjón á fiskimiðunum, sagði Sveinbjörn. Viðskiptavinir athugið Frá og með 28. október 1986, mun Steinar Steingríms- son, Karlsbraut 9, hafa umsjón með OLÍUSÖLUDEILD Ú.K.E. DALVÍK. Símanúmer olíuafgreiðslunnar eru: Ránarbraut 61203 Heimasími Steinars 61456 KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA - DALVÍK OLÍUSÖLUDEILD ENN HÆKKAR SPARISJÓÐURINN «INNLÁNSVEXTI w HELSTU INNLÁNSVEXTIR ERU NÚ: ★ Toppbók (með 18. mánaða uppsögn) 15,0% ★ Trompreikningur (alltaf laus) 13,5% ★ Sparireikningur með 3 mán. uppsögn 10,0% ★ Sparireikningur með6 mán. uppsögn 11,0% ★ Verðtr. sparireikn. (3 mán. binding) 15,0% Nú sannast enn betur en nokkru sinni fyrr hið sígilda máltæki að: Græddur er geymdur eyrir Besti kosturinn er að skipta við Sparijsóðinn SPARISJÓÐUR SVARFDÆLA 4 NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.