Norðurslóð - 29.04.1987, Side 5
- Daníel Hilmarsson, gulldrengurinn frá Dalvík
Daníel Hilmarsson heitir 23 ára gamall
Dalvíkingur sem gert hefur það býsna gott
á skíðum. Tólf ára gamall vann hann
Andrésar andar leikana á Akureyri, fjórtán
ára varð hann Islandsmeistari unglinga í
stórsvigi í fyrsta sinn og sextán ára hirti
hann bæði gullið í svigi og stórsvigi og
alpatvíkeppni á landsmóti unglinga. Og
ekki nóg með það. Sama ár hélt hann
galvaskur á landsmót fullorðinna og hafði
þaðan heim með sér Islandsmeistaratitilinn
í stórsvigi nýorðinn sautján ára gamall.
Allar götur síðan hefur hann verið í hópi
bestu skíðamanna landsins þó á ýmsu hafí
gengið. I fyrra vann hann þrefalt á
landsmóti, þ.e. svig, stórsvig og
alpatvíkeppni og núna um páskana vann
hann gull í svigi, brons í samhliða svigi en
keyrði út af brautinni í stórsvigi.
- Daníel, nú varstu 5 sekúnd-
um á undan næsta manni í svig-
inu. Ertu svona langbestur?
„Já, ég er betri en þessir strák-
ar í svigi en þó ber þess að geta
að sá sem helst hefur veitt mér
keppni, Guðmundur Sigurjóns-
son, datt út í sviginu. Fimm sek-
úndur eru mjög langur tími í
þessu sambandi og á stórmóti úti
væri þetta heldur munur fyrsta
manns og þess númer 25 en ekki
fyrsta og annars manns.“
- Af hverju vannstu þá ekki
stórsvigið?
„Það var alveg hrikalega
svekkjandi. Ég var nefnilega í
fínu formi, búinn að hvíla mig vel
áður og fannst ég vera nokkuð
öruggur, en svo fyrir einhvern
klaufaskap fór ég á innra skíðið í
beygju og missti stjórn á mér. Þú
skilur náttúrlega ekki svona
orðalag. Við reynum alltaf að
skíða á því skíði sem er fjær
brekkunni og ef við förum á
innra skíðið þá missum við
algjörlega stjórn á okkur. Sam-
hliða svig er hins vegar ný keppn-
isgrein sem stunduð er af
atvinnumönnum í Bandaríkj-
unum, þá keppa tveir í einu í
tveimur samliggjandi brautum og
fara þeir tvær ferðir í sitthvorri
brautinni. Sá vinnur sem hefur
betri meðaltíma og slær hinn út.
Þetta er sem sagt útsláttarkeppni.
Nú þegar við vorum 4 eftir, þá
lenti ég á móti Örnólfi Valdi-
marssyni. Ég var þó nokkuð á
undan í fyrri ferðinni, í seinni
ferðinni missti ég takið á stafnum
í startinu og var því dálítið á eftir
honum af stað. Svo krækti ég
skíðinu í miðri brekkunni, missti
það og varð að ljúka keppninni á
einu skíði, langt á eftir Örnólfi.
Það vildi mér hins vegar til happs
(ef svo má að orði komast), að í
hinum riðlinum lauk annar
Guðmundurinn ekki keppni
þannig að ég var númer þrjú.“
- Daníel hefur verið í skíða-
landsliði Islands um langan aldur
og leikur okkur forvitni á að vita
í hverju það er fólgið.
„Við erum í stífum æfingum
allt árið. Á sumrin felst pró-
grammið í almennri líkamsþjálf-
um allt að sex sinnum í viku.
Mánaðarlega förum við í þrek-
próf og þá verður maður að sýna
framfarir þannig að það þýðir
ekkert að svindla. Annað hvort
æfir maður eins og brjálæðingur
eða er ekki með.
Svo eru farnar skipulagðar
æfingaferðir bæði hér heima og
eins til útlanda, mest til Austur-
ríkis á haustin. I vetur keppum
við á mótum í Austurríki, Sviss,
Þýskalandi og Ítalíu. Þetta tekur
náttúrlega allt rosalega mikinn
tíma. Ætli það séu ekki u.þ.b. 4
mánuðir á ári samanlegt sem
maður er að heiman, þ.e.a.s. í
útlöndum, fyrir utan æfingar hér
heima á sumrin 2 tíma á dag. Það
er örugglega hroðalegt að hafa
mig í vinnu. Ég er alltaf að biðja
um frí. En sem betur fer eru
vinnuveitendur mínir hjá Tré-
verk hf. afar skilningsríkir og
borguðu m.a.a. fyrir mig fram að
áramótum í fyrra 2 tíma á dag
sem ég var í æfingum. Fyrir utan
tímann sem þetta tekur er þetta
ægilega dýrt fyrir mann. Skíða-
sambandið borgar ekkert vinnu-
tap sem maður verður fyrir og
ekki nema þriðjung kostnaðar.
Ætlanst er til að skíðafélagið á
Hilmar Daníelsson.
staðnum borgi þriðjung og einn
þrigðjung þarf maður að borga
sjálfur.
Ég keypti mér lottomiða um
daginn og ætlaði þannig að
bjarga fjárhagnum. Ég var nokk-
urn veginn öruggur um að vinna
af því ég var svo innblásinn þegar
ég valdi tölurnar. Fyrst hafði ég 3
rétta, í næstu viku 4 rétta og þá
var ég alveg öruggur um næsta
skiptið. En þá var enginn réttur
hjá mér svo nú verð ég að fara á
sjó til að bjarga fjármálunum.
- Dreymnir þig um heims-
mælikvarðann?
„Ég stefni nú aðallega að því
að verða betri í dag en ég var í
gær. En auðvitað gælir maður við
þá hugsun að vera framar-
lega á heimsmeistaramóti eða
Olympíuleikum, það hljóta allar
að gera sem eru í þessu á annað
borð. Ég hef tvisvar keppt á
heimsmeistaramóti en ég hef ver-
ið óánægður með árangur ntinn
þar. Það hefur hist þannig á í
bæði skiptin að maður hefur ver-
ið að koma úr ströngu keppnis-
ferðalagi og hefur einfaldlega
verið orðinn alltof þreyttur og í
litlu stuði til að taka þátt. Þetta er
einfaldlega slæmt skipulag.
Nú ætla ég að reyna að komast
á vetrarolympíuleikana sem
haldnir verða í Calgary í Kanada
næsta vetur. Það veltur samt
náttúrlega á fjárhagnum og fjöl-
skyldulífinu."
- En Daníel er margt annað til
lista lagt en skíðahæfileikarnir.
Hann er smiður að atvinnu og
auk þess besti gítarleikari hér um
slóðir. Hann var t.a.m. liðsmað-
ur hljómsveitarinnar Eddu K.
sem spilaði hér á böllum fyrir
nokkrum árum. Og nú spyrjum
við: Ertu hættur að spila?
„Nei nei, ég er alltaf að spila.
Ég var að spila áðan og ég spila
alltaf þegar tími gefst til, en mér
fer ekkert fram, þetta er mest
sama sólóið. Það var Einar Arn-
grímsson sólóbassaleikari sem
kenndi mér fyrstu gripin og svo
lærði ég restina af sjálfum mér.
Það verður mitt fyrsta verk þegar
ég hætti á skíðunum að byrja í
hljómsveit.“ HJ.HJ
Sparisjóður
Svarfdæla
- Alhliða peninga-
og þjónustustofnun -
t '
sendir
viðskiptavinum sínum
bestu þakkir fyrir
samskiptin á liðnum vetri
Gleðilegt sumar!
NORÐURSLÓÐ - 5