Norðurslóð - 23.05.1987, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 23.05.1987, Blaðsíða 5
DALVÍ KURSKQ Ll Skipsstjómarbraut á Dalvík A Dalvík verður starfrækt 1. og 2. stig skipstjómamám veturinn 1978-88. Umsóknir um skólavist sendist skólastjóra Dalvíkurskóla fyrir 15. júní 1987. Nánari upplýsingar veita skólastjóri og vfirkennari í síma 96-61380. félagið Hugleikur úr Reykjavík sýndi leikritið „Ó þú“ eftir Sig- rúnu Óskarsdóttur, Ingibjörgu Hjartardóttur og Unni Gutt- ormsdóttur. Leikrit þetta hefur verið sýnt fyrir fullu húsi einum sextán sinnum í höfuðborginni og þar sem sögusvið leiksins er m.a. einhver ónafngreindur dalur á Norðurlandi og einn höfundanna Svarfdælingur þótti tilhlýðilegt að lokasýningin yrði á þinghúsinu að Grund. I leiknum segir frá Indriða og Sigríði sem ekki eiga að fá að njótast og hefur á ýmsu gengið áður en yfir lýkur. Sýning- in var bráðskemmtileg, textinn drepfyndinn og lipurlega skrifað- ur og kunnu áhorfendur greini- lega vel að meta. Að þessu leikriti loknu var leiklistarviðburðum lokið þessa stórkostlegu góðviðrishelgi í hon- um Svarfaðardal og virtust gestir dalsins nokkuð sammála að seint myndu þeir gleyma þessum óvenjulegu menningardögum. Hj.Hj. Hueleikur í svarfdælskri sumarblíðu. Heimavist er á staðnum. DALVIK Dalvíkurbær Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Dalvíkur 1980 - 2000 Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er lýst eftir athugasemdum viö tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalvíkur 1980 - 2000. Breytingarnar eru: 1. Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli tengist byggðinni með götu sem kemur í framhaldi af Mímisvegi á milli íbúðasvæðanna þarsem átti að vera opið svæði. 2. í stað græns opins svæðis austan Skíðabrautar við gatnamót við Mýrargötu verði lóð fyrir verslun og þjónustu. Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjar- tæknifræðings í ráðhúsinu á Dalvík frá 22. maí til 3. júní 1987. Athugasemdum við tillöguna skal skila til bæjarstjórans á Dalvík eigi síðar en 17. júní 1987 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Dalvík 19. maí 1987. Bæjarstjórinn á Dalvík. Hús til sölu Til sölu er fasteignin Karlsbraut 20, Dalvík. Allar nánari upplýsingar gefur sparisjóðsstjóri. * Sparisjóóur Svaifdœla Dalvík

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.