Norðurslóð - 23.05.1987, Qupperneq 8
Tímamót
Skírnir
3. maí var skírður í Dalvíkurkirkju Andri Már. Foreldrar hans
eru Sigríður Inga Ingimarsdóttir og Valgeir Vilmundarson,
Bárugötu 2, Dalvík.
7. maí var skírð á Dalvík Björk Hólm. Foreldrar hennar eru
Jóhanna Elínrós Sveinbjörnsdóttir og Porsteinn Hólm Stefáns-
son, Stórhólsvegi 4, Dalvík.
Afmæli
Kristinn Guðlaugsson sláturhússtjóri Karlsbraut 6 átti 70 ára
afmæli 19. maí s.l.
Ámi Guðlaugsson múrarameistari Kalsbraut 12 verður 75 ára 10.
júní n.k.
Norðurslóð árnar heilla.
Andlát
2. maí lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Sigurvin Sigur-
hjartarson Frá Skeiði.
Sigurvin fæddist á Auðnum í Svarfaðardal 29. júlí 1911, sonur
hjónanna Sigurhjartar Sigurðssonar og Kristínar Einarsdóttur.
Var hann næst yngstur 6 barna þeirra hjóna, en nú er aðeins eitt
eftir í hópnum, Kristín. Móður sína misstu börnin ung, en Sig-
urhjörtur fluttist þá yfir að Skeiði og naut aðstoðar systkina
sinna við hið stóra heimili. Þar ólst Sigurvin upp frá árinu 1920
og bjó til ársins 1973, í félagsbúi við bróður sinn Einar frá árinu
1937. Árið 1945 kvæntist Sigurvin eftirlifandi konu sinni Jónínu
Jóhannsdóttur frá Búrfelli og eignuðust þau eina dóttur, Þuríði
Kristínu.
Sigurvins mun án efa verða minnst lengst vegna starfa hans í
þágu kirknanna á Urðum og á Dalvík. Var hann meðhjálpari
við Urðakirkju í tæp 40 ár auk þess að vera um tíma í sóknar-
nefnd og kirkjukórnum.
1973 flutti fjölskyldan niður í Karlsbraut 18, Dalvík þar sem
Sigurvin átti heimili til dauðadags. Tók hann brátt við starfi
meðhjálpara í Dalvíkurkirkju og 1978 tók hann við starfi kirkju-
varðar og hafði þá einnig umsjón með kirkjugörðunum á Dalvík
og Upsum.
Pessum störfum gegndi Sigurvin af einstakri trúmennsku og
samviskusemi, en hann lét af þeim fyrir tveimur árum sakir
heilsubrests.
Sigurvin var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 9. maí.
7. maí lést Jóhann Hauksson, Ásbúð 8, Garðabæ.
Jóhann fæddist 4. júlí 1944, sonur hjónanna Steinunnar
Jóhannsdóttur frá Löngumýri og Hauks Vigfússonar frá Hellis-
sandi. Jóhann kvæntist Önnu Aradóttur frá Dalvík 1965 og
eignuðust þau þrjár dætur. Fjölskyldan bjó hér á Dalvík frá
árinu 1967 þar til fyrir fjórum árum er þau fluttu suður. Var Jó-
hann mest á sjónum en var lærður smiður og vann af og til við
þá iðn. Hann varð bráðkvaddur um borð í bátnum Hamra-Svan
frá Ólafsvík.
Jóhann var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 16. maí.
11. maí lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Halldór
Jónsson frá Jarðbrú.
Halldór fæddist í Jarðbrúargerði 24. mars 1931, sonur hjón-
anna Rannveigar Sigurðardóttur og Jóns Jónssonar, og hófu
þau hjón búskap á Jarðbrú það sama ár. Halldór varð bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1950, sneri þá heim og tók fljótlega við
starfi dýralæknis í Svarfaðardal og á Árskógsströnd. Gegndi
hann því starfi allt til ársins 1975 eða í 23 ár og var mjög farsæll
í því starfi, enda ósérhlífinn.
1954 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Ingibjörgu Helga-
dóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 6 börn.
Halldór gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, sat í stjórn
Sparisjóðs Svarfdæla, stjórn Dalbæjar, svæðisstjórn um málefni
fatlaðra o.m.fl. En hæst ber að hann sat í sveitarstjórn Svarfað-
ardalshrepps í þrjú kjörtímabil frá árinu 1974 og var allan þann
tíma oddviti hreppsnefndar. Það starf óx mjög á þessum 12
árum, en því gegndi Halldór af miklum dugnaði eins og öðrum
störfum er hann tók að sér.
Jafnhliða þessu bjuggu þau hjón myndarlegu búi á Jarðbrú,
fyrst í félagi við foreldra Halldórs eða til ársins 1966.
Er Halldór lét af starfi oddvita 1986 fluttu þau hjón til Akur-
eyrar, enda heilsa Halldórs farin að gefa sig.
Halldór var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 19. maí.
17. maí lést í bílslysi við Árgerðisbrú, Jón Geir Stetánsson.
Hann var sonur hjónanna Sigrúnar Eyrbekk og Stefáns Stefáns-
sonar, Goðbraut 15, Dalvík. Jón Geir fæddist 20. júní 1970 og
var yngstur 6 systkina.
Jón Geir var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 22. maí.
(Mikill mannfjöldi var viðstaddur þessar jarðarfarir. Norður-
slóð sendir ættingjum innilegar samúðarkveðjur.)
JHÞ
F.v. Gísli Davíð, Jóhanna, Gunnlaugur Einar og Sævar. Á myndina vantar
Jóhann Rúnar.
Nýir ábúendur eru nú komnir í
Velli eftir að jörðin hefur stað-
ið auð og yfirgefin frá því í
haust. Þótti mörgum þar held-
ur dimmt og dauflegt heim að
líta í vetur en nú er sem sagt
þetta aldna höfuðból aftur orð-
ið kvikt af lífi, bömum og bú-
fénaði. c'
Sævar Einarssori og !Jóhanna
E. Gunnlaugsdóttir heita ungu
hjónin sem keypt hafa jörðina og
eiga þau þrjá syni: Gunnlaug
Einar 10 ára í næsta mánuði,
Gísla Davíð 8 ára í desember nk.
og Jóhann Rúnar 6 mánaða.
Blaðamaður Norðurslóðar brá
sér í heimsókn í Velli fyrir
skemmstu og tafði fjölskylduna
frá flutningunum stundarkorn í
þvf skyni að spyrjast fyrir um
hagi þeirra. Bóndinn varð fyrir
svörum og taldi fátt fréttnæmt af
þeim að segja, hann væri úr
Hafnarfirðinum en hún úr Saur-
bæjarhreppnum, en ættir þeirra
væru vítt og breitt af landinu.
Undanfarin 9 ár hafa þau búið á
Selá á Árskógsströnd og flytja
með sér þaðan allan bústofn og
vélar. Kýrnar eru 25 og slangur af
kálfum og ungneytum. Að
undanförnu hefur Sævar verið að
steypa yfir öll gólf í fjósinu, setja
grindur og flórsköfur og virtist
blaðamanni það allt vera af hag-
leik gert. Sævar sagðist eingöngu
ætla að vera með kýr, á sauðfé
hefði hann lítinn áhuga enda
teldi hann skynsamlegast að
bændur einbeittu sér að einni
búgrein en væru ekki að vasast í
mörgu smálegu í einu.
Norðurslóð býður nýja fólkið á
Völlum hjartanlega velkomið í
sveitina og megi þeim búnast sem
best.
Fréttahomið
Föstudaginn 15. maí ók
fríður flokkur splunkunýrra
Zetordráttarvéla, sumar með
nýjar heyvinnuvélar í eftirdragi,
fram þjóðveg númer 805, Svarf-
aðardalsveg. Þarna voru á ferð-
inni bændur af 7 bæjum sem gert
höfðu samning við innflutnings-
fyrirtækið Globus um skipti á
notuðum og nýjum dráttarvélum.
Bændurnir borguðu í milli sann-
gjarna summu en fyrirtækið
hyggst selja notuðu vélarnar
einhverjum fátækari bændum
eins og Gunnlaugur Sigvaldason
forsvarsmaður sjömenninganna
orðaði það.
Þjálfari meistaraflokksins er
Garðar Jónsson en hann
þjálfaði Blönduósinga í fyrra.
Garðar þjálfar líka kvennaflokk.
Þjálfarar annarra flokka eru
Arnar Snorrason með 3. flokk,
Þorsteinn Guðbjartsson 6. flokk
og Birgir Össurarson 4. og 5.
flokk. Birgir er sonur Össurar
Kristinssonar sem var liðtækur í
knattspyrnunni á Dalvík hér á
árum áður.
Og enn um knattspyrnu. Gras
völlurinn sem byrjað var á í
fyrra fer nú vonandi fljótlega að
skipta um svip. Talsvert hefur
borið á moldroki úr köntunum
sem ýtt var upp í fyrra. Menn
segja að allt standi þetta til bóta
núna. Búið er að skipuleggja
kantanna svo fátt getur nú verið
því til fyrirstöðu að þekja þá á
næstu dögum og hefta þar með
moldrokið. Annars er stefnt að
því að þekja allan æfingarvöllinn
í sumar. Eftir er að setja þunnt
lag af blöndu af möld og sandi
áður en hægt verður að þekja
sjálfan völlinn.
Mikil húsnæðisvandræði eru
nú hér á Dalvík. Með öllu
er útilokað að fá leigt íbúðar-
húsnæði hvað sem við liggur.
Fróðir menn telja að Dalvíking-
um myndi fjölga um nokkra tugi
ef ekki hundruð á nokkrum vik-
um ef leiguhúsnæði væri fyrir
hendi. í fréttahorninu í vetur
vorum við að geta okkur til um
Sjö Tékkneskir gæðingar með nýjum eigendum sínum.
að hér yrðu hugsanlega byggðar
einar tuttugu íbúðir. Þótt ýmsir
hafi helst úr lestinni af þeim sem
þá voru að hugleiða byggingar,
þá má reikna með að í það
minnsta verði tuttugu íbúðir
byggðar. Viðar h/f hlutafélag sem
bræðurnir Hilmar og Viðar
Daníelssynir eiga hyggst reysa
tvær blokkir með tíu íbúðum
hvor nú í sumar. Þá mun Tréverk
h/f halda við sín fyrri áform og
reysa eitt eða tvö raðhús.
Knattspyrnuvertíðin er hafin.
Talsverður hugur er í meist-
araflokksmönnum að hafa sig
upp úr fjórðu deild íslandsmóts-
ins. Fyrsti leikur liðsins lofar
góðu því hann vann Dalvík 5-0
en þeir kepptu við Árroðan.
Sérfræðingarnir segja að baráttan
um efsta sætið í riðlinum standi á
milli Dalvíkur og Blönduósliðs-
ins. Á næsta laugardag keppa
þessi lið sinn fyrri leik á Blöndu-
ósi. En ekki er nóg að vinna riðil-
inn heldur leika efstu lið hverra
þriggja riðlanna um sætin tvö
sem málið snýst um í þriðju
deildinni.
Knárra sveina flokkur í áburðarskemmunni.