Norðurslóð - 29.03.1988, Side 1
mmto
Svarfdælsk byggð & bær
12. árgangur Þriðjudagur 29. mars
3. tölublaö
Á Tungnahryggsjökli. Bakhlið Steingrímshnjúks til vinstri.______________________________________Ljósm. Baidur i>.
Ahersla lögð
á umhverfismál
- Hér er haldið uppi mikilli almennri þjónustu
Bæjarstjórn Dalvíkur er um
þessar mundir að ganga frá
fjárhagsáætlun fyrir yfirstand-
andi ár. Fyrri umræða um
áætlunina fór fram fyrir hálf-
um mánuði síðan og um það
leyti sem blaðið er að koma fyr-
ir sjónir lesenda er bæjarstjórn
að ganga endanlega frá áætl-
uninni. I fjölmiðlum að undan-
förnu hefur talsvert verið fjall-
að um vanda bæjarfélaga
vegna skertra tekjustofna. Við
yfirlestur á áætluninni hér sýn-
ist hún bera þessa merki, en
þrátt fyrir það verður margt
merkilegt gert á þessu ári. Við
fengum Kristján Þór Júlíusson
til að svara nokkrum spurning-
um varðandi áætlunina. Það
skal tekið fram að þegar viðtal-
ið fór fram hafði bæjarráð iagt
síðustu hönd á verkið en
bæjarstjórn ekki staðfest hana.
Við spurðum Kristján fyrst um
reksturinn, tekjur og gjöld.
Skv. þeirri fjárhagsáætlun sem
nú liggur fyrir eru sameiginlegar
tekjur bæjarsjóðs áætlaðar um
86.000.000 kr. og eru stærstu
tekjustofnarnir eftirfarandi:
Útsvar: 50.400.000 kr.
Aðstöðugjöld: 15.140.000 kr.
Fasteignagjöld: 11.547.000
kr.
Framlag úr Jöfnunarsjóði:
4.860.000 kr.
Áætlaður rekstrarkostnaður er
um 77 milljónir. Þeir málaflokk-
ar sem vega þyngst í rekstri eru
helst þessir:
Til almannatrygginga og félags-
hjálpar kr. 13.420.000 kr.
Fj ármagnskostnaður
12.095.000 kr.
Yfirstjórn bæjarins 11.275.00
kr.
Hreinlætismál 6.310.000 kr.
Æskulýðs- og íþróttamál
5.450.000 kr.
Félags- og menningarmál
3.151.000 kr.
Það sem eftir stendur til fjár-
festinga eftir áætluð rekstrargjöld
eru því um 9 milljónir eða rúm
10% tekna sem ekki þykir mikið.
Ástæður þessa eru þær helstar að
bæjarsjóður verður að öllum lík-
indum í ár fyrir umtalsverðu
tekjutapi vegna þess nýja skatt-
kerfis sem tekið var upp um síð-
ustu áramót. Mun láta nærri að
útsvarstekjur bæjarins verði um 6
milljónum króna lægri árið 1988
en ef eldra skattkerfi hefði verið
við lýði.
Einnig koma síðustu ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar illa við
bæjarsjóð því framlag úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga til Dal-
víkur árið 1988 minnkaði á einni
nóttu um kr. 1.400.000 og hefði
verið vel hægt að koma þeim fjár-
munum einhversstaðar fyrir hér í
bænum.
- Helstu framkvæmdir?
Ef ég drep lítillega á stærstu
verkefni bæjarssjóðs í ár þá ber
fyrst að nefna að gatnagerð mun
hafa þar allnokkra sérstöðu, þ.e.
malbikun gatna og jarðvegsskipti
ásamt því að ætlunin er að leggja
gangstéttar við nokkrar götur og
u.þ.b. 1800 m af kantsteini.
Forgang hafa þær götur sem
ekki tókst að Ijúka í fyrra sumar,
m.a. vegna skorts á mannskap til
verka og ótíðar. Þessar götur eru
vegurinn á milli hafnargarða,
Grundargata og „hringnum" um
höfnina verður síðan lokað með
malbikun Sunnutúns og Ránar-
brautar upp að Gunnarsbraut.
Ætlunin er að reyna að hefja
framkvæmdir fyrr en á síðasta
sumri en það ræðst auðvitað af
því hvort unnt verður að ráða
mannskap til verka og svo spilar
auðvitað veðurfarið inn í.
Gert er ráð fyrir því að flutt
verði í nýtt áhaldahús og slökkvi-
stöð með haustinu og einnig er
áætlað að gera byggingarhæft
svæði fyrir hesthús að Hrísum.
- Er þá gert ráð fyrir miklum
lántökum?
Lántökur verða einhverjar já.
Hversu miklar þær verða á árinu
vil ég ekkert um segja, en það
ræðst m.a. af hugsanlegri sölu
eigna og endurgreiðslum ríkis-
sjóðs vegna sameiginlegra verk-
efna, en þessar tekjur eru enn
óræð stærð.
Það er mat manna að þær
framkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru séu það brýnar að ekki sé
unnt að draga þær öllu lengur.
Því verði vegna lítils rekstrar-
afgangs að mæta þeim með lán-
tökum sem verði þó ekki meiri en
svo að nemi afborgunum og
raunhækkun lána milli ára.
- Hvað um framkvæmdir á
vegum fyrirtækja bæjarsjóðs?
Samkvæmt þessari fjárhags-
áætlun er meginþunginn í fram-
kvæmdum sveitarfélagsins á veg-
um bæjarsjóðs eins og ég gat um
hér áðan. Enda hlýtur hverjum
manni að vera ljóst að þær mikiu
úrbætur í vatnsmálum, heitu og
köldu, sem unnar voru hér á síð-
asta ári hljóta að setja eitthvert
mark á framkvæmdagetu veitn-
anna og þá sérstaklega vatnsveit-
unnar.
Þó er fyrirhugað að í tengslum
við gatnagerð hér í sumar að
vinna töluvert verk í endurnýjun
dreifikerfis vatnsveitunnar og hjá
hitaveitunni verður virkjun þeirr-
ar holu sem boruð var á síðasta
ári stærsta verkefnið.
Framhald á bls. 7
Hraðskákmót
á Dalvík
Taflfélag Dalvíkur og Spari-
sjóður Svarfdæla stóðu fyrir
alþjóðlegu hraðskákmóti hér á
Dalvík föstudaginn 19. mars sl.
Keppendur voru 23 og voru
þeirra á meðal fimm sem þá
voru að tefla á hinu sterka
móti sem Akureyringar héldu.
Þrír sovéskir stórmeistarar
voru meðal keppenda, Lev
Polugaevsky, Mikhail Gure-
vitsj og Sergei Dolmotov. Sæv-
ar Bjarnason alþjóðlegur
meistari og sigurvegarinn á síð-
asta Sveinsmóti var þarna líka.
Fjórir keppendur voru frá Dal-
vík þau Arnfríður Friðriks-
dóttir, Ottó Gunnarsson, Ingi-
mar Jónsson og Rúnar Búa-
son.
Trausti Þorsteinsson forseti
bæjarstjórnar setti mótið og bauð
gesti velkomna. Því næst hófst
keppnin. Tefldar voru ellefu
umferðir eftir Monradskerfi og
umhugsunartími var fimm mínút-
ur á mann. Oft var rnikill hraði
og hasar í skákunum og áhorf-
endur sem voru allnokkrir
skemmtu sér hið besta. í fyrstu
umferð mætti Ottó Gunnarsson
Gurevits. Gurevits er nú tíundi
stigahæsti skákmaður heimsins
náðu einna helst árangri gegn
Dolmatov. Þannig gerðu Sævar
Bjarnason og Ólafur Kristjáns-
son jafntefli við hann og Ingimar
Jónsson féll á tíma sekúnubroti á
undan Dolmotov nteð síst verri
stöðu.
Jón Garðar Viðarsson gerði
jafntefli við Polugaevsky í síð-
ustu umferðinni í mjög skemmti-
legri skák og klöppuðu áhorfend-
ur Jóni lof í lófa. Þó athygli
áhorfenda hafi mest beinst að
skákum stórmeistaranna voru
aðrar skákir stórskemmtilegar.
Ungur skákmaður frá Akureyri
Magnús Teitsson vakti athygli
fyrir góðar skákir og einnig
beindist athyglin að heimamönn-
um.
Eins og vænta máti sigruðu
stórmeistararnir. Polugaevsky og
Gurevits skiptu með sér 1.-2. sæti
með 10 vinninga hvor af ellefu
mögulegum, 3. var Dolmotov
með 8,5. Fjórði varð Sævar
Bjarnason með 7,5 og síðan urðu
jafnir Ólafur Kristjánson og Jón
Garðar Viðarsson. Ingimar Jóns-
son og Áskell Örn Kárason voru
með 6 vinninga. Rúnar Búason
og fjórir aðrir voru með 5,5 vinn-
inga.
Dolmatov hér til vinstri teflir við Ingimar Jónsson.
og fylltust áhorfendur miklu
stolti og aðdáun þegar Ottó
snemma í skákinni náði skipta-
mun og yfirburðastöðu. Rússinn
varðist þó vel og undir lokin
gerðist eitthvað það sem varð til
þess að staða Óttós hrundi og
hann tapaði.
Þannig fór nú fyrir flestum í
veiðureigninni við stórmeistar-
ana. Polugaevsky náði forystu
eftir fimmtu umferð en þá vann
hann Gurevits en Gurevits hafði
áður unnið Dolmatov. Stórmeist-
ararnir gerðu að öðru leyti jafn-
tefli sín á milli. Islendingarnir
Sparisjóður Svarfdæla gaf
verðlaun fyrir fimm efstu sætin
og afhenti Jóhann Antonsson
formaður stjórnar sparisjóðsins
þau í mótslok. Þarna var um
mjög skemmtilegt mót að ræða,
enda ekki á hverjum degi sem
okkur gefst færi á að sjá til sterk-
ustu skákmanna heims hér um
slóðir. Þess má geta að Poluga-
evsky hefur um árabil verið einn
sterkasti skákmaður heims,
Gurevits tíundi stigahæsti í dag
og Dolmotov skákmeistari
Sovétríkjanna í dag, ntinna mátti
það ekki vera.
Erlendir gestir: Mikhail Gurcvich, Sergej Dolmatov og Lev Polugacvski.