Norðurslóð - 29.03.1988, Qupperneq 4

Norðurslóð - 29.03.1988, Qupperneq 4
4 - NORÐURSLÓÐ Eins og kunnugt er fór hópur manna héðan frá Dalvík til að fylgjast með Ólympíuleikun- um í Kanada. Daníel Hilmars- son var meðal keppenda en auk hans fór kona hans Svala Sveinbergsdóttir, foreldrar hans Hilmar Daníelsson og Guðlaug Björnsdóttir, ali hans Björn Gunnlaugsson svo og Þorsteinn Skaftason fulltrúi Skíðafélags Dalvíkur. Okkur lék forvitni á að frétta af þessu ferðalagi og settumst því niður með þeim Daníel og Birni og fengum þá til að segja frá. Björn lét af því að ferðin hefði verið afburða skemmtileg. Það hefði verið stórkostlegt að sjá allt það sem þarna fór fram. Auðvit- að hefði verið gaman að fylgjast með Danna og að hans mati hefði hann staðið sig vel. Björn sagði að þau fimm héðan hefðu farið út 17. febr. sl. og með þeim hefði einn farið frá Akureyri. Gist hjá íslendingum Þau hefðu flogið til London gist þar eina nótt og farið síðan til Toronto og þaðan til Calgarí. Hópurinn hafði síðan gist á einkaheimilum og hefði Islend- ingafélagið í borginni skipulagt þann þátt. Hann sagði að allt viðurværi hefði verið með afbrigðum gott, hreinlega stjanað við þau. Calgarí er 600.000 manna borg í fögru umkverfi og er byggðin mjög dreifð. Þó nokkuð margir íslendingar búa á jressum slóðum og þar starfar Islendingafélag. Félagið heitir Leifur Eiríksson. Það hélt boð inni fyrir íslending- ana sem komnir voru á leikana og voru þar yfir 100 manns. Daníel sagði að þeir keppend- ur hefðu farið 10. febrúar af stað héðan til London og beint til Toronto og Calgarí. Ferðin hefði tekið 32 klukkutíma án gistingar strangt ferðalag það. Ströng öryggisgæsla Keppendur bjuggu í Háskólan- um á staðnum. Honum var lokað á meðan leikarnir stóðu yfir og breytt í Ólympíuþorp. Aðstaða keppenda var mjög góð. Þarna var allt til alls. Öryggisgæsla var mjög öflug. í hvert skipti sem far- ið var inn í þorpið var leitað með málmleitartækjum og allir báru á sér passa, eða réttara sagt höfðu hann um hálsinn. Daníel dróg fram passa sinn, sem auk myndar af viðkomandi og númers er með tölurák sem tölvupenni les af, öryggisgæslan var tölvuvædd. Daníel sagði að tíminn hjá sér hefði farið mest í kringum keppnina sjálfa svo hann hefði kanski of lítið geta séð eða tekið þátt í öðru. Hann játaði því að þátttaka hans í Ólympíumótinu væri hápunktur á sínum skíða- ferli og að gaman hefði verið að taka þátt í þessu öllu. Það var nú ekki allt tekið út með sældinni til dæmis sagðist hann hafa þurft að vakna og taka sig til fyrir klukkan fimm um morguninn sem svig- keppnin fór fram. Svigkeppnin hófst þó ekki fyrr en klukkan hálf ellefu um morguninn og hann sjálfur var með rásnúmer 54. Keppendur í sviginu voru um 120 og Daníel lenti í 23. sæti og er það besti árangur sem hann hefur náð í keppni því þarna voru allir bestu skíðamenn heimsins meðal keppenda. Seinni ferðirnar betri Hann náði mjög góðum milli- tíma í seinni ferðinni en hlekktist lítillega á skömmu síðar og varð þar af leiðandi fyrir töfum en komst sarnt í mark og náði árangri sem er sá besti sem íslendingur hefur náð á Vetrar- ólympíuleikum í karlaflokki. í stórsvigi varð Daníel í 44. sæti af á annað hundrað keppendum. Líkt og í sviginu var seinni ferðin talsvert betri. En af hverju ganga seinni ferð- irnar betur en þær fyrri? „Senni- lega vegna þess að ég var Daníel í brautinni. Allir eiga sinn hlut af málinu Nú um helgina er bikarmót SKÍ á Dalvík og síðan íslandsmótið um miðjan apríl á Akureyri. Síðan ætla ég að miðla reynslu og þekk- ingu til annarra með þjálfun hér heima. Ég vil nota þetta tækifæri og koma á framfæri þakklæti til fjöl- margra einstaklinga og fyrirtækja svo og Dalvíkurbæjar fyrir allan stuðning á liðnum árum sem gerði mér kleift að ná þeim áfanga að fara á Ólympíuleikana. Allir þessir eiga sinn hlut í því ekki síður en ég sjálfur að þetta tókst,“ sagði Daníel. Meðan þetta spjall fór fram skoðuðum við margar myndir sem teknar voru í ferðinni. Ekk- ert vafamál er að hér hefur verið urn minnisstæða ferð að ræða. Þótt Daníel tali hér að ofan um að með keppni sinni á Ólympíu- leikunum verði viss þáttaskil hjá honum varðandi keppnisferðalög skulum við vona að „skíðakapp- inn snjalli frá Dalvík“ eigi enn urn stund eftir að ylja okkur um hjartarætur með sigrum hér innanlands. Ólympíufararnir Daníel, Svala og Björn. íslendingar í Calgary. F.v. Þorsteinn Skaftason, Guðlaug Björnsdóttir, Daníel Hilmarsson, Svala Sveinbergsdóttir og Björn Gunnlaugsson. Hilmar, Svala, Björn og Guðlaug við Ólympíueldinn. óánægður með fyrri ferðirnar og var afslappaðri og keyrði hraðar. Ég hef alltaf verið betur innstillt- ur á seinni ferðirnar, þær einfald- lega virðast henta mér betur,“ sagði Daníel. Spenningurinn mikill I risastórsviginu misti Danni af porti og fór út úr brautinni og var þar með úr keppni í þeirri grein. Reyndar voru það tuttugu aðrir sem fór út úr brautinni á sama stað, á einhvers konar blindhæð. Hvernig leið svo áhorfendun- um héðan frá Dalvík meðan Danni var í brautinni spurði blaðamaður svona til að spyrja eins og aðrir blaðamenn spyrja nú til dags? Svala var nú kominn í umræð- urnar hjá okkur og játaði á sig vanlíðan á meðan hann var í brautinni. Björn sagðist ekki hafa orðið var við vanlíðan, spenningurinn var einfaldlega það mikill. Glæsilegt skíðastökk Hann lét að því að gaman gaman hefði verið að vera þarna ineðal áhorfanda og fylgjast með Daníel. Þau voru vel sett á áhorfenda- pöllunum sérstaklega í stórsvig- inu. „Við sáum þegar honum hlekktist á í sviginu en vorum fegin að sjá hann halda ótrauðan áfram og létti mikið þegar mark- inu var náð. Árangur hans í svig- inu var mjög glæsilegur,“ sagði Björn. Hann sagði að þau hefðu horft á allar skíðagreinarnar nema brunið sem var búið þegar þau komu út. Að vísu hefði svig kvenna farið fram hjá þeim. Birni var tíðrætt um stökkið og dáðist mikið að Finnanum Matta Níkanen sem hafði afburða falleg- an stökkstíl. Sérstaklega var glæsilegt æfingarstökk daginn fyrir aðalkeppnina þá stökk Níkanen 136 m. Hins vegar fögn- uðu áhorfendur Bretanum fræga mest, þótt lengd stökksins hjá honum eða stíll gæfi ekki tilefni til þess. Nú eru Ólympíuleikarnir að baki, hvað svo Daníel? „Þegar ég gaf kost á mér í landsliðið í fyrra og þar með að fara á Ólympíuleikana var það ljóst af minni hálfu að þetta yrði síðasta árið sem ég keppi svona erlendis eins og ég hef gert að undanförnu. Hins vegar held ég áfram að keppa hér innanlands. Óhmpíufanir - frásögn af Kanadaferð

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.