Norðurslóð - 29.03.1988, Side 5

Norðurslóð - 29.03.1988, Side 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Aðalíundur Sparisjóðsins Góð afkoma 1987 Aðalfundur Sparisjóðs Svarf- dæla, sá 104. frá upphaii, var haldinn í Sæluhúsinu á Dalvík laugardaginn 26. mars. Flestir ábyrgðarmenn sjóðsins voru mættir, en þeir eru nú 30 talsins. Góð afkoma 1987 Hér birtum við í heild útdrátt úr ársskýrslu stjórnarinnar, sem prentaður er framan við ársreikn- inginn: Á árinu 1987 var hagnaður af rekstri sparisjóðsins sem nam 4.989 þús. kr. og er hann færður til hækkunar á varasjóði. Eigið fé í árslok nemur 46.905 þús. kr. eða 13,6% af niðurstöðutölu efnahagsreiknings en þessi hlut- fallstala var 14,5% í árslok 1986. Samkvæmt lögum um banka og sparisjóði má eigið fé í hlutfalli við niðurstöðutölu efnahags- reiknings að viðbættum ábyrgð- um en frádregnu eigin fé, pening- um í sjóði og innstæðum í öðrum bönkum ekki vera lægra en 5%. Eiginhlutfall þannig reiknað er 18,5%. Innlánsaukning á árinu nam 34% og eru heildarinnlán í árslok 264.017 þús. kr. Útlán spari- sjóðsins í árslok nema 240.810 þús. kr. og jukust á árinu um 61,1% en hækkun lánskjaravísi- tölu var 22,24%. Á árinu störfuðu að meðaltali 8 starfsmenn hjá sparisjóðnum og námu launagreiðslur samtals 9.165 þús. kr. Framlag spari- sjóðsins til Menningarsjóðs Svarfdæla nam 400 þús. kr. sam- kvæmt samþykkt aðalfundar á árinu 1987. Stjórn Sparisjóðs Svarfdæla og sparisjóðsstjóri staðfesta árs- reikning sparisjóðsins fyrir árið 1987 með undirritun sinni. Dalvík, 15. mars 1988. Stjórn sparisjóðsins: Jóhann Antonsson formaður, Óskar Jónsson varaformaður, Guðríður Ólafsdóttir, Baldvin Magnússon, Gunnar Jónsson. Sparisjóðs- stjóri: Friðrik Friðriksson. Þessu til viðbótar skal þess get- ið að af eigin fé sjóðsins, tæplega 47 milljónum, er varasjóðurinn rúmlega 13 milljónir. Áð öðru leyti felst eignin í húshlut sjóðs- ins í Ráðhúsinu ásamt með lóð, svo og innbú, hlutabréfaeign o.fl. Aðalhlutabréfaeignin er í Lána- stofnun sparisjóðanna tæplega 4 milljónir. Á árinu seldi Spari- sjóðurinn húseign sína, Karls- braut 20. Söluverð var kr. 4,4 milljónir og kaupandinn Davíð Stefánsson. Kvenfulltrúar: F.v. Kolbrún Pálsdóttir, Þóra Ákadóttir, Kristjana Björgvinsdóttir, Sigurlaug Stefánsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Þóra Rósa Geirsdóttir, Svalhildur Árnadóttir og Guðríður Olafsdóttir. Sífelld aukning starfsemi Fram kom hjá sparisjóðsstjóra, að starfsemi sjóðsins er í stöðug- um vexti. Dæmi um það er mikil aukning afurðalána til aðila, sem stunda framleiðslu til útflutnings. ÚTLÁNAFLOKKUN SPARISJÓÐS SVARFDÆLA I HLUTFALLSLEG SKIPTING INNLÁNA I % 1987 HLUTFALLSLEG SKIPTING ÚTLÁNA I % 1987 Afurðalán á árinu urðu um kr. 45 milljónir, en á þessu ári eru horf- ur á að um geti orðið að ræða tvöföldun á þessari starfsemi. Viðskiptaaðilarnir eru loðdýra- bændur en einkum þó útgerða- raðilar á Dalvík og 2 í Grímsey. Þá er að fara í gang nýjungar í gjaldeyrisþjónustu og mun sjóð- urinn nú sjá um útgáfu ferða- tékka. Ennfremur er þess að geta að viðskiptavinir munu nú geta fengið leigð geymsluhólf til öruggrar varðveislu verðmæta, sem menn treysta sér ekki til að geyma í heimahúsum. Fyrst í stað er þó einungis um að ræða 20 hólf í kjallara hússins. Menningarsjóður Svarfdæla Á fundinum var gerð grein fyrir stöðu Menningarsjóðsins, sem stofnaður var á 100 ára afmælinu 1984. Að þessu sinni var úthlutað aðeins einni upphæð, kr. 500.000 til Tónlistarskóla Dalvíkur til hljóðfærakaupa, en Tónlistar- skólinn hefur deild við Húsa- bakkaskóla í Svarfaðardal. Enn hefur Menningarsjóðurinn engar tekjur aðrar en framlög Spari- sjóðsins sjálfs, sem aðalfundur samþykkir að veita frá ári til árs. Að þessu sinni ákvað fundurinn að veita í sjóðinn kr. 700.000 af tekjuafganginum 1987, svo eitthvað hefur stjórn hans til út- hlutunar fyrir næsta aðalfund. í stjórn Menningarsjóðs Svarf- dæla eru Hilntar Daníelsson for- ntaður kosinn af aðalfundi Spari- sjóðsins, Björn Þórleifsson til- nefndur af hreppsnefnd Svarfað- ardalshrepps og Trausti Þor- steinsson tilnefndur af bæjar- stjórn Dalvíkur. Á fundinum var sem gestur Þór Gunnarsson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar en hann er jafnframt í stjórn Spari- sjóðssambandsins, SÍSP, og stjórnarformaður Tryggingar- sjóðs sparisjóða. Hélt Pór fróð- legt og fjörlegt erindi um þróun peningamála í landinu og spáði því að hún ætti eftir að neyða sparisjóði til ða sameinast að meira eða minna leyti í náinni framtíð. I stjórn Sparisjóðs Svarfdæla eru Baldvin Magnússon, Guðríð- ur Ólafsdóttir og Óskar Jónsson öll kosin af aðalfundi sjóðsins, Jóhann Antonsson formaður kosinn af Bæjarstjórn Dalvíkur og Gunnar Jónsson kosinn af hreppsnefnd Svarfaðardals- hrepps. Steingrímur Þorsteinsson fundarstjóri, Friörik Friöriksson sparisjóösstjóri, Þór Gunnarsson gestur að sunnan, Jóhann Antonsson stjórnarformaður og Guðríður Ólafsdóttir ritari stjórnar.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.